Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 94
Þetta er engin óskastaða hjá mér eins og er
Engidalsskóli úr Hafnar-
firði vann sigur á fyrsta skóla-
sundmót SSÍ fyrir sjötta bekk
grunnskóla. Mikil stemning ríkti
á mótinu og skólarnir mættu allir
með stuðningslið.
Keppt var í 6 boðsundsgreinum
og var þetta liðakeppni á milli
skóla. Engidalsskóli varð efstur
með 116 stig en krakkarnir þaðan
leiddu keppnina allan tímann.
Hörkukeppni var hins vegar um
næstu þrjú sæti en þar náði
Ölduselsskóli 2. sætinu með 99
stig, Engjaskóli varð í 3. sæti með
98 stig og Foldaskóli kom síðan í
4. sæti með 97 stig. Í fimmta sæti
varð Borgaskóli með 84 stig og í
því sjötta Hamraskóli með 68
stig.
Við upphaf móts var sundsýn-
ing þar sem að landsliðsmenn-
irnir og Ólympíufararnir Jakob
Jóhann Sveinsson, Ragnheiður
Ragnarsdóttir og Örn Arnarson
syntu boðsund og sýndu hvernig
skal ræst á sundmótum.
Brian Marshall, framkvæmda-
stjóri SSÍ, sagði að mót þetta er
hluti af stefnu SSÍ í að efla
lýðheilsu á Íslandi með því að láta
skólakrakka upplifa sund á annan
hátt og einnig að gefa auka
áherslu á kennslu í skólasundi. Í
vor verður haldið álíka mót fyrir
4. bekk grunnskóla og verður það
mót opið öllum.
Engidalsskóli
vann örugglega
Samkvæmt frétt sem birtist
nýverið á opinberri heimasíðu
Alþjóða skíðasambandsins eru
uppi hugmyndir um að reisa risa-
stórt skíðahús á Ísland þar sem
gert er ráð fyrir um 800 metra
langri löglegri keppnisbraut, auk
snjóbrettasvæðis, veitingastaða,
verslana og hótels. Fréttablaðið
forvitnaðist um málið og sló á
þráðinn til Daníels Jakobssonar,
formanns Skíðasambandsins, og
Helga Geirharðssonar, verkfræð-
ings og formanns mannvirkja-
nefndar Skíðasambandsins.
„Þetta mál er komið talsvert
lengra en að vera bara einhver
draumur og við erum komin tals-
vert á veg í hönnunarvinnu og
rekstraráætlunum,“ sagði Daníel
og Helgi tók í sama streng og
útskýrði nánar. „Við erum búin að
vinna hörðum höndum við að koma
þessu verkefni á koppinn og eftir
forvinnu og rekstraráætlanir
stöndum við núna í samningavið-
ræðum við borgaryfirvöld um lóð
fyrir húsið,“ sagði Helgi og stað-
festi að þegar hefðu nokkrir fjár-
festar sýnt verkefninu mikinn
áhuga.
„Skíðasambandið er félagasam-
tök og sækir um lóðina með því
markmiði að skapa varanlega
skíðaaðstöðu fyrir skíðasamband-
ið og áhugafólk um skíðamennsku,
en við leitum svo eftir sjálfstæð-
um fjárfestum í verkefnið án fjár-
hagslegs stuðnings sveitarfélaga,
borgar eða ríkis. Framlag borgar-
innar til verkefnisins er því fyrst
og síðast að leggja til land fyrir
skíðahúsið,“ sagði Helgi og kvað
staðsetningu verkefnisins afar
mikilvæga.
„Úlfarsfellið er draumastaður
fyrir okkur í sambandi við skíða-
húsið og við teljum að sú staðsetn-
ing sé lykillinn að því að fá tilsett-
an fjölda viðskiptavina til þess að
skíðahúsið og rekstur þess geti
með góðu móti staðið undir sér.
Við gerum ráð fyrir því að skíða-
húsið standi á eigin fótum en auð-
vitað munum við svo gera samn-
inga við sveitarfélögin í kring, t.d.
í sambandi við aðgengi að húsinu
fyrir skólakrakka og svo fram-
vegis, auk þess að þjónusta þau
íþróttafélög sem tengjast skíða-
íþróttinni,“ sagði Helgi og kvað
skíðahús vera þá leið sem flestir
væru að fara í dag.
„Það eru einhver 60-70 svona
hús annaðhvort í bígerð eða þegar
komin upp í heiminum og það
hefur sýnt sig að þetta er góð leið
til þess að þjónusta skíðaíþrótt-
ina,“ sagði Helgi og kvaðst ekki
bara eiga við höfuðborgarsvæðið.
