Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 50
hús&heimili
„Við höfum búið þarna hamingjusöm í tvö
ár,“ segir Arnar Gauti Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri GK og sjónvarpsstjarna úr
Innliti/Útliti, þar sem hann stendur og horfir
á gárur hafsins utan við stofugluggann í fal-
legu fjölbýlishúsi sem reist var á grunni rað-
húss sem fyrri byggingarverktakar skildu
eftir.
„Mér finnst þetta æðislegur staður að búa
á; hér er stórbrotið útsýni til hafs og fjalla,
og mikil ró yfir vötnum. Það er eitthvað ein-
stakt við að keyra ofan í bryggjuhverfið og
minnir á Amsterdam eða Nýhöfn í kóngs-
ins Kaupmannahöfn, en útlendir gestir sem
sækja okkur heim reka oftast upp stór augu
þegar þeir koma á þennan sérstaka stað,“
segir Arnar þar sem hann horfir stoltur á
Aðalbjörgu Einarsdóttur eiginkonu sína þar
sem hún umvefur nýfæddan son þeirra Kilj-
an Gauta, meðan þriggja ára dóttir þeirra
Natalía París leikur sér ánægð í fallegu her-
bergi sínu.
„Nú þegar fjölskyldan hefur stækkað
vantar okkur auka herbergi þegar Kiljan
litli verður of stór til að vera með okkur í
hjónaherberginu en við megum varla hugsa
þá hugsun til enda því við erum svo ánægð
Rómantískt fjölskyldulíf við sæinn
Bryggjuhverfið við Grafarvog er dálítið eins og útlönd. Göturnar eru þröngar og krókóttar. Arkitektúrinn öðruvísi. Og fyrir utan gluggana dugga sofandi
skútur við litla höfn, meðan íbúarnir skottast um og lifa í afskekktu leynihverfi.
Hjónin Arnar Gauti Sverrisson og Aðalbjörg Einars-
dóttir með börnin tvö: Natalíu París, 3 ára, og Kiljan
Gauta, eins mánaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Alla tók sig til einn eftirmiðdaginn og málaði tvo veggi brúna vegna annríkis
húsbóndans, en honum til mikillar ánægju. Hún raðaði fjölskyldumyndum fallega á
annan vegginn, en þeim hjónum þykir ómissandi að hafa myndir af ástvinum sínum
meðal heimilismuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Þessi sérstaki lampi úr Habitat virðist vera
ómálaður strigi þar til togað er í spotta og
á honum kviknar ljós sem lítur út eins og
standlampi. Svörtu hillurnar eru úr Ikea, en
enn vantar á þær glerhurðir.
Arnar og Alla völdu að sleppa rúmgafli ofan við hjónarúmið en mynda annars konar umgjörð með silfur-
litum borðlömpum í yfirstærð á sérsmíðuðum náttborðum. Lampana keyptu þau í Casa, en þessir lampar
voru framleiddir í afar takmörkuðu upplagi í gulli og silfri. Veggfóðrið er svart með flauelsáferð og þurfti
þrisvar sinnum meira af veggfóðri en notað var til að láta munstrið passa.Framhald á bls. 8
Herbergi Natalíu Parísar var sett í forgang þegar
fjölskyldan flutti á Naustabryggjuna. Þetta málverk
er hennar fyrsta og málað af GR Lúðvíkssyni, sem
almennt málar ekki fígúratíft, en gerði litríka seríu
trúða sem prinsessunni hlotnaðist í herbergið sitt.
10. NÓVEMBER 2007 LAUGARDAGUR6