Fréttablaðið - 23.09.2006, Qupperneq 88
52 23. september 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Garðar Jóhannsson, leikmaður Vals, og Sigþór Júlíusson, leik-
maður KR, hafa báðir fengið leyfi til að spila með sínum liðum
en Valur tekur á móti KR á Laugardalsvellinum í dag. Sigþór skipti
í sumar úr Val yfir í KR og Garðar fór hina leiðina og báðir voru
með ákvæði í sínum samningi um að þeir mættu ekki spila
gegn sínum gömlu félögum. Þetta ákvæði hefur nú verið fellt
úr gildi og því geta Garðar og Sigþór spilað með sínum liðum
í dag.
KR-ingar létu nokkur vel valin orð falla um Garðar þegar
hann yfirgaf félagið og m.a. var haft eftir Teiti Þórðarsyni að
Garðar hefði ekki verið til í að leggja nógu mikið á sig til að
vinna sér fast sæti í KR-liðinu.
Garðar Jóhannsson segist ekkert þurfa að sanna fyrir KR. „Ég
veit alveg hvað ég get og KR-ingar vita það líka, annars hefði ég
ekki verið hjá þessu félagi,“ sagði Garðar og bætti við að þessi
ummæli hefðu ekki haft nein áhrif á sig.
„Teitur verður bara að eiga þetta við sjálfan sig. Mér er svo sem
alveg sama hvað hann segir um mig, hann er ekki lengur þjálfarinn
minn,“ sagði Garðar en hann vildi ekkert gefa upp hvað hann myndi
skora mörg mörk í leiknum í dag. „Mér er sama hvort ég skora eða
ekki, ef við bara vinnum þennan leik er ég sáttur,“ sagði Garðar.
Sigþór Júlíusson var mjög ánægður með að fá að spila þenn-
an leik í dag. „Þetta er stórleikur og það hljóta allir að vilja
taka þátt í honum,“ sagði Sigþór en hann hefur leikið þrjú
tímabil með Val á sínum ferli. „Leikurinn er kannski fyrir
vikið öðruvísi fyrir mig en aðrir leikir. Mér leið mjög
vel hjá Val og það er ekki rígur þar á milli, af minni
hálfu að minnsta kosti, og ég vona að þeim gangi allt
í haginn. Að sjálfsögðu vona ég samt að við náum að
tryggja okkur annað sætið,“ sagði Sigþór.
„Leikurinn leggst bara mjög vel í mig. Það eru tveir
leikir eftir af sumrinu og það eru tveir úrslitaleikir. Við
KR-ingar höfum ekki náð neinum árangri ennþá þannig
að það er eins gott að halda vel á spilunum í báðum þess-
um leikjum. Við getum ennþá endað með dapurt sumar ef
við náum ekki að vinna annan hvorn leikinn í það minnsta,“
sagði Sigþór en hann verður samningslaus í næsta mánuði
og óljóst er með framhaldið hjá honum.
GARÐAR JÓHANNSSON OG SIGÞÓR JÚLÍUSSON: MEGA BÁÐIR SPILA GEGN SÍNUM FYRRUM FÉLÖGUM Í DAG
Mér er alveg sama hvað Teitur segir um mig
GRINDAVÍK:
Staða Grindvíkinga er verst allra liða. Grindavík
verður að vinna FH til að bjarga sér frá falli og jafn-
tefli hrekkur skammt. Þrátt fyrir sigur gæti liðið líka
þurft á hagstæðum úrslitum að halda.
BREIÐABLIK:
Blikar hafa verstu markatölu þeirra liða sem geta
fallið. Blikar verða því helst að vinna Keflavík, sigur
í þeim leik gulltryggir sætið. Jafntefli gæti sent
liðið niður ef Grindavík vinnur FH og Víkingur nær
jafntefli gegn ÍA.
