Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 4
Tuttugu og átta ára
gamall karlmaður hefur verið
dæmdur til 300.000 króna
sektargreiðslu fyrir vörslu
fíkniefna. Í fórum hans fundust
rúm sex grömm af amfetamíni,
tuttugu e-töflur, 1,6 grömm af
hassi og smáræði af
tóbaksblönduðu kannabis. Hann
varði sig sjálfur fyrir dóminum.
Dómurinn féll í Héraðsdómi
Suðurlands. Maðurinn játaði sekt
sína, en hann á langan brotaferil
að baki vegna fíkniefnamála.
Refsingin var ákveðin 300.000
króna sekt, en 22 daga fangelsi ef
sektin verður ekki greidd innan
fjögurra vikna.
Sektaður fyrir
fíkniefnabrot
Georgíuþing
samþykkti í gær mótatkvæða-
laust að styðja neyðarlög þau
sem Mikheil Saakashvili forseti
hafði gripið til að lýsa yfir í
kjölfar harðvítugra átaka milli
óeirðalögreglu og mótmælenda
á götum höfuðborgarinnar
Tíblisi.
Atkvæði féllu 149 gegn engu,
en alls eiga 235 fulltrúar sæti á
Georgíuþingi. Þingmenn
stjórnarandstöðunnar sniðgengu
atkvæðagreiðsluna.
Í tilraun til að slá á ólguna í
landinu hefur Saakashvili
ákveðið að færa forsetakosn-
ingar til janúar næstkomandi.
Þingið styður
forsetann
Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisfélagsins á Álftanesi vilja
Sigurð Magnússon bæjarstjóra úr
starfi. Hann hafi verið dæmdur í
héraðsdómi fyrir vanefndir á
samningum, og siðferðisspurning
vakni um hvort einstaklingur með
slíkan dóm á bakinu sé hæfur til að
stjórna bæjarfélagi.
Dómurinn sem málið snýst um
féll í Héraðsdómi Reykjaness
síðastliðinn þriðjudag. Þar var
Margfeldi ehf. dæmt til að greiða
Hjálmtý Sigurðssyni rúma eina og
hálfa milljón króna vegna
vangoldinna launa. Margfeldi er í
eigu Sigurðar Magnússonar
bæjarstjóra.
Vantrauststillaga var lögð fram
á fundi bæjarstjórnar Álftaness á
fimmtudag. Á fundinum sagði
Sigurður fyrirtæki sitt hafa dregist
með óheppilegum hætti í deilu
milli nýrra eigenda fyrirtækis sem
Margfeldi seldi, og rekstrarstjóra
sem lengi hafði starfað hjá
viðkomandi fyrirtæki. Deilan sé
með öllu óviðkomandi málefnum
Sveitarfélagsins Álftaness eða
störfum sínum sem bæjarstjóra.
Tillagan um að bæjarstjóranum
yrði veitt lausn frá störfum var
felld með fjórum atkvæðum gegn
þremur. Forseti bæjarstjórnar,
Kristján Sveinbjörnsson, færði til
bókar að bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisfélagsins hefðu uppi
ítrekaðan persónulegan og oft
níðingslegan málflutning. Málið
ætti ekkert erindi inn á
bæjarstjórnarfund og hann bæði
þá bæjarfulltrúa sem þyrftu
opinberlega að níða persónulega
aðra bæjarfulltrúa að draga sig í
hlé frá störfum í bæjarstjórn.
„Það er ósköp leiðinlegt að starfa
í svona andrúmslofti, þegar menn
fara með svona bull í bæjarstjórnir,“
segir Sigurður. „Þetta er svona
þegar menn hafa misst sjónar á
málefnunum.“ Hann segist efast
um að íbúar á Álftanesi hafi
nokkurn áhuga á máli sem þessu.
Guðmundur G. Gunnarsson, odd-
viti Sjálfstæðisfélagsins á Álfta-
nesi, segist sem minnst vilja gera
úr málinu. „Við veltum upp þessari
spurningu, hvort það orkaði
tvímælis að maður sem hefur
fengið slíkan dóm sé hæfur til að
vera framkvæmdastjóri bæjar-
félags. Meirihlutinn mat það svo
að þetta væri ekki áhyggjuefni og
þá er málið búið.“
Bæjarfulltrúar biðja
hver annan að víkja
Minnihluti bæjarstjórnar Álftaness vill að bæjarstjórinn fái lausn frá störfum.
Hann hafi nýlega verið dæmdur í héraðsdómi fyrir vanefndir á samningum.
Forseti bæjarstjórnar biður þá að hætta í stjórn sem þurfa að níða bæjarfulltrúa.
Hæstiréttur felldi í
gær úr gildi úrskurð um farbann
gegn lettneskum starfsmanni
starfsmannaleigunnar Nordic
Construction Line, eða GT
verktaka.
Maðurinn hafði verið úrskurð-
aður í farbann til 9. nóvember
vegna rannsóknar á brotum gegn
almennum hegningarlögum en
hann var talinn hafa átt hlutdeild
í meintu broti á tíu starfsmönnum
á Kárahnjúkum sem töldu sig
ekki hafa fengið launakjör í
samræmi við samninga.
Farbann Lett-
ans fellt úr gildi
Indversk stúlka sem
fæddist með fjóra handleggi og
fjóra fótleggi komst í gær til
meðvitundar, tveimur dögum eftir
að útlimirnir sem ofaukið var voru
fjarlægðir í flókinni skurðaðgerð
á sjúkrahúsi í Bangalore. Að sögn
lækna hreyfði hún tærnar, brosti
til móður sinnar og spurði hvað
orðið hefði um þá hluta líkama
hennar sem nú væru horfnir.
Í heimaþorpi hinnar tveggja ára
gömlu Lakshmi töldu trúaðir
hindúar að hún væri hin fjögurra
handleggja hindúagyðja með sama
nafni endurholdguð.
Lakshmi komin
til meðvitundar
„Þetta eru lágar greiðslur
en við höfum ekki meira á milli
handanna,“ segir Þóra
Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri
Styrktarfélags vangefinna, um þær
greiðslur sem fatlaðir fá fyrir vinnu
sína á hæfingarstöðinni Bjarkarási
sem Styrktarfélagið rekur.
Greint var frá því í Fréttablaðinu
á þriðjudag að fatlaður maður sem
starfar á Bjarkarási fékk launaseðil
sem hljóðaði upp á 4.200 krónur í
mánaðarlaun. Þóra segir það hafa
verið mistök hjá hæfingarstöðinni
að nefna greiðsluna laun eins og
gert hafi verið heldur hafi um
hlutdeild verið að ræða.
Hæfingarstöðin tekur að sér ýmis
verkefni fyrir fyrirtæki, svo sem
álímingar og pökkun. Þóra segir
stöðvarnar fá greitt fyrir verkefnin
en stofnanir þurfi sjálfar að standa
straum af kostnaði á hráefni og
tækjum. Greiðslurnar sem fáist frá
fyrirtækjunum renni til þess en sá
afgangur sem eftir verður greiðist
til starfsmanna.
Tryggingabætur fatlaðra eiga að
koma í stað launa samkvæmt
skilgreiningu velferðarkerfisins.
Þóra segist vona að þegar
Tryggingastofnunin mun heyra
undir félagsmálaráðuneytið, eins
og stefnt er á að verði um áramót,
verði bótagreiðslur lagðar niður en
fólki þiggi laun fyrir störf sín á
hæfingarstöðvum og í dagþjónustu.