Fréttablaðið - 04.05.2007, Side 80
Gegnum árin hefur
maður oft heyrt gagn-
rýnisraddir femín-
ista í garð Barbie-
dúkkunnar. Hafa
þær aðallega sett út
á gríðarlega langa
leggi hennar, sem
vissulega eru úr öllu
samhengi við raun-
veruleikann, og þá staðalímynd í
útliti kvenna, sem hún er sögð við-
halda. Ég er hins vegar á því að
fyrir utan hið afbrigðilega útlit,
þá sé Barbie alls ekki hin versta
fyrirmynd fyrir ungar stúlkur.
Barbie er nefnilega óhrædd við
að taka að sér fjölbreytt verkefni,
hvort sem það er í atvinnulífinu, í
stjórnmálum eða íþróttum og hvar
sem hún kemur lætur hún að sér
kveða. Hún er kona á framabraut
sem veit hvað hún vill og fer alla
leið.
Barbie hefur í gegnum tíðina
gegnt hinum ýmsu störfum. Hún
hefur ferðast um geiminn, verið
tannlæknir, keppt í fjölda íþrótta-
greina, verið slökkviliðskona,
flugmaður, unnið sem hámennt-
aður fornleifafræðingur og jafn-
vel boðið sig fram í forsetakosn-
ingum. Ekki veit ég til þess að
margar leikfangadúkkur eigi jafn
glæsilega ferilskrá. Ég myndi
því telja að hún sé hvatning fyrir
ungar stúlkur til að láta ekkert
stöðva sig.
Því miður er staðan hins vegar
sú að Barbie-dúkkan nýtur nú lít-
illa vinsælda. Undanfarin ár hafa
vinsældir hennar minnkað mikið
og verulega dregið úr úrvali af
Barbie-dúkkum í leikfangaversl-
unum. Svo er komið að í bestu
búðum finnur maður kannski ekki
nema eina gerð af Barbie. Og hver
er ástæðan? Jú, nú vilja flestar
stelpur leika sér að Bratz-dúkk-
unum. Þar held ég að sé komið
gott viðfangsefni fyrir femínista.
Meðan Bratz gerir út á efnislítinn
klæðnað og druslulegt útlit hefur
Barbie alltaf haldið glæsileika
sínum og stöðugt reynt nýja hluti.
Ef ég mun einhvern tímann eign-
ast dóttur mun ég hiklaust gefa
henni Barbie-dúkku og með því
senda henni þau skilaboð að henni
séu allir vegir færir.