Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 6
Fyrirhugaðar
breytingar á heilbrigðiskerfinu
munu ekki endilega verða til þess
að auðvelda heilbrigðisstarfsfólki
í einkarekstri að fá verkefni, segir
Þorkell Bjarnason röntgenlæknir.
Guðlaugur Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra hefur boðað að
skilið verði milli kaupenda og selj-
enda í heilbrigðiskerfinu. Sérstök
innkaupastofnun muni sjá um að
kaupa verk af heilbrigðiskerfinu,
en greiðandinn verði ríkið.
„Ég held að það sé bara kostur að
breyta kerfinu, menn eru búnir að
vilja aðskilja kaupendur og selj-
endur í mörg ár,“ segir Þorkell.
Hann er þó efins um að þessi
kerfisbreyting muni hafa miklar
breytingar í för með sér fyrir aðila
í einkarekstri. Þó megi vona að inn-
kaupastofnunin sjái hag sínum
betur borgið með því að kaupa
læknisverk af einkaaðilum en ríkis-
stofnunum.
Þorkell hefur mikla reynslu af
einkarekstri í heilbrigðisþjónustu,
en hann var einn stofnenda Röntgen
Domus Medica árið 1993.
„Það sjá það allir að það eina
sem vit er í er að auka einkarekst-
ur í heilbrigðisþjónustunni, allt
annað er bara rugl. Það hefur
sýnt sig að það er mikill sparnað-
ur í einkarekstrinum,“ segir
Þorkell.
Breytir litlu fyrir einkarekstur
HALLGRÍMSKIRK JU
S U N N U D A G I N N
1 1 . N Ó V. K L . 2 0
Gesualdo
Heinrich Schütz
Johannes Brahms
Knut Nysted
Arvo Pärt
Þorkell Sigurbjörnsson
Kjell Mörk Karlsen
S C H O L A C A N TO R U M
H Ö R Ð U R Á S K E L S S O N
frá endurreisn til samtíma
2.000/1.500 kr.
L I S T V I N A F É L A G
H A L L G R Í M S K I R K J U
2 5 . S TA R F S Á R
HÁSKERPA
HEIM Í STOFU
WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
MIRAI 32” LCD háskerpusjónvarp
79.900-
TILBOÐ
Karlmaður var sýknað-
ur af ákæru um umferðarlaga-
brot í Héraðsdómi Suðurlands í
gær. Hann var stöðvaður af
lögregluþjónum í Vestmannaeyj-
um í febrúar á þessu ári fyrir að
aka sendibíl án þess að vera með
öryggisbeltið spennt.
Maðurinn játaði að hafa keyrt
beltislaus en sagði undanþágu
umferðarlaga hafa gilt um akstur
sinn. Undanþágan segir að ekki sé
skylt að nota belti í bíl þegar ekið
sé í atvinnuskyni þar sem hraði
sé jafnan lítill og fara þurfi úr og
í ökutækið með stuttu millibili.
Dómurinn féllst á þá skýringu og
sýknaði manninn.
Mátti keyra án
öryggisbeltis
Finnst þér sóðaskapur á götum
úti hafa aukist?
Ætti strætó að vera gjaldfrjáls
fyrir alla?
Landsvirkjun ætlar ekki
að selja orku úr virkjunum í neðri
hluta Þjórsár til nýrra álvera.
Stjórn fyrirtækisins telur hærra
orkuverð fást í öðrum iðnaði, auk
þess sem betra sé að dreifa áhættu
með því að selja öðrum en
álbræðslum.
Þetta útilokar þó ekki aukna
sölu til álvera sem þegar eru starf-
andi, segir Friðrik Sophusson, for-
stjóri Landsvirkjunar. Þessi
ákvörðun hefur ekki áhrif á mögu-
lega uppbyggingu álvers við Húsa-
vík, né mögulegt álver við Helgu-
vík á Reykjanesi.
Þegar ljóst var að ekki yrði af
stækkun álvers Alcan í Straums-
vík óskaði stjórn Landsvirkjunar
eftir því að fyrirtækið ynni úttekt
á markaði fyrir orku á Suður- og
Vesturlandi, segir Friðrik. Mikill
áhugi virðist vera á orkukaupum.
