Fréttablaðið - 10.11.2007, Page 1
hús&heimiliLAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007
INNLITRómantískt líf við sæinn
HÖNNUÐURSkynfærunum ögrað
HEIMILIÐSeiðandi súpuskálar
+ Nánari upplýsingar
og bókanir á
www.icelandair.is
Sölutímabil: 8. til og með 11. nóvember.
Ferðatímabil: 1. til og með 17. desember.
Takmarkað sætaframboð.
kr.
að
ra
le
iði
na
til
U
SA
Til
bo
ðs
ve
rð
fr
á
Fulltrúar Öryrkjabanda-
lagsins hafa ákveðið að selja fjöl-
býlishúsið Fannborg 1 í Kópavogi.
Gengið verður frá samningi við
einkaaðila á mánudag. Þá hefur
einnig verið tekin ákvörðun um að
leigja hluta af þeim 240 íbúðum
sem hússjóðurinn á í fjölbýlishús-
inu Hátúni 10 til ófatlaðs fólks.
Helgi Hjörvar, stjórnarformað-
ur hússjóðs Öryrkjabandalagsins,
staðfesti að þetta væri ákveðið.
Íbúðirnar í Fannborg eru í eigu
Hússjóðs Öryrkjabandalagsins og
eru 43 talsins. Helgi segir ástæð-
una fyrir fyrirkomulaginu einkum
vera breytt sjónarmið gagnvart
búsetuúrræðum fatlaðra. Æski-
legra sé nú talið að ófatlað fólk og
fólk með fötlun búi í sameiginlegri
byggð. Fatlaðir eigi ekki að vera
stúkaðir af í sérstökum fjölbýlis-
húsum. Þá séu íbúðirnar margar
hverjar of litlar miðað við þær
kröfur sem fólk gerir nú til hæfis-
íbúða fatlaðra þótt þær hafi þótt
nægilega stórar þegar þær voru
teknar í notkun fyrir nokkrum
áratugum. Í breytingum verði
einnig sameinaðar litlar einstakl-
ingsíbúðir í Hátúni í eina stærri til
að koma til móts við kröfur fólks.
Smærri íbúðir geti samt vel hent-
að fólki sem hyggst hafa þar tíma-
bundna búsetu, til dæmis nemum,
sem vantar leiguhúsnæði.
Hússjóðurinn á nú ríflega 600
íbúðir og er meirihluti þeirra á
höfuðborgarsvæðinu. Helgi
tekur skýrt fram að ekki sé verið
að draga úr húsnæðisúrræðum
öryrkja. „Við höfum það í huga
að hluti okkar fólks er í alvarleg-
um húsnæðisvandræðum,“ segir
Helgi. Hann segir úrræði verða
fundin fyrir þá íbúa sem nú búa í
Fannborg eftir því sem henti
hverjum og einum. Bæði verði
keyptar og leigðar út íbúðir ann-
ars staðar í bænum eða leitað
annarra úrræða svo sem á sam-
býli eða í öldrunarþjónustu. Hús-
sjóðurinn hafi þá í vaxandi mæli
keypt nokkrar íbúðir saman í
almennum fjölbýlishúsum. Hluti
hússins sé þá notaður sem
aðstaða fyrir starfsmenn sem þá
geta komið fólki til aðstoðar ef
þarf þótt ekki sé um stofnun að
ræða.
„Ég held að það sé gríðarlega
mikilvægt fyrir lífsgæði okkar
fólks að bæta íbúðarkostinn og
leitast við að rjúfa einangrun með
blandaðri búsetu,“ segir Helgi.
Öryrkjaíbúðir á
almennan markað
Öryrkjabandalagið selur eitt af fjölbýlishúsum sínum til einkaaðila á mánudag.
Ákveðið hefur verið að leigja hluta af íbúðum í Hátúni 10 til ófatlaðs fólks, svo
sem nema. Ekki verið að draga úr búsetuúrræðum fatlaðra segir Helgi Hjörvar.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylking-
arinnar og utanríkisráðherra,
segir að þótt meinbugir hafi verið
á sameiningu REI og GGE sé
brýnt að finna leið til þess að
Orkuveitan og einkafyrirtæki geti
unnið saman að virkjun jarðhita
og tekið áfram þátt í verðmæta-
sköpun á erlendri grund. Þetta
kemur fram í grein sem hún ritar
í Fréttablaðið í dag.
Bjartsýn á út-
rásarmöguleika
Eftir að hafa fyllt
bensíntankinn á bíl sínum og
borgað fyrir bensínið virðist 63
ára gamall Þjóðverji hafa
steingleymt erindi sínu á
bensínstöðina og rölt heim til sín.
Bíllinn hafði teppt aðgengi
annarra bíla að bensíndælunni í
klukkustund þegar starfsmann
bensínstöðvarinnar fór að gruna
að ekki væri allt með felldu og
hringdi á lögreglu.
Lögreglan hafði samband við
manninn á heimili sínu sem kom
rakleitt á bensínstöðina og sótti
bílinn sinn.
Gleymdi bílnum
á bensínstöð
„Ég gæti alveg flutt hingað
inn, búrið er svo stórt,“ segir
Guðný Rannveig Reynisdóttir.
„Ég verð bara inni í búrinu með
hinum furðufuglunum.“ Ný gælu-
dýrabúð í Garðabæ, Dýraríkið, er
sú stærsta á landinu.
Guðný er vinkona eigendanna
og hefur sjálf átt tvo páfagauka í
tíu ár. Hún bauðst því til að hjálpa
páfagaukunum að venjast nýja
staðnum. „Ýmislegt getur hrætt
þá eða eitthvað komið upp á,“
segir Guðný. „Þetta eru allt
manneskjufuglar.“
Fuglarnir eru sex talsins. Þrír
þeirra eru af gerðinni „african
grey“, einn er gulhöfða Amazon,
annar grænn Amazon og sá sjötti
er cockatoo. „Þeir hafa strax
aðlagast vel og cockatoo-fuglinn
vill láta strjúka sér,“ segir Guðný.
Gunnar Vilhjálmsson, eigandi
Dýraríkisins, segir búðina jafnvel
teljast stóra á heimsmælikvarða.
„Þetta er 29. árið mitt í að reka
gæludýraverslun. Ég held að ég
muni aldrei slá þessa út,“ segir
Gunnar. „Ég sé samt fyrir mér að
útlendingar muni koma hingað til
að skoða þessa alveg eins og ég
fór til útlanda til að finna fallegar
búðir.“
Pakistanska lögregl-
an setti Benazir Bhutto, leiðtoga
stjórnarandstöðunnar í landinu,
sem nýverið sneri heim úr útlegð,
í stofufangelsi í gær til að aftra
henni frá að tala á fjöldafundum
stuðningsmanna sinna. Fregnir
bárust enn fremur af því að
lögregla hefði efnt til fjölda-
handtakna til að koma í veg fyrir
fjöldamótmæli gegn neyðarlögum
Pervez Musharraf forseta.
Talsmenn Bandaríkjastjórnar
kröfðust þess að hömlum á
ferðafrelsi Bhutto yrði aflétt
tafarlaust. Pakistanstjórn sagði
það verða gert strax í dag.
Bhutto sett í
stofufangelsi
Ekki á mála hjá djöflinum Vinir og óvinir Íslendinga