Fréttablaðið - 10.11.2007, Page 74

Fréttablaðið - 10.11.2007, Page 74
Hver voru morgunverkin? Fyrst: Létt ab-mjólk með Cheerios, blaðalest- ur og stór krús af assam-tei. (Lauftei, að sjálfsögðu!) Síðan: Svaraði fyrirliggjandi tölvupósti og skellti mér því næst á hlaupa- brettið og gekk þrjá kílómetra. Ég var með asnalegustu hárgreiðsluna árið... 1980. Þá lét ég setja í mig tryllt permanent, svona afró-krullur sem voru í tísku á þessum tíma. Hvílíkur hryllingur! Hver er besta minning síðasta árs? Ég safna góðum minningum – mjög meðvitað – og á heilan helling af þeim. Sú síðasta bættist í safnið fyrir nokkrum kvöldum þegar sonur minn galdraði fram besta grænmetislasanja allra tíma og mamma kom og borðaði með okkur. Þú ert ofuruppfinningamaður – hvaða sniðuga tæki býrðu til og gefur öllum í jólagjöf? Auðvitað tæki til að lengja sólarhringinn. Flestir sem ég þekki eiga þá ósk heitasta að hafa meiri tíma til umráða. Og það á að sjálfsögðu líka við um sjálfa mig. Hvaða kæki ertu með? Ég er sífellt að rífa af mér gleraugun og pússa þau. Ég þoli ekki skítug gleraugu og hef stundum orðið mér til skammar með því að bjóða öðrum að pússa gleraugun þeirra. Svo er það hálfgerður kækur hjá mér að klína á mig eldrauðum varalit. Mér finnst ég alveg ómöguleg ef ég er ekki með varalit. Poka af hverju gætirðu borðað án þess að blása úr nös? Ostapoppi. Þó er ég eiginlega hætt að þora að borða popp. Ég hef nokkrum sinnum þurft að leita á náðir tannlæknis þegar maís festist í tannholdinu á mér. Afar vandræðalegt. Hvað ættirðu í raun að vera að gera núna? Mér heyrist garnirnar vera að gaula eitthvað um að ég ætti að vera að borða kvöldmat. Hvað fær þig alltaf til að brosa sama hversu ómögulegur dagurinn var? Sjónvarpsþáttur á BBC sem Stephen Fry stjórnar og nefnist QI. Ég hlæ alltaf svo undir tekur í Vesturbænum þegar sá þáttur er á dagskrá og myndi varla slíta mig frá sjónvarpstækinu þótt eldur kæmi upp í íbúðinni. Vinsamlegast gefið mér ... ... óskastein með ótæmandi innistæðu. Ég lofa að nota hann allri heimsbyggðinni til hagsbóta. Hvaða leikkonu myndir þú fá til að leika í ævisögulegri kvikmynd um þig? Hver yrði lokasetning kvikmyndarinnar? Það verður náttúrulega að ráða nokkrar leikkonur ef myndin á að spanna alla ævina. Lokasenan yrði svona: Grátbólgnir ættingjar og vinir í jarðarförinni, miður sín af sorg og söknuði. En ég sit í lótusstellingu uppi á kistunni – gegnsæ en ekki með vængi – og segi: „Hættið nú að gráta, greyin mín, og verið glöð!“ Hvaða frasa ofnotar þú? Ooo, ég þoli ekki að missa út úr mér „nákvæmlega“ í staðinn fyrir „einmitt“. Samt er þetta alltaf að gerast. Ef þú yrðir að fá þér tattú – hvernig tattú myndirðu fá þér og hvar myndirðu láta setja það? Ég myndi berjast um á hæl og hnakka og aldrei, aldrei, aldrei láta tattúera mig á meðan ég væri með fulla meðvitund. En sniðugasta tattú sem ég hef séð er örsmátt letur á ökkla systurdóttur minnar. Þar stendur: Made in Iceland. Skemmtilegur húmor! Hvaða teiknimyndapersónu myndirðu búa með ef þú yrðir að velja eina? Stjána bláa. Ekki spurning. Hann er svo sterkur að hann gæti varið mig fyrir öllu illu. Svo er ég líka mjög sólgin í spínat, eins og hann. Eftirlætislykt? Er til betri lykt en af gróskumikilli basilíku- plöntu? Ég efa það stórlega. Hvað er það hégómlegasta sem þú veist um? Líf okkar Vesturlandabúa er einn allsherjar- hégómi. Snögg – skáldaðu nýtt heiti á gosdrykk! Gosi. Er svoleiðis drykkur kannski þegar til? Hverju tekurðu fyrst eftir í fari fólks? Hvort það er einlægt eða að leika. Þú tekur að þér gæludýraapa. Hvað nefnirðu hann? Níels, í höfuðið á apa Línu langsokks. Frægasti ættingi þinn? Ætli það sé ekki Loftur Guðmundsson, móðurafi minn, sem var ljósmyndari og einn af fyrstu kvikmyndagerðarmönnum á Íslandi. Þú ert heygð að víkingasið – hvaða þrjá hluti viltu láta grafa með þér? Í fyrsta lagi vil ég láta brenna mig og í öðru lagi finnst mér illa farið með góða hluti að grafa þá með dauðum skrokkum. Besta bók allra tíma? Það getur engin bók staðið undir slíkum titli. Ég get hins vegar nefnt bók sem hafði mikil áhrif á mig. Hún er eftir Brian L. Weiss, nefnist Many Lives, Many Masters og er til í íslenskri þýðingu. Hvert sækirðu innblástur? Ég sæki hann ekkert. Hann mætir bara á staðinn. Á hvaða tíma sólarhrings hentar þér best að skrifa? Frá níu á morgnana til miðnættis. Og að lokum – um hvað er skemmtilegast að skrifa? Mannleg samskipti, mannleg samskipti, mannleg samskipti. Var með asnalegustu hárgreiðsluna árið 1980 Jónína Leósdóttir hefur í rúm 30 ár starfað við skriftir. Meðfram því að skrifa skáldsögur og þýða starf- aði hún sem blaðamaður og aðstoðarritstjóri á tímaritinu Nýju lífi þar sem hún skrifaði meðal annars áhugaverða pistla um mannleg samskipti. Nú hefur Jónína einmitt gefið út bókina Talað út, bók um mannleg samskipti, og skáldsögu fyrir unglinga sem ber heitið Kossar og ólífur. Jónína var tekin í yfir- heyrslu helgarinnar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.