Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 46
hús&heimili
„Þetta er gamalt leikfang sem afi
minn Ingólfur heitinn Benedikts-
son í Dal smíðaði og gaf mér í jóla-
gjöf þegar ég var um það bil fimm
eða sex ára. Þetta er fimleika-
karl sem maður getur látið gera
æfingar á slá með því að þrýsta
saman spýtum sem halda karlin-
um uppi,“ segir Benedikt Ingólfs-
son bass-barítónsöngvari. „Þetta
er einn af mínum uppáhaldshlut-
um og tvímælalaust einn af kjör-
gripum heimilisins.“
Benedikt segir afa sinn hafa
smíðað jólagjafir handa stórum
hópi barnabarna en sjálfur átti
hann tíu börn með konu sinni
Hólmfríði Björnsdóttur. „Þetta
var í þá daga þegar neyslumenn-
ingin var ögn tempraðri en hún
er í dag og fólk gaf sér tíma í
hluti eins og að búa til jólagjafir,“
segir söngvarinn.
Benedikt segir fimleikakarlinn
ekki einungis heimilisstáss held-
ur að hann sé líka ágætis nytja-
hlutur. „Mér þykir til dæmis fínt
að láta karlinn taka nokkrar æf-
ingar á slánni þegar ég er að
búa mig undir einhver verkefni
og smitast þá um leið af nauð-
synlegum keppnisanda. Ekki er
verra að hafa viðeigandi tónlist
í bakgrunni til að ná réttum hug-
hrifum.“
Benedikt hefur haft sönginn
að aðalatvinnu síðastliðin ár. Á
sunnudaginn syngur hann á tón-
leikum í Hallgrímskirkju með
Schola Cantorum. Tónleikarnir
byrja klukkan 20 og bera yfir-
skriftina A capella – frá endur-
reisn til samtíma. Þar verða
ýmsar perlur evrópskrar kórtón-
listar fluttar undir stjórn Harðar
Áskelssonar. vera@frettabladid.is
Heimatilbúið heimilisstáss
Benedikt Ingólfsson á góðan grip sem hefur fylgt honum allt frá barnæsku.
Benedikt Ingólfsson fékk fimleikakarlinn í jólagjöf frá afa sínum þegar hann var
ungur að árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TRÚARLEGAR SPURNINGAR
Þessi sniðuga ljósauppsetning listamannsins
Robert Stadler í kirkjunni Saint-Paul í París, endur-
speglar líklega hugmyndir margra til trúarinnar.
Ljósin setti Stadler upp í tengslum við Nuit
Banche-menn-
ingarhátíðina sem
haldin er árlega í
borginni. Hún var
haldin í fyrsta sinn
árið 2002 en þá eru
söfn og listagallerí
opin alla nóttina.
SÉRFRÆÐINGAR GREINA GAMLA GRIPI
Aldrei er að vita nema dýrmætur forngripur leynist
í geymslunni. Almenningi er boðið að koma með
gamla gripi í Þjóðminjasafnið á morgun, sunnu-
daginn 11. nóvember, til að láta
sérfræðinga safnsins
greina þá.
Sumir eiga í fórum
sínum erfðagripi eða
ættargripi án þess að vita
með vissu aldur þeirra. Til að
fá á þeim nánari deili getur verið
skemmtilegt að fá álit hjá sérfræðingi.
Gripirnir þurfa ekki að vera frá miðöldum til að teljast
gamlir en þetta geta verið útskornir munir, skart eða hvað sem
fólki sýnist vera gamalt.
Sérfræðingar Þjóðminjasafnsins verða á staðnum milli klukkan 14
og 16. Einungis verður reynt að greina muni með tilliti til aldurs, efnis,
uppruna og þess háttar en starfsmenn safna meta ekki verðgildi gamalla
gripa. Að lokinni skoðun taka eigendur gripina aftur með sér heim.
Mælist þessi þjónusta vel fyrir hyggst Þjóðminjasafnið efna til fleiri
greiningardaga á næsta ári.
gamlir munir
lýsing
Forsíðumynd: Valgarður Gíslason tók þessa mynd af Arn-
ari Gauta Sverrissyni ásamt eiginkonu hans Aðalbjörgu Ein-
arsdóttur og börnum þeirra, Natalíu París og Kiljani Gauta.
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykja-
vík, s. 512 5000 Ritstjórar: Sólveig Gísladóttir solveig@
frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is.
Auglýsingar: Ámundi Ámundason s. 517 5724 Útlitshönn-
uður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
ÍSLENSK HANDVERKSHEFÐ er í fyrirrúmi í nýrri hönnun
sem sýnd er um þessar mundir í
Gerðubergi. Heimilisiðnaðarfélag-
ið stendur að sýningunni og fékk
til liðs við sig fjölda fólks sem sér-
hæfir sig í íslensku handverki, list-
iðnaði og nútímahönnun úr fjöl-
breyttu hráefni. Undirtitill sýn-
ingarinnar er Framtíðin er í okkar
höndum enda er markmið félags-
ins að handverkshefðin sé nýtt
sem innblástur að nýjum verkum.
Lokadagur sýningarinnar er á
morgun svo nú fer hver að verða
síðastur að njóta hennar.
Húseigendur!
Aukið þægindin og
lækkið hitunarkostnaðinn
með ECL stjórnstöð á hitakerfið
Kynnið ykkur kosti og verð
ECL stjórnstöðvarinnar frá Danfoss
ECL stjórnstöðvar fyrir hitakerfi
Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins
10. NÓVEMBER 2007 LAUGARDAGUR2