Fréttablaðið - 23.09.2006, Síða 90

Fréttablaðið - 23.09.2006, Síða 90
54 23. september 2006 LAUGARDAGUR Tryggðu þér miða á betra verði á landsbankadeildin.is eða ksi.is Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 43 16 09 /2 00 6 Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 43 16 09 /2 00 6 Valur - KR Beiðablik - Keflavík ÍBV - Fylkir Víkingur - ÍA Grindavík - FH lau. 23. sept. kl. 14:00 lau. 23. sept. kl. 14:00 lau. 23. sept. kl. 14:00 lau. 23. sept. kl. 14:00 lau. 23. sept. kl. 14:00 18. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA FÓTBOLTI „Menn eru að reyna að sýna ákveðinn metnað í þessu máli og teljum við okkur ekki vera undir það mikilli tímapressu að ráða nýjan þjálfara. En við ætlum engu að síður að reyna að klára þetta mál um helgina og gera það að vel hugsuðu máli,“ sagði Brynj- ar Jóhannesson, framkvæmda- stjóri rekstrarráðs Fram, í samtali við Fréttablaðið. Stjórn knatt- spyrnudeildarinnar fundar stíft þessa dagana og samkvæmt heim- ildum íþróttadeildar stendur valið á milli Skagamannanna kunnu Guðjóns Þórðarsonar og Ólafs Þórðarsonar. Brynjar vildi ekki staðfesta að aðeins þeir tveir kæmu til greina en hann útilokaði þó þá þjálfara sem eru nú á lausu eftir að hafa hætt með sín lið í sumar. Þetta eru Sigurður Jónsson, Atli Eðvaldsson og Bjarni Jóhannsson. Guðjón hefur undanfarna daga verið mikið orðaður við þjálfara- stöðuna hjá ÍA en það ku vera afar eldfimt mál, þar sem ný stjórn er að taka við knattspyrnudeildinni og því ekkert hægt að gera fyrr en hún tekur við með formlegum hætti. Arnar og Bjarki Gunnlaugs- synir, núverandi þjálfarar liðsins, voru miður ánægðir með að Guð- jón játaði þennan áhuga í samtali við Fréttablaðið um síðustu helgi. Guðjón hefur einnig verið orð- aður við Stjörnuna frá Garðabæ en þar er ný stjórn einnig að taka við og hefur það ekki fengist stað- fest. Ekki náðist í Guðjón í gær. Núverandi þjálfari Stjörnunn- ar, Jörundur Áki Sveinsson, sagði í gær að hann vissi ekki hvort hann yrði beðinn um að halda áfram með liðið og stýra því á næsta tímabili. Það kæmi þó til greina. Ólafur hefur þegar gefið ÍR og Þrótti afsvör um að taka við þjálf- un liðanna. Hann vildi ekkert stað- festa í samtali við blaðamann í gær, hvorki að hann ætti í viðræð- um við Fram eða önnur félög. eirikur.asgeirsson@frettabladid.is ÓLAFUR ÞÓRÐARSON Hefur þjálfað ÍA undanfarin sex tímabil en hætti á miðju tímabili í sumar. Er nú orðaður sterklega við þjálfarastöðuna hjá Fram. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Ólafur eða Guðjón til Fram Stjórn knattspyrnudeildar Fram fundar stíft þessa dagana um ráðningu þjálf- ara meistaraflokks karla. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins stendur valið fyrst og fremst á milli Ólafs Þórðarsonar eða Guðjóns Þórðarsonar. FÓTBOLTI Celestine Babayaro, bakvörður Newcastle United, var í gær dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að slá Dirk Kuyt, sóknarmann Liverpool, í leik liðanna á miðvikudaginn. Dómari leiksins sá ekki brotið en atvikið náðist vel á myndbandi og eftir því dæmdi aganefndin Babayaro í bann. Babayaro mun því missa af leikjum Newcastle gegn Everton, Manchester United og Bolton. Þetta er nú ekki til að hjálpa Newcastle United því liðið hefur verið einstaklega óheppið með meiðsli á tímabilinu. - dsd Celestine Babayaro: Í bann fyrir að slá Dirk Kuyt BABAYARO OG KUYT Úr leik Liverpool og Newcastle. