Fréttablaðið - 27.02.2007, Page 54

Fréttablaðið - 27.02.2007, Page 54
Stjörnurnar skinu skært í Kodak-höllinni á sunnu- dagskvöldið þegar Óskars- verðlaunin voru afhent í 79. sinn. Fátt kom á óvart þegar umslögin voru opnuð. Ellen DeGeneres uppskar mikil hlátrasköll þegar hún sagði þetta vera kvöldið sem öllu máli skipti fyrir gestina. „Annað hvort sláið þið í gegn eða verðið að engu,“ sagði DeGeneres. Þessi gamla stjarna úr Ellen-sjónvarpsþáttun- um fór á kostum og þótti ná upp mjög afslöppuðu andrúmslofti í höllinni. Lítið var um pólítískar yfirlýsingar á hátíðinni að undan- skildum Al Gore en myndin Óþægilegur sannleikur var kjörin besta heimildarmyndin. Hóf Gore ræðu sína á orðunum „My Fellow Americans“ sem jafnan eru upp- hafsorðin í ávarpi Bandaríkja- forseta. Martin Scorsese stóð loksins uppi sem sigurvegari eftir fimm tilraunir. Hann var útnefndur besti leikstjórinn og kvikmynd hans, The Departed, hlaut Óskar- inn sem besta kvikmyndin. Scor- sese var fyrst tilnefndur fyrir Raging Bull árið 1981 og þeir voru ófáir sem töldu að þetta yrði árið hans. „Er hægt að ganga úr skugga um að þetta sé rétt nafn í umslaginu?“ spurði Scorsese þegar hann tók við styttunni góðu. „Margir, jafnvel ókunnugt fólk, hafa komið að máli við mig og sagt að ég ætti að fá þessi verð- laun,“ bætti hann við. The Depart- ed hlaut alls fjórar styttur, þar á meðal fyrir besta handritið byggt á áður birtu efni. Alan Arkin skákaði Eddie Murphy sem besti karlleikari í stoðhlutverki í Little Miss Sunshine en flestir höfðu veðjað á Murphy eftir velgengni hans og Dreamgirls á Golden Globe. Aðrir stórir flokkar fóru nokkuð eftir bókinni, Helen Mirren þótti best sem Elísabet Englandsdrottning í The Queen, Forest Whitaker stóð uppi sem sigurvegari fyrir leik sinn í The Last King of Scotland og Jennifer Hudson hlaut styttuna góðu fyrir túlkun sína á Effie White í Draumastúlkunum. Reynd- ar kom þýska myndin Das Leben der Anderen skemmtilega á óvart þegar hún var valin besta erlenda myndin en fram að því hafði El Laberinto del Fauno eða Pan‘s Labyrinth sópað til sín verðlaun- um í fjölda tæknilegra flokka. Föt frá danska merkinu Munthe plus Simonsen eru seld um heim allan. Síðastliðið fimmtudags- kvöld var opnuð búð þar sem ein- göngu er seldur klæðnaður frá þessum verðlaunuðu hönnuðum á Vatnsstígnum í Reykjavík. Að sögn Dagmarar Unu Ólafsdóttur, sem rekur verslunina, höfða flík- urnar til flottra kvenna á öllum aldri. Í opnunarpartíinu á fimmtu- daginn voru slíkar konur á hverju strái, og ekki annað að sjá en að þeim hafi litist vel á varninginn. Munthe plus Simonsen á Íslandi Hjartaknúsarinn Jude Law er ekki allur þar sem hann er séður. Eins og kom fram í Fréttablaðinu og síðar The Sun var Law sagður heill- aður af íslensku þjóðinni og þá ekki síst X-Factor kynninum Höllu Vil- hjálmsdóttur. Law er staddur í Los Angeles um þessar mundir og virð- ist síður en svo við eina fjölina felldur ef marka má fréttir helgar- innar. Á sunnudaginn greindi breska sunnudagsblaðið News of the World nefnilega frá því að leik- arinn væri kominn með nýja upp á arminn. Sú ku heita Kim Hersov og er að mati viðmælanda News of the World skuggalega lík fyrrum unn- ustu Law, ensku leikkonunni Siennu Miller. Hersov þessi var fyrirsæta en gegnir nú ritstjórastöðu hjá glanstímaritinu Harpers & Queen. News of the World hefur eftir vini Law að Hersov hafi tekist að sameina félagslífið og móðurhlut- verkið en fyrirsætan fyrrverandi er einstæð tveggja barna móðir. „Og Law kann mjög vel að meta það. Ekki skemmir fyrir að hún lítur ekki út fyrir að vera að nálg- ast fertugt,“ bætir vinurinn við. Hersov er góðvinkona fyrirsæt- anna Elle Macpherson og Kate Moss, en svo skemmtilega vill til að Sienna Miller sást einmitt í ástaratlotum við fyrrverandi kær- asta Moss, Jamie Burke, á sólar- strönd í Mexíkó. Með konu í hverri höfn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.