Fréttablaðið - 04.05.2007, Side 102

Fréttablaðið - 04.05.2007, Side 102
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Ég var veik síðast og komst ekki. Þannig að ég er bara búin að sjá tólf sýningar,“ segir söngkonan og pólitíkusinn Heiða sem gjarnan er kennd við Unun. Þegar Frétta- blaðið náði af henni tali var hún stödd með félögum sínum í Vinstri grænum á Hornafirði en fyrir dyrum stóð kosningafundur þar þá um kvöldið. Ekki er ofsagt að segja Heiðu einlægan aðdáanda söngleiksins Abbababb sem sýndur er í Hafn- arfjarðarleikhúsinu um þessar mundir. Hún er búin að sjá tólf sýningar og er hvergi nærri af baki dottin. Hún ætlar að sjá þær fleiri. „Ég reyni að vera á öllum sýn- ingum. Þetta er svo skemmtilegt. Og mannbætandi. Mér líður alltaf svo vel þegar ég kem út af sýn- ingunni.“ Dr. Gunni, vinur Heiðu, er höfundur söngleiksins og Heiða segir þau alveg á sömu línu með það að reyna að gera bara það sem er skemmti- legt. „Þegar maður verð- ur fullorðinn gleym- ast aðalatriðin. Allir eru uppteknir við að græða peninga og svona. Ég hef aldrei verið mikið í því. Og þetta leikrit minnir mig rækilega á að það á bara að gera það sem er skemmtilegt.“ Heiðu finnst ekkert undarlegt við þetta mikla dálæti. Bendir á að þegar kvikmyndin Grease var sýnd voru dæmi um að menn færu á hana tut- tugu sinnum og oftar. Og góðar bækur lesa menn aftur og aftur. Sjálf seg- ist hún til dæmis vera búin að lesa allar Harry Potter- bækurnar sex sinnum. „Það var ekk- ert planað að ég myndi mæta og mæta og hlæja,“ segir Heiða spurð hvort ekki hafi hreinlega komið til tals að borga henni fyrir að mæta og hvetja áhorfendur með einlægum hlátri sínum. „En það eru reyndar hæg heimatökin. Mað- urinn minn er í hljómsveitinni, spilar á gítar, og barnið okkar er á hárréttum aldri, fimm ára, og fjölskyldan er bara í þessu á sunnudögum. Launin mín felast í því að vera minnt á það að lífið á að vera skemmtilegt. Ég er alltaf að draga einhverja með mér og fólk segir alltaf eftir sýning- ar: Jájá, ég skil núna af hverju þú ferð aftur og aftur.“ Sýningum á Abba- babb lýkur síðar í þessum mánuði en Heiða vonar inni- lega að Abba- babb verði tekið upp aftur á næsta leikári. Hún segist ekki alveg vita hvað fjölskyldan muni taka sér fyrir hend- ur á sunnudögum þegar sýningum lýkur. „Við verð- um bara að stofna leynifélag sjálf, maðurinn minn, ég og barn- ið, og rannsaka óleyst mál. Hittast á leikvöllum og svona.“ Svavar Örn Svavarsson, hár- greiðslumeistarinn knái, er geng- inn til liðs við Eurovision-hópinn. Hann er hokinn af reynslu í þess- um fræðum enda í sjötta skipti sem hann heldur út í Eurov- ision. „Þetta er alltaf jafn- mikið stuð og þessi hópur, að öðrum ólöstuðum, er einn sá skemmtilegasti sem ég hef farið með,“ segir Svavar. Hárgreiðslumeistaran- um hefur verið úthlutað verðugt verkefni, að sjá um að rauði makkinn verði á sínum stað sem þjóðin hefur bundið ástfóstri við og vill að verði á sínum stað. „Ég held að fólk þurfi ekki að hafa nein- ar áhyggjur af öðru, Ei- ríkur Hauksson er ekki flottur greiddur,“ segir hann. Svavar Örn segir að ekki komi til greina að breyta stíl Eiríks, Eiríkur Hauksson sé bara Eirík- ur Hauksson og það komi ekki til greina að breyta honum. „Hann er mikil áskorun fyrir hárgreiðslumeistara því hann er með mjög sérstak- an stíl,“ segir Svavar sem tekur skýrt fram að það hafi ekki verið hann sem setti brúnan lit í hárið á rokkaranum fyrir gerð myndbands- ins. En þá saup þjóðin hveljur. „Ég hef aldrei upplifað önnur eins við- brögð. Það kemur ekki til greina að setja lit í hárið á honum, Eiríkur er bara með fallegan hárlit sem hægt er að skerpa á með næringu,“ segir Svavar. Þorir ekki að breyta Eiríki neitt „Ég ók próflaus í þrjú ár áður en ég fékk bílprófið.“ 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI fólkinu á sínum tíma. Vinkonurnar Manuela Ósk Harð- ardóttir, fyrrverandi Ungfrú Ís- land, og Karen Lind Tómasdótt- ir, Ungfrú Suðurnes 2007, standa fyrir uppboði til styrktar Forma, samtökum átröskunarsjúklinga, á bloggsíðu sinni. „Við erum að bjóða upp okkar persónulegu muni, sem við erum annaðhvort hættar að nota eða höfum hrein- lega aldrei notað,“ útskýrði Manu- ela. „Okkur langaði að styrkja stelpurnar í Forma en vissum ekki alveg hvernig við ættum að fara að því. Við ákváðum að prófa þetta,“ bætti hún við. Viðtökurnar urðu betri en þær þorðu að vona. „Við erum mjög þakklátar fyrir hvað fólk er viljugt til að taka þátt í þessu,“ sagði Manuela. Uppboðsmunina má skoða á síð- unni 123.is/mankeiko, og segir Manuela von á fleiri munum innan tíðar. Hún útilokar ekki að Tyson-kjóll- inn svokallaði, sem boxarinn Mike Tyson keypti henni til handa hér um árið, verði boðinn upp. „Ég hef nú ekki hugsað mér að setja hann þarna inn, en ef ég fæ almennilegt boð í hann skal ég alveg láta hann fara, svona til styrktar góðu mál- efni. En það verður að vera svolít- ið ríflegt,“ sagði hún sposk. Að Forma hafi orðið fyrir valinu segir Manuela byggjast á því að þeim Karen finnist nauðsynlegt að efla samtökin. „Við erum meðvit- aðar um pressuna sem er á stelpur á okkar aldri, og yngri. Það þekkja líka allir einhvern með átröskun, þetta er miklu algengara en fólk gerir sér grein fyrir,“ sagði hún. Tyson-kjóllinn falur fyrir rétt verð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.