Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 84
Á morgun býður Þjóðminjasafn
Íslands fólki að koma með forn-
gripi eða gamla muni í skoðun og
greiningu. Víða á heimilum fyrir-
finnast gripir frá eldri tíð, en fljótt
fennir yfir slóðina og eigendur
vita fátt um gripina, til hvers voru
þeir notaðir, hvað eru þeir gamlir?
Þetta geta verið útskornir munir,
skart eða hvaðeina það sem gam-
alt virðist vera. Gripirnir þurfa
alls ekki að vera frá miðöldum til
að teljast gamlir og má í því sam-
hengi benda á að grunnsýning
Þjóðminjasafnsins spannar öll
1200 árin í sögu Íslands byggðar,
frá landnámstíma til 20. aldar.
Þannig eru margar nýjungar síð-
ustu áratuga nú orðnar „gamlar“
eða „fornlegar“. Fyrir mörgum
árum var gerð
gangskör að því
með dönskum
sérfræðingi að
greina silfur í
einkaeign og
kom þá margt
fróðlegt í ljós.
Sérfræðing-
ar Þjóðminja-
safnsins verða
á staðnum milli
klukkan 14 og
16 og munu taka
vel á móti öllum. Tekið skal fram
að einungis verður reynt að greina
muni með tilliti til aldurs, efnis,
uppruna o.s.frv. en starfsmenn
safna meta ekki verðgildi gamalla
gripa enda eftirmarkaður með
eldri muni hér á landi
vanþróaður þótt
erlendis séu viðskipti
með fornmuni mikil
og söfnun eldri muna
tómstundagaman
fyrir marga. Eigend-
ur taka gripina með
sér aftur að lokinni
skoðun og verða þá
nokkru fróðari.
Þetta er einstakt
tækifæri sem er um
að gera að nýta sér.
Að þessu sinni gefst kostur á að
koma með alls konar gripi til
greiningar. Mælist þessi þjónusta
vel fyrir hyggst Þjóðminjasafnið
efna til fleiri greiningardaga á
næsta ári.
Gamalt góss
Í byrjun mánaðarins
opnuðu tvær einkasýningar
í START ART listamanna-
húsi á Laugavegi 12b.
Inga Rósa Loftsdóttir
sýnir í Forsal ljósmyndaröð
sem hún nefnir „Árs-
skammtur af blómum“.
Ljósmyndirnar, sem eru
nærmyndir af íslenskum
blómum, eru teknar á einu
ári, frá júní 2006 til júní
2007. Inga Rósa heillaðist
af fegurð blóma í nærmynd
og ákvað því að búa til
ljósmyndasyrpu með öllum þeim blómum sem fyrir augu hennar bar í
heilt ár. Á Loftinu sýnir Alistair Macintyre þrjú stór verk sem hann
nefnir „Schiehallion“. Verkin eru unnin í framhaldi af fyrri einkasýn-
ingum listamannsins í Gallerí Turpentine og á Kjarvalsstöðum.
Eins og í fyrri verkum vinnur Alistair með náttúruöflunum og lætur
þau taka þátt í að skapa einstök listaverk í ferðalagi um tímann með
þeim efnahvörfum og umskiptum sem eiga sér stað á slíku ferðalagi.
Verkin eru unnin á þykkan pappír og vega salt milli þess að teljast tví-
eða þrívíð.
START ART er opið virka daga frá kl. 10-17 og laugardaga frá kl. 11–
16. Sýningarnar standa báðar yfir til 28. nóvember.
Blóm og klaki