Fréttablaðið - 27.09.2006, Page 69
MIÐVIKUDAGUR 27. september 2006 21
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.275 +0,60% Fjöldi viðskipta: 568
Velta: 7.167 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 67,20 +0,00% ... Alfesca 5,09 +0,79% ... Atlantic
Petroleum 580,00 +0,69% ... Atorka 6,38 +0,47% ... Avion 29,10 +0,00% ... Bakkavör 58,30
-0,17% ... Dagsbrún 4,67 +4,71% ... FL Group 23,40 +3,08% ... Glitnir 20,10 +0,00% ... KB
banki 846,00 -0,35% ... Landsbankinn 26,90 +3,46% ... Marel 78,50 +0,00% ... Mosaic Fas-
hions 17,90 +1,13% ... Straumur-Burðarás 17,40 +1,16% ... Össur 127,00 +1,60%
MESTA HÆKKUN
Dagsbrún +4,71%
Landsb. +3,46%
FL Group +3,08%
MESTA LÆKKUN
KB banki -0,35%
Bakkavör -0,17%
Umsjón: nánar á visir.is
Stýrihópur, sem félagsmálaráð-
herra setti á fót í febrúar á þessu
ári og var falið að efna til víðtæks
samráðs um framtíðarstefnumót-
un um hlutverk og aðkomu stjórn-
valda að íbúðalánamarkaðnum,
mælir með stofnun nýs heildsölu-
banka.
Hópurinn leitaði samráðs við
yfir 20 hagsmunaaðila og fyrirtæki
og hefur kynnt ríkisstjórninni til-
lögur sínar auk athugasemda Sam-
taka banka og verðbréfafyrirtækja
(SBV). Þar ber nokkuð í
milli því SBV telur að
heildsölusjóður ætti að
vera í sameiginlegri
eigu Íbúðalánasjóðs,
banka og sparisjóða. Þá
eru samtökin sögð andvíg því að
sjóðurinn hafi félagslegar kvaðir,
auk þess sem þau vildu fara aðrar
leiðir í útfærslu heildsöluleiðarinn-
ar þar sem bankar og sparisjóðir
hefðu meira sjálfræði en tillögur
hópsins fela í sér.
Í niðurstöðu stýrihópsins segir
að hann hafi lagt áherslu á nýja
heildsöluleið, ef af verði, sem byggi
á gagnsæi í verðlagningu og að
samningssamband lánssamninga
verði milli heildsölubankans og lán-
taka líkt og tíðkist erlendis. Slíkt
kerfi sé mikið hagsmunamál neyt-
enda og tryggi skilvirkni í fjár-
mögnun og bestu fáanlegu kjör.
Þá segir enn fremur að
allir aðilar sem stýrihópur-
inn hafi rætt við hafi verið
sammála um mikilvægi
þess að almenn löggjöf
yrði sett um sérvarin
skuldabréf, sem geti skilað
sambærilegum útlánakjörum og
Íbúðalánasjóður býður í dag. Slíkt
myndi auðvelda fjármögnun íbúða-
lána og gera hana hagkvæmari. Þá
ætti nýr heildsölubanki ekki að
njóta neinna samkeppnishamlandi
sérréttinda, að því er segir í tillög-
um hópsins.
„Þær tillögur sem hópurinn
hefur sett fram byggja á þeim fyr-
irmyndum sem vel hafa gefist í
nágrannalöndum okkar áratugum
saman. Ef vel tekst til við uppbygg-
ingu fjármögnunarkerfis sem
þessa gæti það verið vísir að nýrri
fjármögnunarleið fyrir Íbúðalána-
sjóð þar sem unnt væri að afla fjár
til íbúðalána án ríkisábyrgðar með
skilvirkum hætti og á hagstæðum
kjörum,“ segir stýrihópurinn.
olikr@frettabladid.is
HÖFÐABORG Íbúðalánasjóður er með höfuðstöðvar sínar í Höfðaborg, Borgartúni
21 í Reykjavík, ásamt fjölda annarra stofnana. Stýrihópur sem fjalla átti um framtíð
sjóðsins hefur lokið störfum. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Stýrihópur leggur til stofnun heildsölubanka
Athugasemdir Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja kalla á pólitíska ákvarðanatöku segir hópurinn.
Andrew Fastow, fyrrum fjármála-
stjóri bandaríska orkurisans Enron,
hlaut sex ára fangelsisdóm vegna
aðildar sinnar að fjár- og
bókhaldssvikum, sem leiddu til
gjaldþrots fyrirtæksins í lok árs
2001, í Houston í Texas í
Bandaríkjunum í gær.
Búist var við allt að tíu ára fang-
elsisdómi. Fastow viðurkenndi
aðild að svikamálinu fyrir tveimur
og hálfu ári ásamt þeim Kenneth
Lay, fyrrum forstjóra Enron, og
Jeff Skilling, eins af æðstu yfir-
mönnum orkurisans. Lay lést í byrj-
un júlí en dómur fellur í máli Skill-
ings í næsta mánuði og á hann yfir
höfði sér áratuga fangelsisvist.
Fastow var lykilvitni í réttarhöld-
um í máli tvímenninganna.
Andew Fastow var í upphafi
ákærður fyrir bókhaldssvik, inn-
herjasvik og peningaþvætti. Hann
gekkst við tveimur ákæruliðum um
aðild að bókhaldssvikum sem fólu í
sér að skuldir Enron voru faldar
með það fyrir augum að láta sem
fyrirtækið sýndi hagnað í stað taps.
Hann auðgaðist verulega við sölu á
bréfum sínum í félaginu en var
dæmdur til að greiða til baka 30
milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði
rúmlega 2.100 milljarðar íslenskra
króna, í reiðufé og eignum. - jab
Fjármálastjóri Enron í steininn
Norski hlutabréfamarkaðurinn
hefur ekki átt sjö dagana sæla
eftir að olíuverð tók að lækka en
markaðurinn er mjög háður því og
því oft kallaður Olíukauphöllin.
Á mánudaginn lækkaði mark-
aðsvirði kauphallarfélaga í Osló
um sex hundruð milljarða króna
þegar aðalvísitalan féll um 3,44
prósent. Frá því að hún náði hæsta
gildi frá upphafi í maí nemur
lækkun hennar um fimmtán pró-
sentum. Norski markaðurinn rétti
vel við sér í gær þegar olíuverð
hækkaði á nýjan leik.
En söluþrýstingur á félögum,
sem tengjast olíugeiranum, hefur
einnig smitast til annars konar
fyrirtækja. Eitt þeirra félaga sem
hefur fallið hvað mest að
undanförnu er Opera Software
sem Íslendingurinn Jón S. von
Tetzchner stýrir. Á einum mánuði
hefur gengi hlutabréfa Operu
lækkað um fjörutíu prósent. - eþa
Fall í olíukaup-
höllinni
ANDEW FASTOW Fyrrum fjármálastjóri
bandaríska orkurisans Enron er hann
kom til dómshússins í Houston í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
4. bekkinga
Teiknisamkeppni
– 27. september 2006
7. alfljó›legi