Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 50
4. MAÍ 2007 FÖSTUDAGUR6 fréttablaðið kópavogur
Talsverðar breytingar standa
nú yfir á Kópavogstúni, þar sem
ráðgert er að rísi íbúðarbyggð
fyrir um 700 íbúa.
„Byggingaframkvæmdir á
Kópavogstúni hófust fyrir jól,
þegar byrjað var á gatnagerð og
undirbúningur hafinn að fyrir-
hugaðri íbúðarbyggð,“ segir
Smári Smárason, skipulagsstjóri
hjá Kópavogsbæ.
Teikningar af flestum einbýlis-
húsum og parhúsum hafa verið
lagðar inn til byggingarfulltrúa
og lóðarhafar þegar farnir að
slá grunnum upp og byggingar-
kranar komnir á svæðið.
Reikna má með að bygginga-
framkvæmdum verði að fullu
lokið á næstu tveimur árum, en
deiliskipulagsvinnu lauk árið
2005.
Gert er ráð fyrir um 210 íbúð-
um á svæðinu fyrir fjórbýli og
sérbýli ásamt 70 þjónustuíbúð-
um sem verða tengdar starfsemi
Sunnuhlíðarsamtakana. Áætlað-
ur íbúafjöldi miðað við þrjá íbúa
í íbúð og 1,5 íbúa í þjónustuíbúð
er samtals um 700 íbúar. Nýting-
arhlutfall, eða byggingarstærð í
fermetrum á móti heildarflatar-
máli lóðar fyrir einstaka reiti, er
ráðgert á bilinu 0,35 til 0,38 fyrir
einbýlishús, 0,46 fyrir parhús og
0,56 fyrir fjölbýlishús.
Gert er ráð fyrir 13 einbýlis-
húsum, 20 íbúðum í parhúsum,
12 íbúðum í fjórbýlishúsum og
152 íbúðum í fjölbýlishúsum.
Að sögn Smára hóf Kópavogs-
bær umræður við ríkið um kaup
á landi á Kópavogstúni árið 2002.
„Upphaflega stóð til að byggja
á 13,6 hekturum að flatarmáli.
Ríkið dró síðan til baka 4,3 hekt-
ara þannig að svæðið kemur til
með að verða 9,3 hektarar að
flatarmáli. Þegar á hólminn var
komið reyndist ríkið ekki tilbúið
að flytja starfsemi sína á tilsett-
um tíma frá stofnunum á svæð-
inu og öðrum byggingum sem
eru á ríkislandi.
Ég er þó ekki í neinum vafa um
að Kópavogsbær fái hektarana
4,3 þegar fram líða stundir. Þetta
verður án efa mjög skemmtilegt
hverfi.“
roald@frettabladid.is
Blönduð íbúðarbyggð reist á Kópavogstúni
Smári Smárason, skipulagsstjóri hjá Kópavogsbæ, segir framkvæmdum vinda vel áfram. Teikningar af
flestum einbýlishúsum og parhúsum hafi verið lagðar inn til byggingarfulltrúa og lóðarhafar þegar farnir
að slá grunnum upp og byggingarkranar komnir á svæðið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hörðum höndum er nú unnið að byggingaframkvæmdum á Kópavogstúni en stefnt er að ljúka þeim á
næstu tveimur árum.
HK hefur verið í mikilli sókn
í handboltanum í vetur, jafnt í
kvenna- sem karlaflokkum. Karla-
liðið hafnaði í öðru sæti í DHL-
deildinni í vetur og kvennaliðið er
að rísa upp aftur eftir nokkurt hlé.
Alexander Arnarsson, fyrr-
verandi leikmaður HK, hefur ný-
verið tekið við formennsku hand-
knattleiksdeildarinnar og segir
góðan gang hafa verið í handbolt-
anum undanfarin ár þó að árang-
urinn hafi látið á sér standa. „Ár-
angurinn í vetur hefur verið mjög
góður og ekki enn útséð um það
hvort við náum bikar,“ segir Alex-
ander og vísar þar til úrslitarimmu
HK gegn Stjörnunni í deildarbikar-
keppninni.
„Það hefur verið mjög gott ungl-
ingastarf hjá okkur undanfarin ár
og nú er kvennaboltinn í mikilli
sókn. Það kom nokkuð myndarlegt
gat í starfsemi kvennaboltans en
það var síðan tekið í gegn og ráðn-
ir mjög góðir þjálfarar, systurnar
Díana og Hafdís Guðjónsdætur,“
segir Alexander og bætir því við
að þær eigi stóran þátt í velgengni
og uppgangi kvennahandboltans
hjá félaginu.
Alexander segir velgengni HK
vera fyrst og fremst góðri stjórn-
un að þakka, hæfum þjálfurum og
fleiru. „Margir góðir hafa verið
fengnir til liðs við okkur en þetta
er góð blanda af reyndum mönnum
og yngri strákum,“ segir hann.
„Við erum stórhuga og viljum
taka þátt í að efla handboltann á
landsvísu og lyfta þessu aðeins upp
aftur. Við erum með traust félag og
traust bæjarfélag á bak við okkur
sem skapar okkur aðstöðu. Svo eru
stórir hlutir fram undan eins og
Evrópukeppnin sem fer af stað í
haust. Við erum bjartsýnir og vilj-
um fyrst og fremst hafa gaman af
þessu,“ segir nýi formaðurinn, Al-
exander. -sig
HK í mikilli sókn
Það eru stórir hlutir fram undan hjá handknattleiksdeild HK en karlaliðið leikur nú í
úrslitum deildarbikarsins við Stjörnuna. Í haust tekur svo Evrópukeppnin við.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004
MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu.
HANN ER GRIMMUR!
MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER
- VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár
- Útvegum notaða skotbómulyftara
- Úrval notaðra lyftara á lager
Fjórhjóladrifinn
Fjórhjólastýrður
Lyftigeta: 3.400 KG
Lyftihæð: 6.050 MM
Gafflar: 1.200 MM
Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ
LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar
án aukins snúningshraða vélar.
SKOTBÓMULYFTARI
PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf.
Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður
Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is