Fréttablaðið - 27.09.2006, Side 51
H A U S
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006
Ú T T E K T
ramma um upplýsingagjöf, markaðinn og
grundvallaratriði ekki breytast svo mjög við
samrunann þar sem viðskiptakerfi og reglur
kauphallaraðila hafi þegar verið samræmd.
Hann segist fagna tækifærinu til að taka þátt
í frekari samþættingu verðbréfamarkaða á
Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum
og segir þróunina bæði skráðum fyrirtækjum
og fjárfestum til góðs; skráð fyrirtæki verði
sýnilegri og fleiri erlendir aðilar taki þátt á
íslenskum markaði og auki þannig seljanleika
bréfa.
„Þarna liggja tækifæri og jafnframt ljóst
að auðveldara ætti að vera að fá erlenda
greiningaraðila til að fjalla um íslensk fyrir-
tæki, sem verið hefur erfitt hingað til.“
Þá segir Þórður sóknarfæri felast í því að
auðveldara verði að fá erlenda banka og við-
skiptastofnanir til að eiga viðskipti hér, auk
þess sem kaup íslenskra fjárfesta erlendis
verði auðveldari. Í OMX samstarfinu felst
enda aðgangur að sameiginlegu neti miðlara
sem felur í sér möguleika á fleiri fjaraðilum.
Þá skiptir einnig máli samhæfing á reglum og
skráningarkröfum þegar samstarfinu vindur
fram. Verðbréfaskráning Íslands starfar enda
áfram náið með Kauphöllinni til að auðvelda
sameiginlega vöruþróun og draga úr rekstr-
arkostnaði. Sameiningin er þannig sögð munu
styðja bæði OMX og Kauphöllina í þeirri við-
leitni að samþætta norræna greiðslumiðlun
og uppgjör.
LENGI VERIÐ ÁHUGI Á OMX
Þórður segir helsta áhyggjuefnið hafa verið
hvernig smærri fyrirtækjum myndi reiða
af og segir þau þurfa að huga vel að sínum
málum. „Ég held hins vegar að þau þurfi
ekki að týnast í fjöldanum þótt auðvitað sé
það dálítið undir þeim sjálfum komið,“ segir
hann en fyrirtæki eru flokkuð eftir stærð í
þrjá flokka.
„Þau fara á lista sem mjög margir horfa á,
en hann er auðvitað langur. Þess vegna þurfa
þau að hafa fyrir því að vekja á sér athygli.
Þetta er því ákveðin áskorun fyrir þau, en
alls ekki hægt að gefa sér að lífið verði þeim
erfiðara, heldur tel ég þvert á móti, ef þau
taka vel á sínum málum, að þarna séu aukin
tækifæri fyrir þau líka.“ Þórður segir alveg
ljóst að stærri fyrirtækin sem skráð eru í
Kauphöllina hafi um nokkurt skeið verið
áhugasöm um að Kauphöllin myndi sameinast
OMX. „Og kannski ekki nema von því senni-
lega fara sex eða sjö fyrirtæki inn í flokk
stórra fyrirtækja á Norðurlöndunum og af
því er augljóslega mikill ávinningur fyrir
þau og gefur þeim mjög góða viðspyrnu til að
koma sér á framfæri á erlendum mörkuðum,
Norðurlöndum og víðar.“
Friðrik Jóhannsson, stjórnarformaður
Kauphallar Íslands og forstjóri Straums-
Burðaráss fjárfestingabanka, segir ljóst að
með sameiningunni aukist sýnileiki fyrir-
tækja og möguleikar á að fá til liðs við
sig erlenda fjárfesta. Sömuleiðis segir hann
hugsanlegt að ákveðin tækifæri felist í því
fyrir stærstu fyrirtækin að komast inn í vísi-
tölur OMX, því þar fjárfesti gjarnan stórir
sjóðir sem ella hefðu ekki keypt í þessum fyr-
irtækjum. „Ég lít á þetta sem mikið framfara-
mál fyrir skráð félög,“ segir hann, en uppi
hafa verið vangaveltur um að stærstu félögin
myndu jafnvel færa skráningu sína annað
verði ekki af auknu samstarfi. „Þetta styrkir
félögin og viðskipti með hlutabréfin.“
RÉTT TÍMASETNING SAMRUNA
Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings banka
á Íslandi, stærsta fyrirtækis Kauphallar
Íslands, segir samrunann við OMX afar
jákvæða frétt fyrir innlendan fjármálamark-
að í heild sem haft geti víðtæk áhrif til hins
betra. „Ef við hugsum um skráð félög og
ekki síður fjárfestana, þá eru menn allt í
einu orðnir hluti af mjög stórum norrænum
fjármálamarkaði í kauphöll sem orðin er nafn
í þessum kauphallarheimi með stór nöfn inn-
anborðs. Allt í einu, með þessari einu aðgerð,
er því kominn bæði aukinn sýnileiki og selj-
anleiki, nokkuð sem menn hafa árum saman
verið að reyna að koma á.“
Ingólfur segir að til viðbótar hafi fyrirtæk-
in, eftir því hvar þau lendi í atvinnugreina-
og stærðarflokkun, möguleika á að komast
inn í vísitölur sem OMX stendur að án þess
að missa sérkenni
h e i m a m a r k a ð a r-
ins. Þá gerist einn-
ig um leið og fyr-
irtæki lenda inni í
þessum vísitölum að
erlendir greiningar-
aðilar taka að fjalla
um þau, nokkuð
sem sáralítið hefur
verið um til þessa.
