Fréttablaðið - 04.05.2007, Side 78
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Járnfrúin tekur við embætti
„Ég hef dásamlegt útsýni og
vakna oftast það snemma að
ég næ að keyra pínulítið um og
líta í kringum mig meðan bær-
inn sefur enn.“
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Ragnar Stefánsson
áður til heimilis að Hrafnagilsstræti 29,
Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn 20. apríl síðast-
liðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilisins
Hlíðar. Þökkum auðsýnda samúð.
Guð blessi ykkur öll.
Sigfríð Erla Ragnarsdóttir
Jón Þorsteins Ragnarsson Dionisia Cacayuran Bautista
Úlfar Ragnarsson Stefanía Gústafsdóttir
Anna Ragnarsdóttir Ólafur Björnsson
Ragna Ósk Ragnarsdóttir Jóhann Gunnar Jóhannsson
Sigríður Ragnarsdóttir Frosti Frostason
Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir Jón Ingi Sveinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar og bróðir,
Magnús Óli Guðbjargarson
lést miðvikudaginn 2. maí. Jarðarförin auglýst síðar.
Guðbjörg Magnúsdóttir Kristján Már Hauksson
Birta Ósk Kristjánsdóttir
Sigrún Lilja Kristjánsdóttir
Haukur Jarl Kristjánsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Karl Garðar Þórleifsson
tæknifræðingur, Lerkilundi 32, Akureyri,
lést á heimili sínu mánudaginn 30. apríl. Útförin
fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 8. maí
kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans
er bent á Minningarsjóð Heimahlynningar á Akureyri.
Anna Freyja Eðvarðsdóttir
Ólöf Inga Andrésdóttir Birkir Björnsson
Magnús Halldór Karlsson Þórleifur Karl Karlsson
Arnar Freyr, Magnús Ingi og Erna Kristín Birkisbörn.
Elskulegur sonur okkar, bróðir og
barnabarn,
Benedikt Steinþórsson
verður jarðsettur í dag, föstudaginn 4. maí, í
Grafarvogskirkju kl. 13.00. Blóm og kransar vinsam-
lega afþakkaðir en þeim er vilja minnast hans er bent
á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.
Guðrún Björk Benediktsdóttir Hreggviður Þorsteinsson
Steinþór Benediktsson Hildur Guðbjörnsdóttir
Jóna Guðlaugsdóttir Benedikt Ágústsson
Matthildur Guðbrandsdóttir Benedikt Þorvaldsson
systkini og aðrir aðstandendur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
amma og langamma
Sigríður Tryggvadóttir
frá Gröf, Gránufélagsgötu 7, Akureyri
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðju-
daginn 24 apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Regína Ragnarsdóttir
Tryggvi Ragnarsson
Erling Ragnarsson Dagbjört Sigrún Torfadóttir
Örn Ragnarsson Svanhvít Ingjaldsdóttir
Úlfar Ragnarsson
Stefán Ragnarsson
Fríður Jónsdóttir Svanberg Gunnlaugsson
Börkur Ragnarsson
Jóhannes Stefánsson
Anna Ragnarsdóttir
Þröstur Ragnarsson
Anna Tryggvadóttir
ömmu og langömmubörn.
AFMÆLI
Páll Bergþórsson, veðurfræðingur og
fyrrverandi veðurstofustjóri, er sér-
legur verndari Baráttuhóps um betra
veður. „Ég er nú voðalega lélegur skjól-
veggur, en ef menn vilja standa í mínu
skjóli er það guðvelkomið,“ sagði Páll.
Formlegur stofnfundur hópsins fer
fram í Hæðargarði í Reykjavík í dag.
Nú þegar hafa 21 skráð sig í baráttu-
hópinn, en hugmyndin að samkundunni
kviknaði út frá fyrirlestri Páls í Hæð-
argarði fyrir um mánuði síðan. „Ég var
að tala um mitt áhugamál, sjóinn hérna
norður frá og hvað hann hefur að segja
fyrir heimsbyggðina,“ útskýrði hann.
Hann segir marga eldri borgara deila
áhuga hans á veðri. „Það er svo mikill
áhugi hjá eldra fólki á öllu í náttúrunni,
eða lífinu í sveitinni. Það byggist svo
mikið á veðrinu. Grasið er undirstaða
að öllu saman, það þarf að spretta og til
þess þarf hita og rigningu. Svo vill fólk
ekki hafa mikinn snjó á veturna,“ sagði
Páll.
Hópurinn mun beita sér fyrir bættu
veðri, eins og nafnið gefur til kynna.
„Það má til dæmis rækta skóg í kringum
sig, til að fá skjól. Og svo er að klæða sig,
þá verður veðrið betra líka. Svo þetta er
ekkert hlægilegt,“ sagði Páll. „Veðrið
er það sem við búum við. Það er viðmót
umhverfisins,“ bætti hann við.