Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 96
Kvennalið Vals er eina
liðið í Iceland Express-deild
kvenna sem hefur ekki náð að
vinna leik en liðið hefur tapað
fimm fyrstu leikjum sínum á
tímabilinu.
Valskonur töpuðu síðast 42-45
fyrir Hamar á fimmtudagskvöld-
ið þrátt fyrir að vera með gott
forskot nánast allan leikinn og
með níu stiga forskot, 40-31,
þegar fimm mínútur voru eftir.
Hamarsliðið skoraði þá 14 stig í
röð, komst fimm stigum yfir og
lagði grunninn að sínum fyrsta
sigri í vetur.
Lakiste Barkus skoraði 10 af 27
stigum sínum í lokaleikhlutanum
og gerði útslagið en Valsliðið er
enn án erlends leikmanns. Helga
Þorvaldsdóttir lék þarna sinn
fyrsta leik í vetur en hún er að
byrja aftur eftir barnsburðarfrí.
Ekkert gengur
hjá Valskonum
Alex McLeish, þjálfari
Skota, ætlar að nýta sér það að
Ítalir séu hræddir fyrir leik
þjóðanna á Hampden Park í
undankeppni EM um næstu helgi
en Skotar komast í úrslitakeppn-
ina með sigri.
„Ítölsku leikmennirnir eru bara
mennskir og það er mikil pressa á
þeim. Það verður stórslys fyrir
ítalska knattspyrnu ef þeir vinna
ekki þennan leik,“ sagði McLeish
sem ætlar greinilega að setja alla
pressuna á Ítali fyrir leikinn.
Ítalir hræddir
Iceland Express deild karla:
1. deild karla í handbolta
Birgir Leifur Hafþórsson,
kylfingur úr GKG, gerði frábæra
hluti á úrtökumóti fyrir Evrópu-
mótaröðina á Arcos Gardens-vell-
inum á Spáni í gær og er í efsta
sæti mótsins eftir þrjá hringi.
Birgir lék einstaklega gott golf í
gær og fór þriðja hring mótsins á
65 höggum, eða sjö höggum undir
pari og er því samtals á ellefu
höggum undir pari eftir þrjá
hringi í mótinu. Fyrir lokahring-
inn, sem fram fer í dag, er Birgir
Leifur í efsta sæti mótsins, einu
höggi betri en David Dixon, en
Englendingurinn leiddi mótið eftir
tvo hringi. Birgir Leifur átti því-
líkan draumahring í gær og spil-
aði best allra keppenda gærdags-
ins ásamt Finnanum Roope Kakko,
sem fór hringinn einnig á sjö högg-
um undir pari og er sem stendur í
þriðja sæti á eftir þeim Birgi og
Dixon. En Birgir fékk í gær sjö
fugla og engan skolla og hitti allar
brautir nema eina eftir teighögg-
in.
Árangur Birgis hefur vakið
verðskuldaða athygli en 308 kylf-
ingar taka þátt á 2. stigi úrtöku-
mótsins en aðeins 74 þeirra kom-
ast áfram á lokaúrtökumótið sem
mun fara fram í næstu viku. Á
Acros Gardens-vellinum, þar sem
leikið er nú, komast svo hins vegar
einungis nítján efstu kylfingarnir
áfram á lokaúrtökumótið. Á loka-
úrtökumótinu sjálfu komast síðan
30 efstu menn inn á Evrópumóta-
röðina á næsta tímabili.
Birgir Leifur átti þvílíkan draumahring
16 liða úrslit á
alþjóðlega badmintonmótinu
Iceland Express International
fóru fram í gær. Annars vegar
tvíliðaleik karla og kvenna og
hins vegar í einliðaleik karla og
kvenna.
í tvíliðaleik karla sigruðu
Magnús Ingi Helgason og Tryggvi
Nielsen Danina Peter Mörk og
Niklas Hoff í þremur lotum, en í
tvíleik kvenna sigruðu Katrín
Atladóttir og Ragna Ingólfsdóttir
dönsku stúlkurnar Camilla
Overgaard og Lotte Bonde
örugglega í tveimur lotum. Þrjú
önnur íslensk pör eru komin
áfram í tvíliðaleik kvenna en þau
sátu öll hjá í sextán liða úrslitum.
Í einliðaleik kvenna komust
Tinna Helgadóttir, Katrín
Atladóttir og Ragna Ingólfsdóttir
áfram í 8-manna úrslit, en Sara
Jónsdóttir tapaði fyrir hini
dönsku Camillu Overgaard og
Birgitta Rán Ásgeirsdóttir tapaði
fyrir bandarísku stelpunni
Lauren Todt.
Engir íslendingar voru meðal
keppanda í 16-manna úrslitum í
einliðaleik karla.
16-liða úrslit
voru háð í gær
Keflvíkingar hafa
unnið sex fyrstu leiki sína í Ice-
land Express-deild karla og eins
og liðið spilar í upphafi móts þá er
ekki margt sem getur staðið í vegi
fyrir því að endurheimta Íslands-
meistaratitilinn sem það hefur
þurft að horfa á eftir til Njarðvík-
inga og KR undanfarin tvö ár.
