Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 4
www.vg.is
kynntu þér málið á
KRAFTMIKIÐ
SAMFÉLAG
FYRIR ALLA
Fjórar vikur eru þar til
ný lög um reyklausa veitingastaði
og skemmtistaði ganga í gildi. Á
þetta er bent í nýjasta fréttabréfi
Samtaka ferðaþjónustunnar.
Reyklausu tímarnir ganga í garð
1. júní.
„Sumir veitingastaðir eru nú
þegar reyklausir, aðrir með reyk-
lausa matsali en víða verður um
mikla breytingu að ræða, sérstak-
lega á börum og skemmtistöðum.
Almennt hefur verið mjög jákvæð
afstaða veitingastaða til þessara
breytinga,“ segir í fréttabréfinu
þar sem veitingamönnum er bent
á að halda stöðugt að gestum
sínum upplýsingum um að þessi
breyting sé í vændum.
Fjórar vikur í
reykingabannið
Karlmaður um fimmtugt
hefur verið ákærður fyrir að hafa
haft í vörslu sinni mikið magn af
barnaklámi.
Maðurinn var handtekinn í
ágúst á síðasta ári. Lögreglan
gerði upptæk hjá honum turn-
tölvu, fartölvu og tölvutengd gögn.
Í þeim fundust 6.548 ljósmyndir
og 179 hreyfimyndir sem sýna
börn á klámfenginn og kynferðis-
legan hátt.
Embætti ríkissaksóknara höfðar
mál á hendur manninum fyrir
Héraðsdómi Suðurlands. Er þess
krafist að hann verði dæmdur til
refsingar og til að sæta upptöku
tölvubúnaðarins.
Mikið magn
barnakláms
Sveitarstjórnarkosn-
ingarnar í Bretlandi í gær voru að
öllum líkindum síðasta tækifærið
sem breskir kjósendur fá til að
gefa Tony Blair forsætisráðherra
gott spark í afturendann. Almennt
er búist við að hann láti af emb-
ætti í lok næstu viku.
Meðal þeirra sem græða á and-
stöðunni við Blair og Verka-
mannaflokkinn eru þjóðernissinn-
ar í Skotlandi. Þar hefur SNP, sem
er Flokkur skoskra þjóðernis-
sinna, barist fyrir sjálfstæði og
hugsar sér nú gott til glóðarinnar.
Leiðtogi SNP, Alex Salmond, legg-
ur alla áherslu á að flokkurinn fái
nægan styrk á þinginu til að geta
sýnt það næsta kjörtímabilið að
hann sé fær um að stjórna land-
inu.
„Þetta snýst um að sýna hvað
við getum gert í stjórn,“ segir
hann. „Þá getum við, árið 2010,
beðið kjósendur í Skotlandi um
umboð í þjóðaratkvæðagreiðslu
til að taka frekari skref í átt að
sjálfstæði.“
Skoska dagblaðið The Scotsman
birti á miðvikudag skoðanakönn-
un sem spáir SNP sigri, þótt held-
ur hafi fylgi hans minnkað síðan í
síðustu könnun fyrir fimm
vikum.
„Ég held samt ekki að fólki vilji
aðskilnað frá Bretlandi,“ sagði
Mary Smith, 75 ára kona sem alla
ævi hefur stutt sjálfstæðissinna í
Skotlandi. Hún segist halda að
fólk noti þessar kosningar fyrst
og fremst til þess að lýsa áliti sínu
Tony Blair. „Fólk hefur orðið fyrir
vonbrigðum og er búið að fá nóg
af Tony Blair, sem er synd því það
sem hann hefur afrekað, eins og
til dæmis að koma á friði á Norð-
ur-Írlandi og koma á lágmarks-
launum, hefur horfið í skuggann
af Íraksstríðinu.“
Sjálfur hafði Blair hvatt kjós-
endur í Skotlandi til þess að greiða
ekki þjóðernissinnum atkvæði
bara til þess að gefa honum „eitt
spark enn á meðan ég er á leiðinni
út um dyrnar.“
Fyrir Verkamannaflokkinn
yrðu það töluverð tíðindi að annar
stjórnmálaflokkur fengi fleiri
atkvæði í Skotlandi, því þar hefur
flokkurinn fengið flest atkvæði
flokka í öllum kosningum sem
haldnar hafa verið í meira en
hálfa öld.
Það voru þó ekki aðeins félagar
í Verkamannaflokknum sem biðu
spenntir eftir úrslitum kosning-
anna í gær, því kjósendum gafst
um leið í fyrsta sinn tækifæri til
að segja álit sitt á hinni nýju
stefnu Íhaldsflokksins undir for-
ystu Davids Camerons, sem hefur
markvisst unnið að því að gefa
flokknum mýkri ásýnd.
Síðasta tækifærið til
að „sparka í Blair“
Skotar og Walesbúar kusu sér nýtt þing og víða um Bretland var kosið í sveitar-
stjórnir. Verkamannaflokkur Blairs átti í vök að verjast. Í Skotlandi vonast
aðskilnaðarsinnar til þess að boða kosningar árið 2010 um sjálfstæði.
Fræðimannsíbúð í Kaupmannahöfn, tengd
nafni Jóns Sigurðssonar, hefur verið úthlutað frá
september til ágústloka 2008.
Sjö fræðimenn fá afnot af henni, þau Anna Þ.
Þorgrímsdóttir til rannsókna á íslenskum forngripum
í Þjóðminjasafni Danmerkur. Ásmundur G. Vilhjálms-
son til að vinna að riti um skattarétt. Björg Thoraren-
sen til að vinna að rannsókn á mannréttindaákvæðum
íslensku stjórnarskrárinnar. Brynhildur Þórarinsdótt-
ir til að vinna að athugun á notkun barnabóka í dönsk-
um skólum. Jón Þ. Þór til að rannsaka og vinna rit um
ævi Jóns Vigfússonar „Bauka-Jóns“ Hólabiskups.
Oddur Benediktsson til að rannsaka og vinna rit um
sögu tölvuvæðingar á Íslandi og Soffía Auður
Birgisdóttir til að vinna að rannsókn á ævi Guðrúnar
Sveinbjarnardóttur.
Fjórtán sóttu um afnot af íbúðinni. Í úthlutunar-
nefnd sitja Jakob Yngvason prófessor, formaður,
Anna Agnarsdóttir prófessor og Hrafnhildur Stefáns-
dóttir lögfræðingur.
Slökkvilið Akureyrar
hefur sinnt óvenju mörgum
sjúkraflugum undanfarið. Til
dæmis sinnti slökkviliðið sex
sjúkraflugum á einum sólarhring
2. maí.
„Venjulega erum við með svona
tvö sjúkraflug á dag. Það sem af
er þessu ári höfum við sinnt 150
sjúkraflutningum en á sama tíma í
fyrra voru þau 130,“ segir Jóhann
Þór Jónsson varðstjóri hjá
Slökkviliðinu. Ein sjúkraflugvél er
staðsett á Akureyri og sinnir hún
sjúkraflugi á öllu svæðinu frá
Bíldudal í vestri til Hafnar í
Hornafirði í austri. Jón segir að
hingað til hafi náðst að sinna
verkefnum með þessari einu vél
en ekki megi mikið út af bera.
Sex sjúkraflug
á sólarhring