„Við höfum einnig fengið við-
brögð af landsbyggðinni þar sem
eru góð skíðasvæði þar sem menn
telja að með þessari starfsemi
fáist enn fleiri gestir en áður þar
sem fleiri íbúar höfuðborgar-
svæðisins muni stunda íþróttina.
Við sjáum þetta heldur ekki sem
samkeppni við rekstur núverandi
skíðasvæða þar sem skíðafólk
mun ávallt leita eftir fjölbreytni.
Okkar vonir standa helst til að
hægt sé að reka skíðahús og skíða-
svæði höfuðborgarsvæðisins sem
eina heild. Slíkur rekstur getur
skapað verulega hagræðingu á
núverandi skíðasvæðum, sem í
dag þurfa að halda úti nokkrum
fjölda starfsfólks allt árið,“ sagði
Helgi.
Skíðasamband Íslands er með stórhuga hugmyndir um að reisa yfirbyggt skíðasvæði í Úlfarsfelli, með lög-
legri keppnisbraut, snjóbrettabraut, verslunar- og veitingarekstri og hóteli. Undirbúningsvinna er vel á veg
komin og viðræður standa yfir við borgaryfirvöld um landsvæði fyrir skíðahúsið.
KR hélt blaðamannafund
í fyrradag þar sem þrír nýir leik-
menn voru kynntir til sögunnar:
þeir Guðjón Baldvinsson, Gunnar
Örn Jónsson og Grétar Sigfinnur
Sigurðsson, ásamt því að fram-
lengdir voru samningar við nokkra
leikmenn sem voru fyrir hjá lið-
inu. Logi Ólafsson var að vonum
sáttur með gang mála hjá KR
þegar Fréttablaðið tók stöðuna á
honum.
„Ég tel að nýju leikmennirnir
eigi allir eftir að styrkja KR-liðið
mikið. Ég lagði ríka áherslu á að fá
þá til félagsins og það er mikill
fengur fyrir félagið að samningar
við þá séu í höfn. Gunnar Örn
kemur með mikinn hraða inn í
kantspilið hjá okkur, hann sýndi
hvers hann er megnugur með
Breiðabliki síðasta sumar og á
eftir að nýtast okkur mjög vel.
Guðjón er að sama skapi snöggur
og ég hef fylgst lengi með honum.
Ég tel að hann sé öðruvísi en þeir
framherjar sem eru fyrir hjá KR
og það á eftir að gefa okkur nýja
möguleika í sóknarleiknum.
Grétar Sigfinnur er auðvitað gam-
all KR-ingur og hefur mikinn
metnað og getu til þess að standa
sig fyrir okkur og ég er viss um að
hann geri það,“ sagði Logi og ítrek-
aði enn fremur mikilvægi þess að
framlengja samninga við leik-
menn sem voru þegar til staðar
hjá KR. „Það er mjög mikilvægt
að halda ákveðnum kjarna áfram,
þar sem við erum búnir að missa
reynslumikla menn eins og Sigþór
Júlíusson, Ágúst Gylfason og
Rúnar Kristinsson, en sá síðast-
nefndi mun reyndar áfram vera
mikilvægur hlekkur sem yfir-
maður knattspyrnumála hjá félag-
inu,“ sagði Logi en einnig er búið
að ganga frá áframhaldandi samn-
ingi við Sigurstein Gíslason
aðstoðarþjálfara, varnarjaxlinn
Þormóð Egilsson og svo sérstakan
styrktarþjálfara. „Ég er mjög
ánægður með að vera áfram með
Sigurstein mér við hlið og að sama
skapi er það mjög jákvæð og metn-
aðarfull þróun að nýta Rúnar með
stöðu sinni til þess að miðla þeirri
reynslu sem hann býr yfir. Ég
reikna með því að Rúnar verði
með séræfingar fyrir miðjumenn
og sóknarmenn og Þormóður á svo
eftir að hjálpa til með varnar-
mennina. Við erum svo búnir að
ráða sérstakan styrktarþjálfara
sem mun sjá til þess að liðið verði
líkamlega vel á sig komið og við
munum leggja mikla áherslu á
hans vinnu á undirbúningstímabil-
inu,“ sagði Logi ákveðinn en
kvaðst þó ekki finna fyrir neinni
sérstakri pressu fyrir komandi
tímabil. „Við ákváðum það í sam-
einingu að vera ekki með neinar
stórar yfirlýsingar, heldur ætlum
við að einbeita okkur að því að
vinna okkar mál vel og sjá til þess
að leikmannahópurinn verði tilbú-
inn þegar að mótið hefst. Það getur
tekið tíma að ná árangri en auð-
vitað geri ég mér grein fyrir því
að lið eins og KR á og vill vera í
toppbaráttunni.“
Lið eins og KR á að vera í toppbaráttu