VÍKINGUR:
Víkingur er í ágætri stöðu með heimaleik og bestu
markatölu þeirra liða sem geta fallið. Víkingur þarf
að tapa fyrir ÍA og Grindavík og Breiðablik vinna
sína leiki til að Víkingur falli. Jafntefli gegn ÍA gull-
tryggir sætið.
ÍA:
Skagamenn standa vel að vígi og nægir jafntefli
eins og Víkingum. Óttast því einhverjir að lítil
áhætta verði tekin í leik liðanna í Víkinni og að
hann verði hrútleiðinlegur. Rétt eins og hjá Vík-
ingum þarf ÍA að tapa sínum leik og Breiðablik og
Grindavík að vinna sína eigi liðið að falla.
FYLKIR:
Það þarf allt að klikka ef Fylkir á að falla. Fylkir
verður að tapa í Eyjum, Grindavík og Breiðablik
að vinna sína leiki og þar að auki verður leikur ÍA
og Víkings að enda með jafntefli. Fylkisliðið er því
nokkuð öruggt.
HVAÐA LIÐ FELLUR?
FÓTBOLTI Það verður mikil spenna
klukkan 14 í dag þegar átjánda og
síðasta umferð Landsbankadeild-
arinnar verður flautuð á. FH er
orðið Íslandsmeistari, ÍBV er fall-
ið og spennan er því hvaða lið fylg-
ir ÍBV niður og hvaða lið nær
UEFA-sætinu. KR og Valur munu
bítast um það sæti þar sem liðið
sem nær öðru sæti deildarinnar
fær Evrópusætið eftirsótta.
Grindavík stendur allra lið
verst að vígi. Liðið þarf að leggja
sjálfa Íslandsmeistarana en það
eitt og sér dugar ef til vill ekki. Á
móti kemur að mótherjinn hefur
að litlu að keppa og það verður
klárlega verðugt verkefni fyrir
Ólaf Jóhannesson, þjálfara
Íslandsmeistara FH, að koma
sínum mönnum í gírinn fyrir leik
gegn brjáluðum Grindvíkingum,
sem munu eflaust berja hressi-
lega frá sér.
„Við vitum að ef við svörum
ekki fyrir okkur komum við stór-
skaddaðir úr leiknum. Þess vegna
tel ég pottþétt að við munum taka
vel á móti þeim,“ sagði Ólafur.
Hann óttast ekki að leikmenn sínir verði að hugsa um Helga Björns-
son meðan á leik stendur en stór-
söngvarinn verður í fararbroddi á
FH-balli um kvöldið. „Það getur
brugðið til beggja vona í svona
stöðu en ég spái því að Grindvík-
ingar falli því þeir vinna okkur
ekki.“
Keflavík er í sömu stöðu og FH.
Situr í fjórða sæti og sama hvern-
ig fer gegn Breiðablik verður liðið
í því sæti. Svo á Keflavík að spila
bikarúrslitaleik gegn KR og leik-
menn hugsanlega farnir að hugsa
um þann leik. Guðmundur Steinars-
son er eini leikmaðurinn sem er á
hættusvæði í spjöldum og hann
verður líklega hvíldur.
„Við munum ekki tefla í tví-
sýnu með bikarúrslitaleikinn,“
sagði Kristján Guðmundsson,
þjálfari Keflavíkur. „Það verður
mjög sérstakt að spila þennan leik
og ég bíð spenntur að sjá hvernig
mitt lið mun spila. Þetta er ekki
skemmtileg staða og ef einhver
fær spjald á morgun og er í hættu
verður hann hreinlega tekinn af
velli.“
Þrátt fyrir erfiða stöðu Kefla-
víkur verður verkefnið erfitt fyrir
Blika þar sem þrír leikmenn verða
í banni, þar á meðal Zivanovic,
sem hefur leyst framherjastöðuna
ágætlega síðan Marel Baldvinsson
fór til Noregs. Þeir verða einnig
án Olgeirs Sigurgeirssonar, sem
hefur oft drifið miðjuspilið áfram,
sem og varnarmannsins Guð-
manns Þórissonar.
