Fréttablaðið - 23.09.2006, Page 44

Fréttablaðið - 23.09.2006, Page 44
■■■■ { skrifstofan } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■2 Fyrstu einkaleyfin fyrir bréfa- klemmur voru gefin út á seinni hluta 19. aldar. Aldrei var sótt um einkaleyfi fyrir þá gerð sem við þekkjum best í dag, vírbréfaklemmuna, en hún var sennilega búin til í Bret- landi að minnsta kosti í kringum árið 1890. Níu árum síðar var hins vegar sótt um einkaleyfi fyrir eina tegund vélar til að búa til þessar klemmur, sem gjarnan voru kallaðar Gem-klemmur í höfuðið á fyrirtækinu sem fram- leiddi þær. Það nafn loðir enn við þær og á sænsku er orðið „gem“ notað yfir allar bréfaklemmur. Talið er að Bysantíumenn hafi búið til fyrstu bréfaklemmurnar úr látúni fyrir 16-17 öldum. Þær voru hins vegar aðeins notað- ar fyrir mjög mikilvæg opinber skjöl því kostnaðurinn við að búa þær til var mikill. Norðmaðurinn Johan Vaal- er mun hafa hannað notadrýgri bréfaklemmu en þá sem við þekkjum best í dag en hún fór aldrei í framleiðslu. Hins vegar á uppfinning hans líklega þátt í því að bréfaklemman var víða notuð sem tákn norsku andspyrnunnar gegn setuliði Þjóðverja og nas- istum í seinni heimsstyrjöldinni. Fólk bar þær á jakkaboðungum sínum sem tákn um samstöðu þegar önnur andspyrnutákn höfðu verið bönnuð. Klemm- an átti að tákna hvernig þjóðin héldist saman. Bréfaklemman verður til Þó að fyrstu bréfaklemmurnar séu líklega um 16-17 alda gamlar komu þær sem við þekkjum best ekki fram á sjónarsviðið fyrr en fyrir rúmri öld síðan. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES SAGA HLUTANNA Meðal húsgagna sem Penninn hefur til sölu er húsgagnalína með léttu yfirbragði eftir Valdimar Harðarson sem ber nafnið Fansa. Að auki selur verslunin mikið úrval af skrifborðs- stólum, skrifborðum og öðrum hús- gönum á skrifstofuna eða vinnuher- bergið. Meðal frægra hönnuða sem hannað hafa húsgögn sem Penninn hefur til sölu má nefna menn á borð við Ronan Bouroullec og Jermoe Carouso. Þessi vönduðu og glæsilegu húsgögn eru fáanleg á góðu verði í verslunum Pennans. Glæsileg skrifstofuhúsgögn Penninn hefur til sölu mikið úrval af fallegum húsgögnum eftir íslenska og erlenda hönnuði. Fansa er ný íslensk húsgagnalína sem hönnuð er af Valdimari Harðarsyni, arkitekt frá FAÍ. Fansa hefur létt yfirbragð og er fáanleg í mörgum viðartegundum. Celle er nýr stóll frá Herman Miller. Stólinn er hann- aður af Jerome Caruso. Setan og bakið eru samsett úr litlum hnöpp- um sem tengjast saman með mislöngu bili á milli, þannig lagar stóllinn sig að líkama hvers og eins. Joyn borðin eru hönnuð af Erwan og Ronan Bouroullec. Borðin eru fáanleg í mismunandi stærðum sem veitir fjöl- breytta möguleika á uppröðun. Vinnusvæði hvers og eins afmarkast með færanlegum skilrúmum og skrifborðsmottum. Aukahlut- ir svo sem geymslubox, ljós og skilrúm fást í mismunandi útfærslum og litum. Hér má sjá stólinn Panton eftir hönnuðinn Verner Panton.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.