„Stjórnin ákvað að við myndum
reyna að semja við fyrirtæki sem
ekki væru í áli, og gætu borgað
hærra verð en við höfum fengið
hingað til,“ segir Friðrik. Einnig
hafi skipt máli að greiðslur fyrir
orkusölu til álvera séu háðar
álverði, og því hafi verið æskilegt
að semja við fyrirtæki í öðrum
iðnaði til að dreifa áhættu með
aukinni fjölbreytni.
Stjórn Landsvirkjunar hefur því
ákveðið að hefja viðræður við fyr-
irtæki sem hefur hug á að reisa
netþjónabú hér á landi. Auk þess
er hafinn undirbúningur að við-
ræðum við fyrirtæki sem vill reisa
hér fyrirtæki á sviði kísilhreins-
unar fyrir sólarrafala.
Fulltrúar Landsvirkjunar vilja
ekki gefa upp hvaða fyrirtæki er
um að ræða. Friðrik segir þó lík-
legast að þessi starfsemi verði
staðsett á Suðurlandi eða Reykja-
nesi.
Möguleg orkuþörf þessara
tveggja fyrirtækja gæti numið um
þriðjungi þess afls sem reiknað er
með að verði til í þremur virkjun-
um í Þjórsá. Friðrik segir að þetta
geti þýtt ákveðið hagræði við gerð
virkjananna.
Ef selja ætti orkuna einum stór-
um kaupanda þyrfti að byggja
allar þrjár virkjanirnar í einu.
Verði orkan hins vegar seld mörg-
um smærri fyrirtækjum megi
byggja eina virkjun í einu, sem sé
bæði hagkvæmara og hafi að auki
minni efnahagsáhrif.
Orka úr Þjórsá ekki
seld til nýrra álvera
Landsvirkjun ætlar í viðræður um sölu á orku úr virkjunum í Þjórsá til net-
þjónabús og kísilhreinsunarverksmiðju. Ætlar ekki að selja orku til álvera á Suð-
ur- og Vesturlandi. Kemur á óvart og veldur vonbrigðum segir forstjóri Alcan.
„Ég minni á að öll plönin
eru inni um stækkunina í Straums-
vík, því ég veit ekki betur en að
Alcan hangi á því vilyrði. Þá eru
áformin um álver í Helguvík og á
Húsavík ennþá inni,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna, um tilkynningu
Landsvirkjunar þess efnis að fyr-
irtækið muni ekki ganga til samn-
inga við fyrirtæki sem hafi hug á
að byggja álver á Suður- og Vest-
urlandi.
„Þetta þýðir bara að verkefni
númer fjögur eða fimm eru fryst í
bili. Áform um eitt eða tvö álver í
Þorlákshöfn og Keilisnesi og eitt-
hvað því um líkt.“
Steingrímur
telur því ekki að
um grundvallar-
stefnubreytingu
sé að ræða.
„Þetta er ekki
stefnubreyting
en Landsvirkjun
er að horfast í
augu við raun-
veruleikann. Það
er ágætt, það er
örlítið að rofa til
í álbræðsluæðinu hjá fyrirtækinu.
Fleiri hugsanir komast nú að.“
Hann segir ákvörðina þó ekki
breyta afstöðu Vinstri grænna til
virkjunar í Þjórsárverum.
„Netþjónabú losa ekki mengað-
ar lofttegundir líkt og álverin og
sem atvinnuuppbygging og iðnað-
ur er þetta tvímælalaust framför
frá álbræðslu. En það styrkir
frekar rökin á móti virkjun í
Þjórsá − að það þurfi ekki þessar
virkjanir.
Það er talsvert til í kerfinu nú
þegar og það er hægt að leysa
meiri orkuþörf með miklu minni
umhverfisfórnum og miklu óum-
deildari virkjunum en þeim sem
felast í virkjun Þjórsár,“ segir
Steingrímur og nefnir sem dæmi
Búðarhálsvirkjun, sem sé snyrti-
leg virkjun inni á svæði sem
þegar hefur verið raskað.
Áform um þrjú álver standa