Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.02.2007, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 27.02.2007, Qupperneq 20
Ég er 45 ára kona í þeirri erfiðu stöðu í mínu hjónabandi að allt hjónalíf okkar á milli er liðið undir lok. Þá á ég við að við höfum ekki sofið saman eða deilt rúmi í næstum því 2 ár, við förum ekk- ert saman, ekki heldur í ferðalög eða nein frí. Við búum jú saman og gengur ágætlega með dagleg- an rekstur á heimilinu og uppeldi barnanna okkar en þess utan virðist allt kólnað á milli okkar. Málið er að hvorugu okkar virð- ist líða mjög illa með þetta. Það gerðist ekkert sérstakt á milli okkar sem getur skýrt hvernig komið er heldur hefur þetta bara dofnað svona smátt og smátt og nú er allt orðið kalt. Ég hef stung- ið upp á því að við færum í hjóna- ráðgjöf en það vill hann alls ekki og segist ekki hafa neinn áhuga á því. Hvað segið þið sem hafið unnið með fólki í vanda, hversu lengi getur svona ástand staðið yfir áður en annar aðilinn eða báðir springa? Svo er eitt líka farið að naga mig svolítið og það er hvort það sé möguleiki að karl- maður með ágætlega fríska kyn- hvöt lifi án kynlífs í 2 ár án þess að vera farinn að líta í kringum sig? Einhvern veginn held ég að konur eigi auðveldara með að loka á kynlíf yfir ákveðinn tíma. Hvað á ég að gera, er ekki betra að ljúka svona sambandi ef við treystum okkur ekki til að endur- lífga það sem við áttum áður? Sæl Af lýsingu þinni að dæma mætti ætla að langur tími sé liðinn frá því að þið hjónin fóruð að fjar- lægjast hvort annað og nú er svo komið að þið virðist nánast lifa aðskildu lífi fyrir utan uppeldi barna og rekstur heimilis. Að mörgu leyti er fremur sérstakt að þið virðist sætta ykkur við þetta ástand, en aftur á móti getur það verið vel skiljanlegt þar sem tilfinningar ykkar gagn- vart hvort öðru hafa dofnað yfir lengri tíma á þann hátt sem þú lýsir. Oft er mjög erfitt að snúa ferlinu við þegar svona langt er komið, það krefst mikils vilja og áhuga af beggja hálfu, en eftir því sem þú segir er sá áhugi ekki endilega til staðar hjá eiginmanni þínum. Það sem ég velti fyrir mér er hvort kuldinn milli ykkar sé algjör, ef svo er væri ráð hjá ykkur að setjast niður, annað- hvort bara þið tvö eða með ein- hverjum ráðgjafa, og ræða hvern- ig þið viljið að framtíð ykkar líti út. Geta báðir aðilar sætt sig við að búa saman og reka saman heimili án þess að lifa eðlilegu hjónalífi og finna fyrir þeim til- finningum sem fylgja þegar um ástarsamband er að ræða? Þegar ástin er til staðar er yfirleitt löngun hjá báðum aðil- um að lifa kynlífi með maka sínum, löngunin getur verið mis- munandi mikil eftir aðstæðum en þó er eðlilegt að hún komi upp þegar aðstæður eru ákjósanleg- ar. Mikil streita og þreyta getur minnkað löngun í að stunda kyn- líf með makanum, þetta getur átt við bæði karlmenn og konur, en þegar fólki líður vel blómstrar yfirleitt kynlífslöngunin ef djúp ást er milli tveggja einstaklinga. Aftur á móti er það iðulega þannig að ef ástin er kulnuð milli hjóna er heldur ekki mikil kynlífslöng- un til staðar í garð makans, þetta þarf þó ekkert endilega að þýða að viðkomandi sé farinn að líta í kringum sig heldur er það mjög einstaklingsbundið. Ég held að það mikilvægasta í stöðu ykkar nú væri að leita ykkur ráðgjafar til þess að átta ykkur á hvert þið viljið stefna, hvort sem það er að reyna að laga ástandið eða að fara hvort í sína áttina. Góð hjóna- bandsráðgjöf er nýtileg til svo margs, þar á meðal til að fá góða ráðgjöf um hvernig er best að haga sér gagnvart börnunum ef fólk ákveður að best sé að leiðir skilji. Klerkakeppnin í knattspyrnu er hafin í Vatíkaninu. Fyrsti leikurinn var frekar grófur. Áhorfendur kalla að guðsmóðirin vilji mörk. Margir laga prests- kragann svo ópin heyrist betur, og einn og einn lætur hempuna ekki aftra sér í því að lemja trommur af miklum móð. Knattspyrna er trúarbrögð og þessir menn eru sérfræðingar í þeim. Boltinn er farinn að rúlla í Vat- íkaninu þar sem klerkakeppnin hófst um helgina. Þar keppa 16 lið frá hinum ýmsu trúarstofnunum, kirkjum, háskólum, söfnuðum og einfaldlega þeim sem vilja vera með. Þátttaka er ekki einskorðuð við þjóðerni og sameinast allar þjóðir heims í einu markmiði: að koma tuðrunni yfir línuna. Fyrsti leikurinn var á milli tveggja prestaskóla. Annar þeirra tefldi fram blönduðu liði með spil- urum frá þremur heimsálfum, hitt liðið var skipað Brasilíumönnum. Úrslitin komu á óvart, því Brasilíumennirnir töpuðu 6-0. Þrátt fyrir bón Pio Laghi kardín- ála og dómara leiksins að leikur- inn yrði prúðmannlega leikinn var hart tekið á því og fyrsta markið kom úr vítaspyrnu. Leiknum lauk samt sem áður með faðmlögum og vinahótum, enda markmið mótsins að sýna fram á að hægt sé að sameinast í leik þrátt fyrir að tungumála- örðugleikar, himinn og haf skilji leikmenn að. Og hvar er betra að sýna fram á það en á iðagrænum knattspyrnuvelli í bakgarði Guðs undir hvelfingu Péturskirkjunn- ar? Guðdómleg knattspyrna SÓMABAKKAR Nánari uppl‡singar á somi.is *Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr. PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.