Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 43
Að Strandgötu 43 í Hafnarfirði hefur Fríða
Jónsdóttir, gullsmiður og skartgripahönnuður,
komið sér upp glæsilegri verslun og vinnustofu
á bak við.
Þótt Fríða sé nýbúin að opna eigin verslun er hún
enginn nýgræðingur í faginu heldur á hún átta ára
vinnu í skartgripahönnun að baki. Gripir hennar
bera það líka með sér að þar er ekki kastað til
höndum. Þeir eru frekar stórir og hafa sterkan
karakter, sem hæfir nútímakonunni vel. Þegar
Fríða er beðin að lýsa skartgripunum sínum sjálf
kveðst hún vera með nokkrar línur í ólíkum form-
um en grunnformin séu henni töm. „Þetta eru
hlutir sem flott er að bera eina og sér en þó bý ég
líka til sett. Það getur verið glæsilegt að bera einn
stóran hring en svo er ég með fíngerðari hringa
sem má raða mörgum saman svo úr verði einhvers
konar mynstur. Það er hægt að leika sér heilmikið
með svona skart.“
Silfur er sá málmur sem Fríða smíðar mest úr og
þó að margir gripanna séu fremur grófir á hún líka
aðra í mjúkum formum sem hún segir njóta mik-
illa vinsælda.
Fríða kveðst hafa verið með verkstæðið heima
fram að þessu en einnig selt í
versluninni Spaksmannsspjörum í Bankastræti og
nú síðast Gallerí Thors sem er nýtt fyrirtæki í
miðbæ Hafnarfjarðar. Ásamt skartgripasmíðinni
hefur Fríða sinnt búi og börnum síðustu árin en
einnig aðstoðað eiginmanninn Auðun Gísla Arnar-
son matreiðslumann við veitingasölu. Nú hafa hlut-
verkin snúist við og Auðunn er kominn á verkstæð-
ið hjá henni. „Hann hjálpar mér að saga og sverfa,
auk þess að sinna rekstrinum. Við vinnum ágæt-
lega saman,“ segir Fríða brosandi.
Verslunin við Strandgötuna er björt og ljósa-
veggur með mynstri vekur athygli. Það er líka létt
yfir innréttingunum, sem Fríða kveðst hafa hann-
að sjálf og látið smíða hér á landi. „Við höfum
fengið mjög góðar viðtökur bæði frá Hafnfirðing-
um og þeim sem gera sér ferð í Fjörðinn til að
njóta þess sem hann hefur upp á að bjóða,“ segir
hún og nefnir sem dæmi frí bílastæði, fallegar
verslanir og metnaðarfullrar sýningar í Hafnar-
borg sem ekkert kosti inn á.
Íslenskt, frumlegt og flott
Gerðu þína
eigin skartgripi.