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Enska knattspyrnuliðið Everton ætlar að krefja skoska knattspyrnusambandið um bætur vegna meiðsla James McFadden en hann meiddist í leik með skoska landsliðinu fyrr í þessum mánuði. „Við munum krefjast bóta þegar við sjáum hvenær McFadden hefur náð sér að fullu,“ sagði stjórnarmaður hjá Everton um málið. - dsd Everton: Krefjast bóta fyrir McFadden GOLF Ryder-keppnin í golfi hófst í gær á K-vellinum á Írlandi en þar mætast úrvalslið Bandaríkjanna og Evrópu í golfi. Keppnin var fyrst haldin árið 1927. Evrópu- menn hafa unnið bikarinn eftir- sótta í síðustu tvö skipti og náðu tveggja vinninga forystu í gær. Úrslit í bæði fjórleik og fjórmenn- ingi voru 2,5 vinningar gegn 1,5 vinningum Evrópu í hag. Fyrir fram var búist við að slagviðri og rigning myndi setja strik í reikninginn en annað kom á daginn. Keppnin í gær var eins og hún verður best og er vonandi vís- bending um það sem koma skal um helgina. Sergio Garcia var eini kepp- andi gærdagsins til að vinna báðar sínar viðureignir. Í fjórleiknum fóru hann og landi hans, Jose Maria Olazabal, illa með David Toms og Brett Wetterich og unnu 3/2. Garcia keppti svo með Luke Donald frá Englandi síðar um dag- inn þar sem þeir unnu þá Tiger Woods og Jim Furyk í fjórmenn- ingi. Darren Clarke keppti með Lee Westwood í fjórleik og höfðu þeir betur gegn Phil Mickelson og Chris DiMarco. Eiginkona Clarke féll frá í síðasta mánuði og kom það mörgum á óvart að hann skyldi gefa kost á sér í Evrópuliðið. En hann stóð fyrir sínu í gær og hlaut gríðarlega góðar viðtökur áhorf- enda. „Ég gleymi aldrei móttökunum sem ég fékk á fyrsta teig. Ég felldi næstum tár,“ sagði Clarke. Tom Lehman er fyrirliði banda- ríska liðsins og var vitanlega ekki ánægður með árangur gærdags- ins. „Tiger lék ekki sinn besta leik og Jim spilaði á köflum ágætlega. En aðalatriðið er að þeir náðu vel saman og það var aðalatriðið,“ sagði Lehman. - esá Ryder-keppnin í golfi hófst á Írlandi í gær: Evrópumenn í for- ystu eftir fyrsta dag GARCIA HEITUR Spánverjinn Sergio Garcia vann báðar viðureignir sínar í dag en Jim Furyk var ekki eins ánægður með afrakstur dagsins. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam- bandið lýsti í gær yfir vonbrigð- um sínum með að BBC hefði ekki enn afhent þau sönnunargögn sem það hefur undir höndum varðandi ásakanir sem komu fram í sjónvarpsþætti stöðvarinn- ar á mánudagskvöld um spillingu í ensku knattspyrnunni. „Við höfum sent aðra beiðni um að fá öll gögn afhent,“ stóð í yfirlýs- ingu frá sambandinu. „Því miður hefur ekki verið komið til móts við okkur til þessa.“ Sam Allardyce, stjóri Bolton, er einn þeirra sem eru sakaðir um að hafa þegið mútugreiðslur frá umboðsmönnum knattspyrnu- manna í þættinum en hefur lýst yfir sakleysi sínu. Hann þakkaði í gær fyrir þann stuðning sem honum hefur verið sýndur vegna þessa. Hann er að íhuga málsókn á hendur BBC og hið sama má segja um umboðsmanninn Peter Harrison og Liverpool. - esá Enska knattspyrnusambandið: BBC verður að afhenda gögn KÖRFUBOLTI Íslenska kvennalands- liðið í körfubolta mætir í dag kl. 16 liði Íra í B-deild Evrópu- keppni landsliða. Bæði liðin hafa tapað báðum sínum leikjum í keppninni til þessa en þetta er síðasti landsleikur íslenska liðsins á þessu ári. Leikið verður í Keflavík. Í fyrsta leik íslenska liðsins í riðlinum tapaði liðið naumlega fyrir Hollendingum ytra þar sem stelpurnar þóttu leika góðan körfubolta en um síðustu helgi tapaði Ísland illa fyrir Noregi. - dsd B-deild Evrópukeppninnar: Ísland og Írland mætast í dag
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.