Sömuleiðis ýtir sam-
ræming sem í sam-
starfi felst undir
fjárfestingar milli
landa, enda er rutt
úr vegi tæknihindr-
unum sem annars
geta byggst upp
milli landa í ólíkum
viðskiptakerfum.
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri
Landsbankans, segir bankann hafa litið svo
á að sameiningin við OMX geti falið í sér
tækifæri með auknum sýnileika á stórum
markaði og það eigi í raun við um öll fyrir-
tækin sem skráð séu í Kauphöllina hér. „Svo
virðist líka tilhneigingin í þá átt að við förum
ekki bara þarna inn heldur gæti OMX jafnvel
orðið hluti af stærri heild. Þá er betra að vera
kominn inn í þetta fremur en ætla að koma
eftir á,“ segir hann og telur jafnvel að stærri
kauphöll, með OMX innanborðs, hefði haft
takmarkaðan áhuga á að taka inn Kauphöll
Íslands. „Við lítum því svo á að sameiningin
nú sé mjög jákvæð.“
F É L Ö G Í O M X S A M S T Æ Ð U N N I
O G K A U P H Ö L L Í S L A N D S *
Nafn félags Upprunaland Krónur
1 Nokia Oyj Finnland 5.623.646
2 Ericsson Svíþjóð 4.007.058
3 AP Moller Mærsk Danmörk 2.581.962
4 Nordea Bank Svíþjóð 2.541.520
5 Hennes & Mauritz AB Svíþjóð 2.363.795
6 Teliasonera Ab Svíþjóð 2.131.218
7 Novo Nordisk A/S Danmörk 1.841.735
8 Volvo AB Svíþjóð 1.796.592
9 Danske Bank A/S Danmörk 1.783.465
10 Fortum Corporation Finnland 1.606.100
11 S E Banken Svíþjóð 1.339.050
12 Svenska Handelsbanken AB Svíþjóð 1.280.834
13 Investor AB Svíþjóð 1.165.464
14 Swedbank AB Svíþjóð 1.123.124
15 Atlas Copco AB Svíþjóð 1.113.266
16 Sandvik AB Svíþjóð 957.373
17 Scania AB Svíþjóð 890.892
18 UPM Kymmene Oyj Finnland 879.185
19 Stora Enso Oyj Finnland 852.777
20 Sampo Oyj Finnland 825.982
21 Sca Sv Cellulosa Svíþjóð 749.079
22 Kaupthing Bank Ísland 564.205
23 Neste Oil Oyj Finnland 512.324
24 Skanska AB Svíþjóð 511.303
25 TDC A/S Danmörk 507.178
26 Skandia Forsakring Svíþjóð 498.109
27 SKF AB Svíþjóð 482.052
28 Assa Abloy AB Svíþjóð 474.285
29 Securitas AB Svíþjóð 466.028
30 Carlsberg A/S Danmörk 429.840
31 Kone Oyj Finnland 418.761
32 Industrivarden Svíþjóð 411.583
33 Boliden AB Svíþjóð 390.659
34 Vestas Wind Systems A/S Danmörk 371.355
35 Metso Oyj Finnland 366.537
36 Electrolux AB Svíþjóð 360.533
37 Lundbeck Danmörk 360.510
38 Ssab Svenskt Stal Svíþjóð 354.660
39 William Demant Holding A/S Danmörk 350.979
40 Swedish Match AB Svíþjóð 350.750
41 Sanoma Wsoy Finnland 332.666
42 Tele2 Ab Svíþjóð 321.645
43 Outokumpu Oyj Finnland 318.204
44 Autoliv Svíþjóð 311.734
45 Novozymes A/S Danmörk 305.582
46 Trygvesta AS Danmörk 288.513
47 Glitnir banki hf. Ísland 288.149
48 Landsbanki islands hf Ísland 286.538
49 Danisco A/S Danmörk 285.227
50 Kesko Oyj Finnland 279.244
* Raðað eftir markaðsvirði í milljörðum íslenskra króna. Miðað er
við gengi krónunnar og skráningu félaganna 22. september 2006
Orðrómur var uppi um miðjan mánuð-
inn að NASDAQ-markaðurinn
í Bandaríkjunum hygðist
taka yfir OMX. Á þeim
tíma sagði Þórður
Friðjónsson, forstjóri
Kauphal lar innar,
að sameining við
báða markaðina
væri góður kostur.
