Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 2
Magnús, er ekkert farið að slá
í ástina?
„Neytendur eru allt að því
niðurlægðir þegar þá vantar þjón-
ustu leigubíla á ákveðnum tímum
sólarhrings um helgar,“ segir
Ármann Kr. Ólafsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks. „Á veturna er
þetta stórt mál.“
Ármann spurði Kristján L. Möller
samgönguráðherra á Alþingi á
miðvikudag um hvort hann hygðist
beita sér fyrir fjölgun leigubíla í
miðborg Reykjavíkur um helgar.
Hann segir fólk geta freistast til að
aka ölvað, fái það ekki leigubíl.
„Framundan er
mikill annatími í
tengslum við
skemmtanir í
aðdraganda jóla,
árshátíðir og
þorrablót,“ segir
Ármann. „Það
gengur ekki að
bjóða fólki upp á
það að húka í
kuldanum í þeirri
daufu von að með tímanum aumkvi
einhver leigubílstjórinn sér yfir
viðskiptavin og leyfi honum náðar-
samlegast að setjast um borð.“
Ráðherra tók undir með Ármanni.
„Hér er á ferðinni vandamál sem
nauðsynlegt er að skoða nánar,“
sagði Kristján. „Það má líka bæta
því við að því fleiri bílar sem eru í
akstri, því verri rekstrarskilyrði
verða fyrir þá sem eru í greininni,
en það mun hugsanlega leiða til
hærri notendagjalda.“
Ráðherra sagði að nú væri að
störfum nefnd um heildarendur-
skoðun á regluverkinu sem gildir
um leigubíla. Tillögur Ármanns
verði teknar inn í þá endurskoðun
og sagði ráðherra sér lítast
sérstaklega vel á þá hugmynd hans
að leigubílstjórar mættu gera út
annan bíl um helgar sem um giltu
einfaldari reglur.
Ármann gegnir einnig stöðu
stjórnarformanns Strætó bs. Hann
hefur beðið framkvæmdastjóra
Strætó bs. um að taka saman
minnisblað um reynsluna af rekstri
næturstrætisvagna sem lagt verði
fyrir stjórn. Stjórnin skoði svo
hvort hefja eigi aftur akstur
næturstrætisvagna um helgar.
Ástgeir Þorsteinsson, formaður
Bifreiðastjórafélagsins Frama,
segir oft erfitt að manna leigubíl-
ana um helgar með afleysinga-
mönnum. „Ég held að Ármann
geri sér enga grein fyrir hvað
kostar að reka leigubíl. Þjónustan
hér er sennilega sú albesta í Evr-
ópu og hvergi annars staðar eru
jafn margir leigubílar á mann,“
segir Ástgeir. Hann hvetur
Ármann til að kynna sér málið
betur.
Fólk húkir í kulda í
daufri von um bíl
Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir skort á leigubílum á næturnar um helgar
vera niðurlægjandi fyrir farþega. Þá megi skoða endurreisn næturstrætisvagna.
Samgönguráðherra óttast hærri leigubílagjöld ef fleiri leigubílar fara í akstur.
Siðanefnd Blaða-
mannafélags Íslands hefur
úrskurðað að Trausti Hafsteins-
son, blaðamaður á DV, hafi brotið
gegn siðareglum með ónærgæt-
inni umfjöllun um mann í fjórum
fréttum í ágúst og september.
Maðurinn er í DV sakaður um
„andlegt og líkamlegt ofbeldi“ í
fyrirsögn og einnig er fjallað um
andleg veikindi fyrrverandi
eiginkonu hans og sjálfsvígs-
tilraunir hennar. Segir í úrskurð-
inum að umfjöllun um persónu-
legan harmleik sé vægðarlaus og
eigi ekkert erindi í fjölmiðla.
Umfjöllun DV
sögð vægðarlaus
Tveir sextán og sautján
ára nemendur í sænskum mennta-
skóla voru handteknir í gær fyrir
að hafa hótað rektor skólans
lífláti. „Það er ljóst að atburðirnir
í Finnlandi voru innblástur
drengjanna,“ sagði rektorinn Rolf
Öden í samtali við fréttavef
Dagens nyheter.
Öden vildi ekki tjá sig um
hótunina en sagði drengina vera
upptekna af vopnum og skóla-
skotárásinni í bandaríska bænum
Columbine árið 1999 þegar tveir
nemendur myrtu þrettán manns.
Lögregla telur að drengirnir
hafi reynt að fá einhvern til að
fremja morð.
Hótuðu sænsk-
um rektor lífláti
Leikfangaverslunin
Toys“R“Us
hefur
tilkynnt
Neytenda-
stofu að
ákveðið
hafi verið
að innkalla
föndur-
perlur sem
geta
reynst
lífshættu-
legar ef
börn gleypa þær.
Föndurperlurnar, sem eru af
gerðinni Aqua Dots, eru bleyttar
með vatni til þess að þær festist
saman, en upplýsingar um þær
má finna á blaðsíðu 64 í jólabækl-
ingi Toys“R“Us og á heimasíðunni
www.toysrus.is.
