Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 70
Þ
að var í Fontana í
Kaliforníu sem fyrsti
klúbburinn tók upp
nafnið Hells Angels
árið 1948, en fyrir-
myndin að því var
fengin í viðurnefni 303. sprengju-
flugsveitar bandaríska flughers-
ins, sem tók þátt í Evrópustríðinu
í síðari heimsstyrjöld. Vængjaða
hauskúpumerkið, sem varð ein-
kennismerki samtakanna, á sér
fyrirmynd í merki 85. vængs 552.
sprengjuflugsveitar, en höfundur
þess er talinn vera Frank Sadliek,
fyrsti „forseti“ Hells Angels í San
Francisco.
Fljótlega urðu til Hells Angels-
klúbbar víðar í Kaliforníu og á
sjötta og sjöunda áratugnum
breiddust þeir út um Bandaríkin.
„Heilinn“ á bak við uppbyggingu
samtakanna á sjöunda og áttunda
áratugnum var Ralph „Sonny“
Barger, sem gerði klúbbhúsið í
Oakland að óopinberum heims-
höfuðstöðvum samtakanna. Barger
er tvímælalaust frægasti meðlim-
ur samtakanna, meðal annars fyrir
bækur þær sem hann hefur skrif-
að um lífið sem Vítisengill og selst
hafa vel víða um lönd.
Fyrstu Hells Angels-klúbbarnir
utan Bandaríkjanna voru stofnað-
ir á Nýja-Sjálandi árið 1961. Í Evr-
ópu urðu ekki til formlegir Hells
Angels-klúbbar fyrr en árið 1969,
eftir að Bítlarnir buðu fáeinum
Vítisenglum frá San Francisco
með sér heim til Englands. Þá
komust á tengsl milli mótorhjóla-
klúbba í London og Vítisengla
vestanhafs, sem leiddi til stofnunar
fyrstu Hells Angels-klúbbanna
þar í borg.
Nú eru taldir yfir 100 Hells
Angels-klúbbar vera starfandi í 29
löndum. Heildarfjöldi meðlima í
heiminum er þó innan við tvö þús-
und. Því til viðbótar koma svo
meðlimir tengdra klúbba.
Talsmenn Vítisengla segja þá
ímynd samtakanna að þau séu
glæpasamtök komna til af því eina
prósenti svartra sauða sem móti
alla opinbera umfjöllun um sam-
tökin og hin 99 prósent löghlýð-
inna félagsmanna sitji uppi með.
Þegar rýnt er í sögu samtakanna
er glæpastarfsemi þó ótvírætt
mjög snar þáttur í starfseminni.
Fortune Magazine hafði árið 1992
eftir bandarísku alríkislögregl-
unni að veltan af ólöglegri starf-
semi Vítisengla og annarra „útlaga-
mótorhjólaklúbba“ næmi þá allt
að einum milljarði Bandaríkjadala
á ári í heiminum, andvirði 60 millj-
arða króna. Eiturlyfjaviðskipti,
vændi, vopnasmygl og -sala, þjófn-
aður, fjárkúgun og morð eru talin
upp sem glæpir sem gjarnan
fylgdu starfsemi þessara klúbba.
„Vítisenglar, stærstu og þróuð-
ustu samtökin, (...) hafa strangt
innra stjórnkerfi, þróuð fjar-
skiptakerfi og – þegar þörf krefur
– heraga,“ skrifar Fortune Magaz-
ine. Margir bandarísku með-
limanna séu uppgjafahermenn.
Mörgum sé klúbburinn ígildi fjöl-
skyldu. „Þetta eru fóstbræður með
stífar reglur um gagnkvæman
stuðning. Sé ráðist á einn er hinum
skylt að koma honum til varnar.“
Fyrsti Hells Angels-klúbburinn á
Norðurlöndum var stofnaður í
Kaupmannahöfn á gamlársdag
árið 1980. Hann átti sér fyrirrenn-
ara í svokölluðum rokkaragengj-
um. Smátt og smátt fjölgaði klúbb-
unum í Danmörku og víðar á
Norðurlöndum og nú eru þeir
orðnir sjö í Danmörku, sjö í Nor-
egi, sex í Svíþjóð og fjórir í Finn-
landi.
Margt kom upp á yfirborðið um
starfsemi og innri reglur Vítis-
engla í Danmörku og víðar á
Norðurlöndunum þegar hið
grimmilega stríð þeirra við
Bandidos-gengið geisaði á árunum
1994-1997. Í því stríði voru alls 11
manns myrtir, tilraun gerð til að
myrða 74 og 96 særðust, þar af
margir alvarlega svo sem með að
missa útlim.
Síðan „Norðurlandaófriðnum
mikla“ milli Hells Angels og
Bandidos lauk með handabandi
leiðtoga beggja gengja í sjón-
varpsfréttum í Danmörku 25.
september 1997 hafa þau lært að
lifa hlið við hlið og hafa með sér
regluleg samskipti til að forðast
árekstra.
Allmargir meðlimir beggja
gengja hafa verið dæmdir fyrir
fíkniefnaglæpi síðan árið 1997.
Þau hafa þó aldrei verið fjölmenn-
ari og þótt í gengjastríðinu fyrir
rúmum áratug hafi verið sett lög í
Danmörku til að stemma stigu við
starfsemi samtakanna, meðal ann-
ars með því að meina meðlimum
þeirra afnot af klúbbhúsa-
„virkjum“ sínum, hafa lagaleg
skilyrði til að réttlæta algert bann
við starfsemi þeirra aldrei talin
vera uppfyllt.
Vítisenglar um víða veröld
Mótorhjólasamtökin Hells Angels, sem upp á íslensku eru kölluð Vítisenglar, eiga upptök sín í Kaliforníu meðal fyrrverandi her-
manna úr síðari heimsstyrjöld. Þau eru elstu og stærstu samtök sinnar tegundar í heimi, með virka meðlimi í alls 29 löndum.