Keflvíkingar fylgdu eftir 15 stiga
sigri á Njarðvík á dögunum með
því að rasskella Íslandsmeistara
KR með 22 stiga sigri í sláturhús-
inu í gær.
Keflavíkurliðið hafði frum-
kvæðið mest allan leikinn. Kefla-
vík leiddi með tveimur stigum
eftir fyrsta leikhltua, 28-26, eftir
magnaða þriggja stiga körfu mið-
herjans Sigurðar Gunnars Þor-
steinssonar frá miðju. Keflavík
var síðan fimm stigum yfir í hálf-
leik, 47-42, og komst í 56-43 í upp-
hafi seinni hálfleiks og eftir það
var á brattann að sækja hjá KR-
liðinu. Keflavíkurliðið fékk blóð-
bragðið og eftirleikurinn var auð-
veldur. Bobby Walker fór mikinn í
liði Keflavíkur, skoraði 19 stig í
fyrri hálfleik og var síðan með 18
stig og 7 stoðsendingar í þeim
seinni og hann leit út fyrir að vera
algjörlega óstöðvandi þegar hann
gerði lítið úr KR-vörninni hvað
eftir annað. Tommy Johnson var
einnig sterkur og þá má ekki
gleyma innkomu Sigurðar
Gunnars sem skoraði 11 stig og
leysti það vel þegar Anthony
Susnjara lenti í villuvandræðum.
„Við lítum mjög vel út og þessi
liðsheild er bara með betri liðum
sem hefur spilað fyrir Keflavík.
Þessi liðsheild er bara svakalega
góð,“ sagði Gunnar Einarsson sem
ætti að þekkja það enda búinn að
spila yfir 300 úrvalsdeildarleiki
fyrir Keflavík.
„Þessi leikur sýnir bara hverjir
eru bestir í dag. Það er stígandi í
okkar leik og í dag spiluðum við
allar 40 mínúturnar á fullum krafti
og það kom enginn slæmur kafli
hjá okkur,“ sagði Gunnar Einars-
son sem átti að vanda sterka inn-
komu af bekknum.
„Það segir sig bara sjálft að
þegar menn koma eins litlir hrædd-
ir kettlingar inn í Keflavík þá eru
þeir bara rasskelltir. Ef menn koma
hræddir þá er bara valtað yfir
menn hér í Keflavík. Menn verða
að berja frá sér í þessu húsi,“ sagði
Fannar Ólafsson, fyrirliði KR,
öskureiður eftir leik. „Þetta er
fáránlegt tap og við gáfumst bara
upp. Við fengum ekkert varnarlega
frá atvinnumönnunum okkar. Þeir
skoruðu bara þegar þeir vildu. Það
er vissulega erfitt að spila hérna í
Keflavík og við vissum það. Þess
vegna verða menn að koma tilbún-
ir og þess vegna er ég svona pirr-
aður því við vorum ekki tilbúnir og
ég sá það strax í upphitun,“ bætti
Fannar við en það fór ekki fram
hjá neinum þegar hann var að
reyna að rífa menn í gang í upphit-
unni en það dugði ekki til.
Keflavík rúllaði upp Íslandsmeisturum KR með 22 stiga mun, 107-85, í toppleik Iceland Express-deildar
karla í gær. Bobby Walker átti sannkallaðan stórleik og var með 37 stig og 8 stoðsendingar í leiknum.
Þór lagði Hamar að
velli 92-74 í Iceland Express-deild
karla í körfubolta á Akureyri í
gærkvöldi í leik sem heimamenn
leiddu allan tímann.
Þórsarar byrjuðu leikinn betur
og náðu snemma góðri forystu á
gestina. Þórsarar keyrðu upp
hraðann og pressuðu gestinna
stíft. Með hraðaupphlaupum og
góðri vörn náðu Þórsarar fljótt 17
stiga forystu.
Hamarsmenn náðu í öðrum leik-
hluta að saxa aðeins á forskot
heimamanna og náðu að minnka
muninn niður í 10 stig en lengra
komust þeir ekki í öðrum leikhluta
og Þórsarar fóru með 10 stiga for-
ystu í hálfleik 50-40 og ekkert leit
út fyrir annað en heimasigur.
Hamarsmenn byrjuðu seinni
hálfleikinn þó betur en heima-
menn. Heimamenn létu ekki
slæma byrjun á sig fá og náðu
fljótt að auka á forystu sína aftur
og leiddu eftir þriðja leikhluta
með 12 stiga mun. Í fjórða og síð-
asta leikhlutanum náðu gestirnir
aldrei að ógna heimamönnum,
sem hreinlega kafsigldu gestinna,
þar sem gestirnir réðu lítið við
Cedric Isom og Óðinn Ásgeirsson
sem fóru hreinlega á kostum í liði
heimamanna. Leiknum lauk því
með sanngjörnum sigri heima-
manna 92-74. Þar sem Cedric og
Óðinn voru allt í öllu í liði heima-
manna og skoruðu saman 57 stig.
Á meðan Marvin Valdimarsson og
George Byrd voru allt í öllu í liði
gestanna. En Marvin skoraði 20
stig í leiknum en George Byrd 18
stig.
Þórsarar rúlluðu yfir Hamar