Toys“R“Us hefur stöðvað sölu á
vörunni og beinir því til þeirra
sem keypt hafa perlurnar að skila
þeim sem allra fyrst.
Lífshættulegar
perlur í umferð
Tímabært er að
hækka lágmarksaldur í Finnlandi
til að kaupa skotvopn frá fimmtán
ára upp í átján ára samkvæmt
tillögu opinberrar nefndar sem
talsmaður
innanríkisráðuneytisins, Ilkka
Salmi, greindi frá í gær. Börnum
yngri en átján ára yrði þó áfram
leyft að nota skotvopn undir
eftirliti foreldra.
Skotárásin í finnskum miðskóla
á miðvikudaginn þegar átján ára
nemandi skaut sjö til bana hefur
beint kastljósi að skotvopnaeign í
Finnlandi sem er sú þriðja hæsta í
heiminum. Aðeins Bandaríkin og
Jemen eru með hærra hlutfall.
Í Finnlandi búa 5,2 milljónir
manna og hafa 650.000 manns
leyfi til að eiga skotvopn, eða um
þrettán prósent þjóðarinnar.
Núgildandi lög heimila að fimmtán
ára börn kaupi skotvopn með leyfi
foreldra sinna.
Í viðræðum á vettvangi
Evrópusambandsins um reglur
varðandi skotvopn hafa finnsk
stjórnvöld hingað til verið hörð á
því að viðhalda þessu fimmtán ára
aldurstakmarki á skotvopnaeign.
Innanríkisráðherra Finnlands,
Annel Holmlund, hefur lýst yfir
breyttri afstöðu stjórnvalda. „Þar
sem öll önnur ESB-ríki eru tilbúin
til að taka upp átján ára
aldurstakmark á skotvopnaeign ...
vill Finnland ekki setja sig upp á
móti slíku ákvæði í tilskipuninni
við þessar aðstæður“.
Vilja herða lög um byssueign
Viðskiptafræðistofnun
Háskóla Íslands hefur skilað
álitsgerð um samruna Reykja-
vík Energy Invest og Geysis
Green Energy. Skýrslan var
unnin að beiðni Svandísar
Svavarsdóttur, borgarfulltrúa
VG, sem fer fyrir stýrihópi um
málefni Orkuveitu Reykjavíkur.
Svandís segir skýrsluna
styrkja þau rök sem stýrihópur
borgarráðs hélt fram varðandi
samrunann. Annars hafi
skýrslan litlu við að bæta, þar
sem samruni fyrirtækjanna
hefur þegar verið afturkallaður.
Skýrsluna vann Ársæll Valfells
viðskiptafræðingur.
Samrunaskýrsla
bætir litlu við
Íslensk málnefnd heldur
árlegt málræktarþing í dag, í
ellefta sinn. Þingið ber yfirskrift-
ina „Málstefna í mótun“.
„Þessu sinni helgum við þingið
vinnu við íslenska málstefnu,“
segir Guðrún Kvaran, formaður
Íslenskrar málnefndar. Öllum er
velkomið að koma á þingið,
aðgangur er ókeypis og veitingar í
hádegishléi verða í boði MS. Tveir
gestir munu fá viðurkenningu
fyrir íslenskunotkun í fjölmiðlum.
Einnig verður ályktun um stöðu
tungunnar kynnt.
Þingið hefst klukkan 11 í
hátíðarsal Háskóla Íslands.
Ræða um stöðu
íslenskunnar
Karlmaður og tvær
konur voru í gær dæmd í fangelsi
fyrir tilraun til að smygla tæplega
700 grömmum af mjög sterku
kókaíni til landsins. Karlmaðurinn
var dæmdur í 20 mánaða fangelsi
en konurnar í eins árs fangelsi
hvor.
Karlmaðurinn afhenti annarri
konunni fíkniefnin í Amsterdam í
Hollandi. Hún, og hin konan, földu
efnin innan klæða og í líkama
sínum og fluttu þau þannig til
landsins. Þær voru handteknar
þegar þær komu til landsins í
febrúar. Við yfirheyrslur vísaði
önnur konan á manninn og var
hann handtekinn. Hann viður-
kenndi að hann hefði ætlað að
flytja efnin inn en það hefði verið
fyrir annan mann sem hann nafn-
greindi ekki. Þá sagðist hann enn
fremur hafa ætlað að selja hluta
af efnunum sjálfur. Hann mun
hafa fengið stúlkurnar til þess að
vera burðardýr og var þeim lofað
400 þúsund krónum fyrir að
smygla efnunum. Dómarinn leit
svo á að þau þrjú hefðu staðið
saman að innflutningnum en að
maðurinn hefði skipulagt hann í
því skyni að selja efnin.
Fíkniefnið reyndist við
efnagreiningu vera 80 prósenta
sterkur kókaínbasi. Hefði því mátt
drýgja efnið umtalsvert.
Kókaínsmyglarar í fangelsi