Fréttablaðið - 04.05.2007, Qupperneq 10
Ný hugsun. Nýr lífsstíll.
Nýtt hverfi.
15. maí.
Álverið í Reyðarfirði er
tekið til starfa og kemur rafmagn-
ið úr Kárahnjúkavirkjun. Vatn
knýr þó ekki vélina sem leiðir raf-
magnið til Alcoa, eins og væri
undir eðlilegum kringumstæðum,
heldur er hún knúin áfram af raf-
magni. Áformað er að fram-
kvæmdum við virkjunina ljúki að
mestu í lok ársins og framleiðslan
verði þá komin á fullt.
„Við látum vél eitt snúast án
vatns til þess að vera eins konar
stuðpúði fyrir kerfið fyrir aust-
an,“ segir Sigurður Arnalds, kynn-
ingarstjóri Kárahnjúkavirkjunar.
„Það þýðir að við getum leitt um
hundrað megavött af rafmagni til
Alcoa, sem koma úr landsnetinu.“
Við fulla framleiðslu verða sex
vélar í gangi í stöðvarhúsi virkj-
unarinnar, fimm í gangi að jafnaði
og ein til vara. Samtals verður
orkuframleiðsla vélanna fimm
575 megavött, en álverið á Reyð-
arfirði þarf ein 550 við full
afköst.
Sigurður segir mestu vinnuna
þessa dagana vera frágang neðan-
jarðar og í stöðvarhúsinu. „Þegar
líður á sumarið mun sú staða
koma upp að við bíðum eftir vatn-
inu, en það liggur ekki nákvæm-
lega fyrir hvenær það kemur. Við
ætlum okkur samt að komast í
fullan rekstur í lok þessa árs.“
Auk vinnu í jarðgöngum og
stöðvarhúsi er unnið við frágang
á stóru stíflunni, og mun því ljúka
um mitt sumar. Opnað verður
fyrir umferð almennings um stífl-
una í seinasta lagi um verslunar-
mannahelgina, segir Sigurður.
„Þegar aðalframkvæmdunum
lýkur er einn verkþáttur eftir, en
það er að veita vatninu úr minni
ánni, Jökulsá í Fljótsdal, og veit-
um þar fyrir austan. Við stefnum
að því að ljúka þeim framkvæmd-
um haustið 2008.“
Rafmagn framleitt með rafmagni
Tyrkneska þingið samþykkti í gær að
þingkosningar færu fram hinn 22. júlí næstkom-
andi. Ákveðið var að boða til þeirra nokkrum
mánuðum fyrr en ella til að leysa stjórnarkreppu
sem upp er komin í landinu vegna vaxandi spennu
milli hersins, „varðhunds“ veraldlegra gilda í
tyrkneskum stjórnmálum, og stjórnarflokksins
sem á rætur að rekja til íslamistahreyfingar.
Svo fór að dagsetningin var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum, en áður höfðu talsmenn
stjórnarandstöðunnar, hins veraldlega Lýðveldis-
flokks, lýst efasemdum um að heppilegt væri að
halda kosningar þegar hálf þjóðin er í sumarleyfi
og þar með ólíklegri en ella til að mæta á kjörstað.
Upprunalega stóð til að kosið yrði í nóvember,
þegar fimm ára kjörtímabili þingsins lýkur.
Stjórnarkreppan hófst í síðustu viku er Recep
Tayyip Erdogan forsætisráðherra tilnefndi
Abdullah Gul utanríkisráðherra forsetaefni, en Gul
er náinn bandamaður Erdogans úr hinum íslamsk-
sinnaða Réttlætis- og þróunarflokki. Kjarni
deilunnar snýst um ótta margra við að stjórnar-
flokkurinn kunni að misnota völd sín yfir bæði
þinginu og forsetaembættinu til að grafa undan
veraldlegum grundvelli lýðveldisins.
Karlmaður á fertugs-
aldri hefur verið dæmdur til að
greiða 100 þúsund króna sekt til
ríkissjóðs ella sæta fangelsi í átta
daga vegna líkamsárásar á konu,
sem leiddi meðal annars til þess
að hún handleggsbrotnaði.
Atburðurinn átti sér stað í
sumarbústað í Miðfellslandi við
Þingvallavatn. Manninum var
gert að greiða sakarkostnað, en
bótakröfu konunnar var vísað frá
dómi. Telur dómurinn sannað að
hún hafi verið með ónot og ert
ákærða áður en til átaka milli
þeirra kom svo og að konan hafi
veist að manninum að fyrra
bragði.
Dæmdur fyrir
árás á konu
Verðbólgan síðustu
tólf mánuði hefur lækkað jafnt og
þétt frá ársbyrjun, samkvæmt
vef Hagstofunnar. Verðbólga
mældist 6,9 prósent í janúar, 7,4
prósent í febrúar og 5,9 prósent í
mars. Hún var 5,3 prósent í apríl.
Í tilkynningu kemur fram að
dregið hafi úr verðbólgu síðustu
tvo mánuði, aðallega vegna
lækkunar virðisaukaskatts og
afnáms vörugjalda þann 1. mars
síðastliðinn. Á sama tíma hafi
vísitala neysluverðs án húsnæðis
hækkað um 3,2 prósent.
Hefur lækkað í
5,3 prósent