Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 28
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Goðafoss sekkur „Heima er þar sem mamma er. Ef ég bara gæti orðið þriðjungur af þeirri konu sem mamma er og hefði þriðj- ung af styrk hennar, væri ég fullsátt við hlutskipti mitt í lífinu.“ AFMÆLI Einstök börn, stuðningsfélag barna með sjaldgæfa og alvar- lega sjúkdóma, er tíu ára um þessar mundir. „Markmið félagsins er stuðningur við fjölskyldur barna sem fæðast með afar sjaldgæfa sjúkdóma á heimsvísu,“ segir Sædís Björk Þórðardóttir, formaður félagsins, sem þrettán fjölskyldur stofnuðu árið 1997. Nú eru í félaginu 140 fjölskyldur, þar af fimmtán sem misst hafa börn sín og er Sædís ein þeirra. „Drengurinn minn fæddist með short bowel syndrome, en einkenni þess sjúkdóms eru stíflaðar garnir. Hann fór í að- gerð rétt sólarhringsgamall og lést tæpra tveggja ára. Sjúk- dómar sem hrjá einstök börn hafa mikil áhrif á lífsgæði þeirra og lífslíkur, en í verstu tilfellum er vitað með vissu að börn- in muni ekki lifa fram á fullorðinsár,“ segir Sædís um börnin í félaginu sem sum eru nýfædd, en stuðningsfélagið er fyrir börn átján ára og yngri. „Við lifum á góðmennsku annarra sem láta fé af hendi rakna til félagsins. Þá erum við með fjáröflun í formi minn- ingarkorta, jólakorta og jólagrýlukertis sem hægt er að fá keypt í gegnum heimasíðuna okkar: www.einstokborn.is, en jólakortið í ár málaði listakonan Kolbrún Hrund Sigurgeirs- dóttir,“ segir Sædís um jólakortið sem sýnir börn leiða hvort annað á skautum, þar af eitt í hjólastól. „Það er einkennandi fyrir einstök börn hvað þau hafa öðru- vísi viðhorf til lífsins. Mörg þeirra fara aldrei heim af spítala, meðan önnur eiga sér eðlilegra líf. Þau eru upp til hópa ofsa- lega glöð og jákvæð og hafna voli og væli þótt erfiðir tímar fylgi sjúkdómum þeirra, enda þekkja þau ekki annars konar líf,“ segir Sædís sem telur auðveldara fyrir börn að fæðast lasin en hljóta þau örlög seinna. „Mér hefði þótt erfiðara að horfa upp á son minn fimm ára eða eldri kippt úr eðlilegu lífi yfir í langlegur á sjúkrahúsum eins og tíðum gerist hjá krabbameinssjúkum börnum. Það er léttbærara að alast upp við spítalavist, vera tengdur tækjum og ganga með göngugrind. Sonur minn náði aldrei að ganga og var aðeins þrjár nætur í lífi sínu heima í faðmi fjölskyldunn- ar, en honum þótti þetta eðlilegt og var alltaf brosandi og ynd- islegur,“ segir Sædís. „Þetta er mikil lífsreynsla. Fólk segir stundum: „Hvað? Það er svo langt síðan svo þetta hlýtur að vera allt í lagi,“ en almáttugur nei, sorg og söknuður fylgir manni sérhvern dag. Við vissum að hann átti ekki mikla lífsvon, en héldum í von- ina á sama tíma og við kviðum því að lifa eftir hans daga. En svona er þetta líf og ekki annað í boði,“ segir Sædís sem tók sér hlé frá félagsstarfinu fyrst á eftir en fór svo í skemmti- nefnd. „Það er algengt að byrja í skemmtinefnd aftur, til að gefa lífinu léttari blæ. Það er félaginu mikilvægt að hafa til staðar foreldra sem misst hafa börn sín, en starfið snýst um að gefa foreldrum barna með sjaldgæfa sjúkdóma upplýsingar sem þeir finna hvergi annars staðar,“ segir Sædís, og til stendur að stofna innan félagsins hóp foreldra sem misst hafa börn sín. „Afmælisárið hefur verið skemmtilegt. Við reynum að létta börnunum tilveruna með skemmtunum af ýmsu tagi, og jóla- balli í desember, en gefum einnig út afmælisblað í lok nóvem- ber og nýjan bækling,“ segir Sædís. Þess má geta að aðstand- endur Einstakra barna selja jólakort í Smáralind nú um helg- ina. Elskuleg eiginkona mín, móðir, amma, dóttir og systir, Gíslína Erlendsdóttir, frá Dal, til heimilis að Bakkagerði 9, Reykjavík, er látin. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju, miðvikudaginn 14. nóvember, kl. 15. Páll Stefánsson og aðrir aðstandendur. Okkar ástkæri Hjörtur Hjartarson lést á heimili sínu í Malmö, Svíþjóð, hinn 7. nóvember sl. Jarðarför auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Vilborg Arinbjarnar 50 ára afmæli Guðrún Gísladóttir Rifi , er fimmtug í dag laugardaginn 10. nóvember. Af því tilefni verður hún að heiman en mun dveljast ásamt fjölskyldu sinni að Minniborgum í Grímsnesi. Góðum vinum og öðru skemmtilegu fólki sem hún þekkir er velkomið að líta þar við í kaffi í dag. Elskuleg móðir mín, dóttir, systir og mágkona, Marta Guðmunda Guðmundsdóttir Hólavöllum 16, Grindavík, lést á Landspítalanum v/Hringbraut þriðjudaginn 6. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 14. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrkt- arsjóð Krabbameinsfélags Íslands. Andrea Björt Ólafsdóttir Guðmundur Finnsson Hallbera Ágústsdóttir Matthildur Níelsdóttir Svanur I. Sigurðsson Níels A. Guðmundsson Hanna M. Harðardóttir systkinabörn og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir okkar, systir, tengdamóðir, amma og langamma, Jóna Soffía Tómasdóttir lést á Landspítalanum hinn 3. nóvember sl. Útför fer fram frá Aðventistakirkjunni þriðjudaginn 13. nóvember kl. 13.00. Aðstandendur. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðbergur Guðnason frá Jaðri, Árskógum 8, Reykjavík, lést á heimili sínu laugardaginn 3. nóvember. Útförin fer fram frá Seljakirkju mánudaginn 12. nóvember kl. 13.00. Kristrún Guðbergsdóttir Magnús Magnússon Guðni Guðbergsson Jóhanna Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. 85 ára afmæli Áttatíu og fimm ára verður mánu- daginn 12. nóvember Bryndís Elsa Sigurðardóttir. Hún tekur á móti ætting jum og vinum á morgun, sunnudag, frá kl. 15.30 í félagsheimili Knattspyrnufélagsins Hauka að Ásvöllum í Hafnarfirði. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra Sigurdórs Jóhannssonar, rafvirkjameistara, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks E-deildar Sjúkrahúss Akraness fyrir hlý samskipti og góða umönnun. Sigríður Eyjólfsdóttir Sigrún Sigurdórsdóttir Sæmundur Guðmundsson Bragi Þór Sigurdórsson Sigríður E. Hauksdóttir Jóhann S. Sigurdórsson Jónína Björk Óskarsdóttir Hlynur Sigurdórsson Jónína Herdís Sigurðardóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jóhanna Bjarnveig Sigurjónsdóttir Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Ölduslóð 30, Hafnarfirði, lést að morgni 4. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðrún Benediktsdóttir Gísli Sveinbjörnsson Kristín Benediktsdóttir Friðjón Sæmundsson Ingólfur Benediktsson Hildur Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.