Fréttablaðið - 30.12.2006, Page 36
Hvað gerist þegar góður tor-
færubíll er hækkaður upp og
settur á stærri dekk? Svarið er
einfalt: Góður verður betri.
Land Rover 3 var afar vel tekið er
hann kom á markað árið 2004.
Hann hlaut tugi verðlauna og við-
urkenninga og var meðal annars
valinn bíll ársins af hinu virta bíla-
tímariti WhatCar?
Discovery er vel heppnaður að
nær öllu leyti. Útlitið er einstakt
og ótrúlegt hvernig Land Rover
komst upp með að nota allar þess-
ar beinu línur og kubbaform og
gera heildstætt, sérstakt og kröft-
ugt útlit. Hæfilegur munaður ligg-
ur í innréttingum og sætum og er
bíllinn mjög rúmgóður, hvort sem
horft er til framsæta eða aftur-
sæta.
Helsti kostur Discovery liggur
hins vegar ekki í útliti eða þæg-
indum, þótt nóg sé af þeim. Hann
liggur í hversu aðgengilegur hann
er hverjum sem upp í hann sest.
Gildir þá einu hvort um sé að ræða
reyndar háfjallageitur eða villu-
ráfandi miðbæjarrottur. Bíllinn er
furðu léttur í meðförum og þökk
sé Terrain Response kerfinu getur
hver sem er hætt sér í torfærur og
treyst á bílinn.
Terrain Response er í grunninn
einföld stjórnun á flóknum drif-
búnaði. Kerfið gefur manni kost á
að hækka og lækka bílinn, skipta
milli háa og lága drifs, og velja
nokkrar mismunandi stillingar
eftir aðstæðum. Þetta er gert með
einum takka og það besta við kerf-
ið er að öfugt við marga flókna
hluti sem gerðir eru einfaldir, þá
virkar það.
Hægt er að fá Discovery með
tveimur breytingarpökkum. Ann-
ars vegar 32“ breytingapakka, en
þá er undirvagninn hækkaður og
32“ dekk sett undir bílinn, og hins-
vegar G4 breytingapakka. Í G4 er
innifalin 32“ breyting, langbogar
og þverbogar, dráttarbeisli, kastar-
ar, og motta í skott. Pakkinn kostar
390.000 þúsund og er hann fáanleg-
ur fyrir allar týpur Discovery.
Það er kannski óþarfi að segja
það að með breytingunum er bíll-
inn orðinn enn hæfari í torfærurn-
ar. Að sama skapi missir hann
hluta af léttleikanum og verður
erfiðari er nálgast löglegan
hámarkshraða. Þetta er einfald-
lega spurning um hvernig maður
vill nota bílinn, hvort hann sé
keyptur fyrir lúxusinn eða tor-
færuhæfileikana.
Þegar öllu er á botninn hvolft
er Discovery á malbiki eins og
klettaklifrari í skrifstofustarfi,
hann dauðlangar að komast á fjöll
því þar er hann á heimavelli.
Góður verður betri