Fréttablaðið - 16.08.2007, Qupperneq 1
Nýafstaðin tískuvika í Kaupmannahöfn k
athygli í hei i
Afslöppuð
sumartíska
Ljós og læti
í bland
AFMÆLISVEISLA!
OPIÐ TIL 21 Í KVÖLD
Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum • Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars)
SKÓLATÖLVUR VERÐ FRÁ 39.900.-
menningarnóttLaugardaginn 18. ágúst 2007
Skýrar verklagsregl-
ur samgönguráðuneytisins voru
brotnar við kaup og endurnýjun
Grímseyjarferju.
Ragnhildur Hjaltadóttir ráðu-
neytisstjóri upplýsir það í yfirlýs-
ingu.
Í henni segir að verklagsreglurn-
ar kveði á um að gera skuli vandaða
verkefnaáætlun sem innihaldi
meðal annars verklýsingu, tíma- og
kostnaðaráætlun. Jafnframt beri
verkefnisstjóra að upplýsa
ráðuneytisstjóra um gang mála og
fá samþykki fyrir verkefnaáætlun.
„Við framkvæmd þessa máls var
þessum verklagsreglum ekki fylgt.
Tekið verður á því með viðeigandi
hætti og í samræmi við góða
stjórnsýslu,“ segir í yfirlýsingu
ráðuneytisstjórans. Ekki er tilgreint
hvað felst í „viðeigandi hætti.“
Sturla Böðvarsson, fyrrverandi
samgönguráðherra, sagðist í samtali
við Fréttablaðið í gær ekki ætla að
tjá sig um málið að svo stöddu. „Ég
hef viljað gefa eftirmanni mínum
svigrúm til að fara með þetta mál í
þeim farvegi sem hann hefur valið
að gera,“ sagði Sturla. Líklegt væri
að hann greindi frá sínum
sjónarmiðum fyrir vikulok.
„Skólastjórnendur
eru á því að það verði ekki mikið
lengur hundruð eða þúsund bíla-
stæði í borginni fyrir framhalds-
og háskólanemendur sem hægt er
að leggja í ókeypis,“ segir Gísli
Marteinn Baldursson, formaður
umhverfisráðs Reykjavíkurborg-
ar.
Borgaryfirvöld funduðu með
skólastjórnendum framhalds- og
háskóla á höfuðborgarsvæðinu og
kynntu þeim verkefnið „Frítt í
strætó“. Á þeim fundum viðruðu
borgarfulltrúar þann möguleika að
taka upp gjaldskyldu á bílastæðum
við skólana.
„Það töldu allir að sérstaklega
þeir skólar sem væru miðsvæðis
á dýrum lóðum myndu ekki til
framtíðar bjóða upp á tugi eða
hundruð ókeypis bílastæða,“
segir Gísli Marteinn.
Háskólaráð Háskóla Íslands
samþykkti í sumar að taka upp
gjaldskyldu í svokallaðri skeifu
fyrir framan aðalbyggingu skólans.
Ókeypis bílastæði eru þó fáanleg
víða um háskólasvæðið.
Gísli segir að Háskóli Íslands
nýti sér með þessu að strætisvagnar
verði gjaldfrjálsir fyrir nema. „Það
er ekki hægt að rukka fyrir stæðin
án þess að bjóða nemendum upp á
valkost,“ segir Gísli.
„Fulltrúar okkar í háskólaráði
mótmæltu þessu,“ segir Dagný
Ósk Aradóttir, formaður Stúdenta-
ráðs HÍ. „En þetta er mjög lítill
hluti stæðanna og fólk getur nýtt
sér ókeypis strætóferðir.“
„Ég vona að nemendur nýti sér
ókeypis strætó, því að það er
alveg fullt í stæðunum hjá okkur,“
segir Kristín Arnalds, skólameist-
ari Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
„Mér finnst gjaldtaka koma til
álita, en hún hefur ekki verið
rædd.“
Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzl-
unarskóla Íslands, tekur í sama
streng. „Við höfum rætt þetta
óformlega, þetta vandamál með
bílastæðin fer vaxandi.“
Gísli Marteinn segir ekki víst að
tekjur af bílastæðum við skóla
renni í Bílastæðasjóð. „Það er ekk-
ert lokað í þeim efnum að Stúd-
entaráð eða einhver nemendafé-
lög fengju hluta af þeim gjöldum
sem koma inn. En við erum ekki
komin svo langt að ræða það,“
segir Gísli.
Bílastæði skóla ekki
ókeypis til frambúðar
Borgaryfirvöld hafa rætt við skólastjórnendur um upptöku bílastæðagjalda við
framhalds- og háskóla. Gjaldskylda verður við ákveðin stæði Háskóla Íslands. For-
maður umhverfisráðs segir tækifærið gefast vegna ókeypis strætóþjónustu í vetur.
„Þetta er bara bull og
vitleysa eins og margt í þessum
blöðum hér úti,“ segir Eggert
Magnússon, stjórnarformaður
West Ham, í samtali við Frétta-
blaðið um fréttaflutning þess
efnis að sendinefnd frá félaginu
hafi farið til Barcelona til
viðræðna við Eið Smára. Fréttirn-
ar séu í besta falli stórlega ýktar.
„Viðræður hafa átt sér stað en
meira hef ég ekki að segja um
málið á þessari stundu,“ sagði
Eggert.
Bull og vitleysa
Kaupþing kaupir hollenska
fyrirtækjabankann NIBC á sem
nemur 270 milljörðum króna.
Yfirtakan er sú stærsta hjá íslensku
fyrirtæki hingað til. Greitt er fyrir
hluta bankans með bréfum í
Kaupþingi og verður því til um leið
langstærsta erlenda fjárfestingin í
íslensku fyrirtæki til þessa.
„Með þessum kaupum myndi
íslenska bankakerfið stækka um 30
prósent á samstæðugrunni, sem er
veruleg aukning í einu vetfangi,“
segir Jónas Fr. Jónsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins (FME).
Jónas segir kaupin um margt
athyglisverð, enda um að ræða
stærstu fyrirtækjakaup íslensks
fjármálafyrirtækis. Rétt sé þó að
hafa í huga að kaupin gangi fyrst í
gegn að fengnu samþykki FME.
Stærsta yfirtaka
íslensks fyrirtækis