Skagamenn koma í heimsókn í
Víkina en sú sérkennilega staða er
komin þar upp að báðum liðum
nægir jafntefli til að halda sæti
sínu. Þrátt fyrir þá staðreynd ætla
Skagamenn að halda sínu striki og
sækja af álíka mætti og þeir hafa
gert í síðustu leikjum.
„Ég get lofað því að það verður
ekkert dútl. Við munum sækja af
meiri krafti en áður. Við munum
kýla á þetta og enda tímabilið með
stæl,“ sagði Arnar Gunnlaugsson,
annar þjálfara ÍA. „Við getum náð
fimmta sæti og það væri flott að
ná því. Engu að síður er ekki hægt
að neita því að ef staðan verður 2-
2 og korter eftir gæti hægst eitt-
hvað á leiknum. Við munum fylgj-
ast vel með hinum leikjunum í
síðari hálfleik en ekki fyrr en þá.“
Á þjóðarleikvanginum mætast
gömlu Reykjavíkurstórveldin
Valur og KR í úrslitaleik um annað
sætið. KR er með einu stigi meira
og nægir því jafntefli.
„Við erum í góðri stöðu á meðan
það er jafntefli og því verður eng-
inn hasar í okkur,“ sagði Teitur
Þórðarson, þjálfari KR, sem ætlar
ekki að hvíla þá leikmenn liðsins
sem eru á hættusvæði í spjöldum
fyrir bikarúrslitaleikinn. Hann
mun tefla fram sínu sterkasta liði.
„Það kemur ekkert annað til
greina. Þetta er fyrra tækifærið
okkar af tveimur til að ná þessu
UEFA-sæti og við ætlum ekki að
gefa frá okkur fyrra tækifærið.“
henry@frettabladid.is
Fimm lið geta fallið úr deildinni
Það verður væntanlega mikil dramatík þegar lokaumferð Landsbankadeildarinnar verður leikin í dag.
Fimm lið geta fallið í 1. deild og svo leika KR og Valur hreinan úrslitaleik um annað sætið í deildinni.
FAGNA GRINDVÍKINGAR AFTUR? Grindvíkingar hafa bjargað sér á ævintýralegan hátt síðustu ár og enn eina ferðina eru þeir með
bakið uppi við vegg. Þeir verða að vinna Íslandsmeistara FH til að bjarga sér. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
FÓTBOLTI Keppnin um gullskóinn,
sem markahæsti leikmaður
Landsbankadeildarinnar fær, er
mjög hörð en Blikinn Marel
Baldvinsson er enn markahæstur
í deildinni þó að hann hafi
yfirgefið Blika á dögunum. Marel
hefur skorað ellefu mörk og
skorar augljóslega ekki meira.
Næstir koma KR-ingurinn
Björgólfur Takefusa og Grindvík-
ingurinn Jóhann Þórhallsson með
tíu mörk. Þeir spila báðir í dag og
geta því náð Marel. Þar á eftir
koma Tryggvi Guðmundsson, FH,
og Víkingurinn Viktor Bjarki Arn-
arsson með átta mörk.- hbg
Keppnin um gullskóinn:
Marel enn
markahæstur
MAREL BALDVINSSON Gæti orðið
markakóngur á Íslandi þó að hann sé að
spila í Noregi.
STAÐAN:
FH 17 10 5 2 30-13 35
KR 17 9 2 6 21-25 29
VALUR 17 7 7 3 25-16 28
KEFLAVÍK 17 6 5 5 29-18 24
FYLKIR 17 5 6 6 22-23 21
ÍA 17 6 3 8 26-29 21
VÍKINGUR 17 5 5 7 20-17 20
BREIÐABLIK 17 5 5 7 25-32 20
-----------------------------------------------------
GRINDAVÍK 17 4 6 7 23-25 18
ÍBV 17 4 3 10 16-39 15
LANDSBANKADEILDIN
FÓTBOLTI Hannes Þ. Sigurðsson,
leikmaður danska úrvalsdeildar-
liðsins Bröndby IF, komst á
dögunum á heiðurslista hjá
félaginu þegar hann varð 55.
samningsbundni leikmaður
félagsins til að spila landsleik
fyrir þjóð sína. Hannes er þar
með kominn í hóp með ekki
ómerkari mönnum en Michael
Laudrup, Brian Laudrup, Peter
Schmeichel og Ebbe Sand svo
dæmi sé tekið.