NASDAQ á þegar
fjórðungshlut í LSE,
kauphöll Lundúna í
Bretlandi. Síðustu vikur og misseri
hafa verið nokkuð miklar vangavelt-
ur um frekari samruna kauphalla
eða yfirtökur og jafnvel ekki talið
seinna vænna fyrir Kauphöll Íslands
að ganga inn í samstarf, áður en
kauphallir yrðu svo stórar að
takmarkaður áhugi yrði fyrir
því að taka inn dvergkaup-
höll á borð við mark-
aðinn hér.
Ekki eru þó allir
á einu máli um væn-
leika þess fyrir smærri
kauphallir að ganga inn í
stærri. Þannig höfðu nýver-
ið á ráðstefnu Sambands
alþjóðafjárfesta í Varsjá í
Póllandi forsvarsmenn
bæði Kauphallarinnar í
Varsjá og OMX uppi nokkur varn-
aðarorð um möguleikann á samruna
markaða á heimsvísu.
Þannig er mögulegur samruni
risakauphalla á borð við NYSE
(Kauphöllin í New York) og Euronext,
eða Nasdaq og LSE, kauphallarinnar
í Lundúnum, sagður valda smærri
kauphöllum nokkrum áhyggjum.
Í IR Magazine er haft eftir Henri
Bergström, yfirmanni hjá OMX, að
markaðir séu ekki nógu langt komnir
til að geta starfað á hnattrænum
skala, auk þess sem ólíkt regluverk og
tæknimál standi í vegi fyrir svo víð-
tækum samruna. Ludwik Sobolewski,
forstjóri Varsjárkauphallarinnar,
sagðist einnig óttast að smærri kaup-
hallir yrðu hornreka í samruna á
heimsvísu og ekki væri séð fyrir
endann á slíkri þróun.
Efasemdir um enn víðtækari samruna
KAUPHÖLL ÍSLANDS Um áramót er stefnt að því að Kauphöllin taki
að starfa innan OMX samstarfsins. MYND/GVA
KAUPHÖLLIN Í KAUPMANNAHÖFN Búast má við að Kauphöll
Íslands fái um áramót merki OMX sett upp við innganginn, líkt og sjá
má við inngang Kauphallarinnar í Kaupmannahöfn.
MYND/OMX KAUPMANNAHÖFN
Búist er við því að sameining OMX og
Kauphallar Íslands auki hraða framþróun-
ar á Virðisbrævamarkaði Føroya eða VMF,
sem Kauphöll Íslands rekur. Þá er talið í
frétt Seðlabanka Færeyja um kaup OMX á
Kauphöllinni að þróunin verði markaðnum í
Færeyjum sérlega hagfelld. Bent er á að bréf
VMF séu skráð í dönskum krónum og sem
slík verði þau sérlega áhugaverð fyrir danska
fjárfesta, en eftir samrunann við OMX fái
þeir, rétt eins og allir aðrir á OMX markaðn-
um, beinan aðgang að fyrirtækjunum sem
skráð séu á VMF.
Sameiningin hefur
áhrif í Færeyjum