Fréttablaðið - 10.11.2007, Page 42

Fréttablaðið - 10.11.2007, Page 42
Guðlaug Erla Jónsdóttir fór með hópi af nemendum úr Myndlistaskóla Reykjavíkur í listavinnubúðir í Lettlandi. Hópurinn var í heila viku við ýmsa listsköpun í litlum bæ skammt frá Ríga, höfuðborg Lettlands. „Við flugum frá Reykjavík til Kaupmannahafnar og þaðan til Ríga þannig að ferðalagið var sólarhringur,“ segir Guðlaug og bætir því við að hópurinn hafi verið orðinn rosalega þreyttur þegar öllu fluginu var lokið. „Það var líka mun heitara í Ríga en við bjuggumst við þannig að við vorum alveg búin þegar við komum loks á hótelið, þar sem við gistum í tvær nætur.“ Tímann í Ríga notaði hópurinn til að kynnast borginni, sofa og versla. „Síðan tókum við rútu til miðaldabæjar sem heitir Cesis og stærð við Akureyri og við vorum þar í vinnubúðum í viku,“ segir Guðlaug. „Í miðbænum var mjög fallegur garður sem við fengum til afnota þessa viku. Þar bjuggum við yfirleitt til einhver verk á daginn eins og innsetning- ar, skúlptúra eða málverk auk þess sem við breyttum honum dálítið með því að hengja hluti í trén eða annað slíkt,“ bætir hún við. „Á kvöldin héldum við svo sýn- ingar, gerðum skuggaleikhús og stuttmyndir með viðtölum við gamalt fólk frá Ríga sem var á elliheimili rétt hjá okkur,“ segir Guðlaug en að loknum vinnubúð- unum var haldin sýning og kynn- ing á öllum þeim verkum sem hópurinn hafði gert. „Þetta var auglýst mjög mikið og við hittum á rosalega góðan tíma því það var einmitt listahátíð í Cesis á sama tíma,“ segir hún. „Svo hittum við manninn sem stóð á bak við lista- hátíðina en hann er víst mjög frægur í Lettlandi. Hann bauð okkur á óperu, tónleika og ýmis- legt fleira skemmtilegt.“ Guðlaug segir þessa ferð hafa verið mjög skemmtilega, áhuga- verða og fræðandi. „Við kynnt- umst fullt af skemmtilegu fólki og ég vona bara að það verði hægt að gera þetta aftur einhvern tíma,“ segir hún. Listabúðir í Lettlandi Ferðaskrifstofan Vesturheimur sf. hefur skipulagt nýjar ferðir í tilefni af flugi Icelandair til Toronto. „Það er rétt. Við erum með nýjar áherslur árið 2008 vegna flugs Icelandair til Toronto,“ segir Jónas Þór, sem er potturinn og pannan í ferðaskrifstofunni Vesturheimi sem stofnuð var til að efla tengsl Íslands og Íslendinga við afkom- endur íslenskra vesturfara í Norður-Ameríku. Af því sem fram undan er nefnir Jónas bútasaumsferð til Minne- sota 9.-16. apríl og eldriborgara- ferð til Minnesota, Norður-Dakota og Manitoba 13. til 22. maí. „Svo er tíu daga til Toronto, Ottawa og Montreal 25. júní. Þá verða íslenskar nýlendur heimsóttar og Niagara-fossar skoðaðir. Haldið verður upp á þjóðhátíðardag Kan- ada 1. júlí í Ottawa og í Montreal mun standa yfir alþjóðleg djass- hátíð,“ segir Jónas og nefnir í lokin Klettafjallaferð frá 9. til 23. júlí. Í henni er farið með ferju yfir til Vancouver-eyju og dvalið í Vict- oria tvo daga. Þaðan farið upp í fjallaþorpið Whistler þar sem vetrarólympíuleikar verða árið 2010 og áfram um fjöllin þar sem íslenska nýlendan í Markerville verður heimsótt og hús Stephans G. Stephanssonar. Niagara-fossar eru líka á þeirri áætlun. Ferðin er skipulögð í samvinnu við félög Íslendinga á viðkomandi svæðum og frekari upplýsingar eru á www. vesturheimur.com.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.