Fréttablaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 24
Fæddur listamaður
N
otendurnir
sem eru að
dreifa efni
á þennan
hátt eru að
stela frá fátæku fólki
til að gefa nískupúkum
sem tíma ekki að borga
fyrir það efni sem er
órjúfanlegur hluti af
lífi þeirra. Það heyrir
til algjörra undantekn-
inga að íslenskt
tónlistarfólk eða
kvikmyndagerðarfólk
eigi einhverjar
sundlaugar í garðinum
hjá sér. Flestir sem ég
þekki eiga vart til hnífs
og skeiðar og að stela
frá þessu fólki er
alvarlegt mál.“
Þetta hafði Páll
Óskar Hjálmtýsson að
segja um þá sem
dreifðu tónlist af nýrri
plötu hans ólöglega í
gegnum vefsíðuna
torrent.is í síðustu
viku. Hann ætlar sér
að höfða mál á hendur
því fólki sem lak
plötunni á internetið. Í
kjölfarið hefur skapast
mikil umræða um
höfundarétt og
ólöglega dreifingu á
tónlist, kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum.
Vinir og ættingjar
Páls Óskars eru
sammála um að hann
hafi alla tíð verið
réttsýnn. „Hann vill
engum neitt illt og
finnst enginn eiga að
gera nokkrum illt
heldur,“ segir ein
systra hans.
Páll Óskar er sagður
vera fæddur lista-
maður og var listrænn
frá unga aldri. Hann
var ekki nema um
tveggja ára gamall
þegar hann var farinn
að syngja hástöfum og
teikna fallegar myndir.
Þegar hann tók að
eldast fór hann að hafa
áhuga á kvikmyndum
og hefur gert margar
stuttmyndir í gegnum
tíðina. Á menntaskóla-
árunum í MH þótti
vinum hans ekkert víst
að söngur og tónlist
yrðu ofan á hjá honum,
heldur voru þau viss
um að hann yrði
kvikmyndagerðar-
maður. Áhugi hans á
kvikmyndum er enn
mikill, en hann er
sérstaklega hrifinn af
hryllings- og svoköll-
uðum splattermyndum. Þá á hann það til að hóa
saman fólki til þess að horfa á gamla kvikmynd á
filmu.
Páll Óskar er sjálfmenntaður söngvari og hefur
gefið út fjölmargar plötur, bæði einn og ásamt
öðrum. Hann hefur gert mjög fjölbreytta tónlist,
allt frá klassískum plötum með hörpuleikaranum
Moniku Abendroth til popp- og dansplatna. Nýjasta
sólóplata hans, Allt fyrir ástina, er fyrsta dans-
platan hans í átta ár en hún kom út í vikunni. Páll
Óskar tók þátt í
Eurovision-söngva-
keppninni fyrir hönd
Íslands árið 1997, en
hann er talinn einn
helsti sérfræðingur
Íslendinga í keppn-
inni. „Palli er mjög
sérstök manneskja.
Maður sá strax að
hann var öðruvísi en
flestir, bæði einlæg-
ari og heiðarlegri,“
segir góð vinkona
hans. Fólk á ekkert
inni hjá honum og
hann segir alltaf það
sem honum finnst.
Heiðarleiki hans og
einlægni þykir skila
sér í því sem hann
gerir. Hvort sem það
eru tónleikar eða
plötur, brúðkaup eða
jarðarfarir, þá er
hann alltaf jafn
auðmjúkur fyrir
tilefninu og gefur allt
sem hann á í hvert
skipti. „Hann laðar
fram það góða í
fólki.“
Vinir og ættingjar
eru sammála um að
hann sé traustur og
ætíð boðinn og búinn
að hjálpa þeim sem á
þurfa að halda. Hann
er til dæmis duglegur
að heimsækja
aldraðan frænda sinn
á elliheimilið Grund,
og þykir góður við
alla þá sem minna
mega sín. Hann er
mikill tungumála-
maður og á mjög
auðvelt með að læra
tungumál og annað
þeim tengt, til dæmis
kann hann alla texta
utanbókar.
Páll Óskar lifir
mjög heilbrigðu lífi.
„Hann hefur verið í
þessum bransa mjög
lengi og hefur komið
hvað heilastur frá
því, til dæmis hefur
hann aldrei drukkið
eða reykt. Það er bara
á síðustu árum sem
hann er farinn að
drekka kaffi og þá
bara einn bolla ef
hann þarf að vaka til
sjö á morgnana.“
Framlag Páls
Óskars til réttinda-
baráttu samkyn-
hneigðra er mikið.
Hann hefur verið
einn helsti talsmaður
Hinsegin daga á
Íslandi og setið í
undirbúningsnefnd
vegna þeirra frá upphafi. „Hann steig gríðarlega
stórt skref í réttindabaráttunni. Þegar hann var að
byrja í þessum bransa og fólk fór að tala um að
hann væri hommi, þá fór hann bara í viðtal og
sagðist vera hommi. Þá gat fólk ekkert sagt. Þar
kom fram þessi heiðarleiki og einlægni hans, en
líka hugrekkið sem hann býr yfir. Hann var aldrei í
neinum feluleik eða afneitun og hefur hjálpað
mikið í því að gera samkynhneigða sýnilega og
sjálfsagðan hluta samfélagsins.“
Auglýsingasími
– Mest lesið
Eina blaðið á sunnudegi
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Ekki bara stjörnupartí.
Eddan - mikilvægari en margan
grunar.
Bölvun faraósins.
Andlit Tutankhamuns var opin-
berað í síðustu viku. Bölvun
hefur fylgt þeim sem fundu
grafhýsi hans.
Sportið fylgir
Umboðsmaður Íslands
Ólafur Garðarson segir frá
starfinu, samningunum og
samskiptunum við stjórana.
Allt atvinna
Vinsælasta atvinnuauglýsinga-
blað landsins.
Allt sem þú þarft – alla daga