Fréttablaðið - 04.05.2007, Síða 84

Fréttablaðið - 04.05.2007, Síða 84
Einhver myndi lýsa sam- bandi bandarísku lista- konunnar Roni Horn við Ísland sem ástarsambandi. Hún kom hingað til lands skömmu eftir nám sitt í myndlist í heimaborg sinni New York og hefur síðan verið hér fastagestur. Landið hefur sest að í verkum hennar af ýmsu tagi, einkum ljós- myndaverkum hennar og sýn hennar á landið sem er reglubund- in og skipuleg í úrvinnslu hefur vafalítið aukið hróður landsins. Heimamönnum kunna að þykja látlausar og ýkjulausar myndir hennar hversdagslegar enda er öll list hennar íhugun um merkingu og mið, hvað er að baki ásýndinni. Roni verður fyrirferðarmikil í menningarlífinu á þessu vori: fram undan er stór sýning á verk- um hennar í Listasafni Íslands sem hefur verið lengi í undirbún- ingi og verður opnuð 10. maí. Nú í vikulokin var lokið frágangi á Vatnasafninu sem hún átti upp- tökin að vestur í Stykkishólmi. Hátt yfir lágreistu þorpinu gnæfir bygging sem til þessa hefur hýst bókasafnið. Húsið hannaði Peter Matull í húsameistaratíð Harðar Bjarnasonar 1958 og reis það á ár- unum eftir það. Á ferðum sínum þar hjá tók Roni eftir bygging- unni. Það var svo 2004 að henni kom í hug að gera húsið að íhug- unarstað og hugmyndin um vatna- safnið varð til. Vatnasafnið er nú orðið að veru- leika með tilstyrk opinberra aðila með stuðningi einkaaðila. Vatnasafnið geymir risastóra innsetningu eftir Roni, minnis- varða um vatnabúskap landsins, eins konar áminningu um hið dýr- mæta efnasamband sem er meiri- hlutinn af okkur. Þá er í húsinu að- staða fyrir gestalistamann og sam- komusalur. Í verkefninu mætast marg- ir kraftar. Djúp virðing og aðdá- un listakonunnar fyrir náttúru Ís- lands, sá alþjóðlegi áhugi sem hefur aukist mjög hin síðari ár á alþjóðlegum vettvangi og vináttu- hópur hennar hér á landi. Það var nokkurt átak fyrir kyrr- látt samfélag í Hólminum að átta sig á hugmynd listakonunnar og urðu nokkrar ýfingar um málið. Með tilstyrk ráðuneyta mennta- mála og samgöngumála, fjárlaga- nefndar Alþingis og Stykkishólms- bæjar var málið í höfn. Hugmynd- ir Roni gerðu ráð fyrir nokkrum endurbótum á húsinu og að auki var verulegur kostnaður við að koma verkinu fyrir. Einkaaðilar hlupu þá undir bagga, FL Group, Olíufélagið og Straumur-Burðar- ás. Að auki komu að verkinu list- vinasamtökin bresku Artangel sem eru búsett í London. Þau hafa um nokkurn tíma verið afar virk í hvers kyns verkefnum á Bret- landseyjum en sækja nú í fyrsta sinn út fyrir eyjarnar og leggja lið á erlendri grund. Þar koma að vel- stæðir einstaklingar og vekur at- hygli að Hreiðar Már Sigurðsson hjá Kaupþingi og Anna Lísa Sigur- jónsdóttir eru í þeim hópi. Vatnasafnið er þannig fyrsta listaverkefnið sem sækir styrk sinn í senn í alþjóðlegt og innlent fjármagn. Þar hafa líka komið við sögu margir innlendir aðilar: Gláma Kím Arkitektar Laugavegi 164 eru ráðgjafar og arkitektar breyting- anna, byggingarverktaki er Skipa- vík í Stykkishólmi, Helgi í Lumex annast lýsingu og fjöldi aðila hefur komið að söfnun vatnsins sem er meginefni verks Roni. Ekki er að efa að Vatnasafnið mun kalla á marga gesti á næstu árum og verða hvati fyrir auk- inn straum innlendra og erlendra gesta í Hólminn. Vefur safnsins er www.libraryofwater.is. á K r i ng l u k r ánn i f r á V e s t m a n n a e y j u m E i n e l s t a og mes t a r o k kh l j óms ve i t l a nd s i n s í k v ö l d o g á morgun laugardag 5. maí E y j a s t uð . . . „ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“ GRETTIR Miðasala 568 8000 www.borgarleikhús.is grettir.blog. is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.