„Það er mikill heiður að
komast á þennan lista og ég er
mjög ánægður með þetta,“ sagði
Hannes af þessu tilefni.
Ekki er nóg með að Hannesi
hafi hlotnast þessi heiður heldur
stóð einnig á heimasíðu Bröndby
IF að Hannes væri fyrsti samn-
ingsbundni leikmaður félagsins til
að spila landsleik án þess að hafa
mætt á æfingu hjá Bröndby. - dsd
Hannes Þ. Sigurðsson:
Á heiðurslista
hjá Bröndby IF
HANNES Þ. SIGURÐSSON Er 55. samn-
ingsbundni leikmaður Bröndby IF sem
leikur landsleik. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Fylkismaðurinn Hrafn-
kell Helgason mun í nóvember
næstkomandi gangast undir aðgerð
á hné vegna krossbandsslita sem
hafa nú plagað hann í rúmlega tvö
og hálft ár. Hann hefur komið við
sögu í einum leik með Fylki í
sumar en annars ekkert getað leik-
ið vegna meiðslanna.
Hrafnkell sleit krossbönd í hné
í janúar árið 2004 og gekkst fljót-
lega undir aðgerð vegna þess.
„Upphaflega aðgerðin heppnaðist
ekki nógu vel og nú á að reyna að
laga þetta frá grunni. Það var full-
reynt að láta mig spila í þessu
ástandi og það gekk vitanlega ekki
neitt,“ sagði Hrafnkell sem hefur
alla sína tíð leikið með Fylki. Hann
er 28 ára gamall.
Sveinbjörn Brandsson, læknir
íslenska landsliðsins, mun fram-
kvæma aðgerðina. „Hann verður
að slíta þennan eina þráð sem enn
hangir saman og laga svo kross-
böndin.“
Hrafnkell segir þetta ekki ein-
ungis vera spurningu um að koma
knattspyrnuferli hans aftur í gang.
„Þetta er líka spurning um hvað
ég vil fá út úr mínu lífi. Ég vil geta
spriklað í fótbolta og farið í skvass
svo eitthvað sé nefnt. Ef ég vil
geta gert slíka hluti verður ein-
faldlega að laga þetta. Það þýðir
ekki að vera endalaust í skák og
keilu,“ sagði hann í léttum dúr.
Hann segist ætla að halda
áfram knattspyrnuiðkun ef
aðgerðin heppnast vel. „Þetta
verður bara síðan að fá að koma í
ljós.“ - esá
HRAFNKELL HELGASON Hefur lítið getað
leikið með Fylki. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
Meiðslasaga Hrafnkels Helgasonar Fylkismanns heldur áfram:
Hrafnkell þarf aftur í aðgerð
> Teitur vill markvörð frá Fylki
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
hefur Teitur Þórðarson þjálfari KR sett
sig í samband Fylki um að fá annað
hvort Fjalar Þorgeirsson eða Bjarna
Þórð Halldórsson til liðs við KR.
Kristján Finnbogason, markvörður KR
til margra ára, hyggst leggja skóna á
hilluna í haust og vill Teitur fá mann
með reynslu í hans stað. Varamark-
vörður KR, Atli Jónasson, er enn
ungur að árum og hefur lítið fengið
að spreyta sig á milli stanganna með
meistaraflokki félagsins. Fjalar hefur
verið aðalmarkvörður Fylkis í sumar en
Bjarni átti í vetur við meiðsli að stríða
og féll því aftar í goggunarröðina í Árbænum.