Fréttablaðið - 10.11.2007, Qupperneq 80
Söngleikurinn Hér og nú!
verður frumsýndur á Litla
sviði Borgarleikhússins
annað kvöld. Söngleikur-
inn er samstarfsverkefni
Borgarleikhússins og leik-
hópsins Sokkabandsins.
Leikkonurnar Elma Lísa Gunnars-
dóttir og Arndís Hrönn Egils-
dóttir eru stofnendur Sokka-
bandsins. Hópurinn hefur það að
markmiði að stuðla að nýsköpun í
íslensku leikhúsi og þróa nýjar
vinnuaðferðir. Hópurinn hefur
staðið að nokkrum sýningum sem
hafa vakið mikla athygli undan-
farin ár, til að mynda Mindcamp í
Hafnarfjarðarleikhúsinu og Rit-
skoðarann í Sjóminjasafninu.
Leikstjóri sýningarinnar Hér og
nú! er Jón Páll Eyjólfsson.
Innblásturinn að Hér og nú! er
sóttur í heim glanstímarita,
bloggsíðna og annarra fjölmiðla
sem hafa það að leiðarljósi að
skemmta okkur Íslendingum með
lífsreynslusögum og fréttum af
fræga fólkinu.
Arndís segir sýninguna hafa
átt sér nokkurn aðdraganda. „Við
fengum styrk frá Leiklistarráði
til að setja þetta verk upp og
fengum í kjölfarið í lið með okkur
þetta frábæra fólk sem kemur að
sýningunni, en við höfðum unnið
með þeim flestum áður í fyrri
uppsetningum Sokkabandsins.
Þetta er búin að vera heilmikil
vinna; við sóttum um styrkinn í
fyrra og byrjuðum í vor að vinna
heimildarvinnu með því að
sökkva okkur niður í slúðurblöð
og aðra íslenska fjölmiðla.“
Heimildavinnan var skemmti-
legt ferli en líka erfitt að mörgu
leyti. „Vinur okkar lýsti þessu
vinnuferli mjög vel um daginn
þegar hann sagði að það væri
eins og við værum búnar að borða
ruslfæði í öll mál í tvo mánuði.
Það er ofboðslega mikill skítur
og drulla sem maður þarf að vaða
í gegnum þegar maður sekkur
sér í þennan heim. Maður verður
stundum svolítið sorgmæddur og
fær óbragð í munninn þegar
maður fer svona á kaf í slúður-
menninguna,“ segir Elma Lísa.
Það hefur vart farið fram hjá
nokkrum manni að framboð fjöl-
miðlaefnis og þá sérstaklega
afþreyingarefnis hefur aukist
gríðarlega á fáum árum. Sokka-
bandið langaði til þess að spegla
þessa þróun í verkinu og velta
fyrir sér hvaða áhrif hún hefur á
samtímann.
„Það kom okkur svolítið á óvart
þegar við byrjuðum að vinna
þetta að í þessum fjölmiðlaheimi
er allt sett í sömu hítina; krabba-
meinssjúklingurinn og Séð og
heyrt-stúlkan eru sett fram á
sama hátt. Það er sama hversu
alvarlegt eða léttvægt umfjöllun-
arefnið er, allt fær sams konar
umfjöllun í æsifréttastíl. Við
þurfum öll að fá útrás fyrir van-
líðan okkar og deila tilfinningum
með öðrum, en það er nýjung að
fólk geti borið líf sitt á borð fyrir
alþjóð. Okkur langaði til að velta
fyrir okkur hvað fólk fær út úr
því að viðra líf sitt í fjölmiðlum
og hvað við hin fáum út úr því að
lesa um það,“ segir Arndís.
Leikritið er þó ekki einhliða
gagnrýni á fjölmiðlaheiminn.
Elma segir Sokkabandið ekki
vera að setja sig í predikunar-
stellingar í verkinu. „Við erum þó
ekki að setja okkur á neinn stall
eða að dæma fólk sem kemur
fram í þessum miðlum. En að
sjálfsögðu finnst okkur eitthvað
íhugunarvert við fjölmiðla í dag,
annars værum við varla að setja
upp verk um þetta efni.“
Fyrirhugaðar eru sex sýningar
á verkinu fyrir áramót og verður
hver þeirra einstök þar sem nýr
leynigestur kemur fram á hverri
sýningu. Áhorfendur eru hvattir
til að taka með sér myndavél í
leikhúsið og reyna að ná myndum
af atburðunum sem eiga sér stað
á sviðinu. „Yfirleitt er bannað að
hafa með sér myndavél í leikhús-
ið, en á þessari sýningu hvetjum
við til þess. Við erum svolítið að
vísa í það að blöðin hafa sum
boðið fólki greiðslur fyrir mynd-
ir sem það nær af fræga fólkinu,
til dæmis þegar það er í sundi.
Hver sýning er því mikið ævin-
týri þar sem allt getur gerst,“
segir Elma að lokum.
Kiri á styrktartónleikum
Tvisvar á ári er úthlutað úr Menningar-
sjóði Egils Skallagrímssonar, en sjóður sá
hefur það að markmiði að styrkja uppgang
íslenskrar menningar og listar í Bretlandi.
Sendiráð Íslands í London er í forsvari fyrir sjóðnum.
Sr. Sigurður Arnarson, prestur íslenska safnaðarins í
London, er ritari sjóðsins. „Menningarsjóður Egils
Skallagrímssonar var stofnaður árið 1997 með það að
markmiði að styðja við framgang íslenskrar menning-
ar á breskri grund. Á þessum ellefu árum hefur
sjóðurinn veitt um 100.000 pund til um 70 verkefna.“
Styrktaraðilar að sjóðnum eru íslensk fyrirtæki sem
eru með starfsemi í Bretlandi. „Ég hóf að vinna við
sjóðinn árið 2002. Á þessum fimm árum sem liðin eru
síðan hefur fjöldi þeirra fyrirtækja sem styrkja
sjóðinn aukist talsvert, og segir það sína sögu um
uppgang íslensks viðskiptalífs í Bretlandi. Okkar
reynsla er sú að fyrirtæki eru yfirleitt boðin og búin til
að leggja sjóðnum lið, enda útrás íslenskrar menning-
ar verðugt verkefni,“ segir Sigurður.
Mikil hefð er fyrir styrkveitingastarfsemi sem
þessari í Bretlandi. „Bretar eru afar meðvitaðir um
nauðsyn styrkveitinga til málefna sem ekki eru alltaf
arðbær en eru þó mikilvæg og fellur menningarstarf-
semi í þann flokk. Lagaumhverfið hér er því afar
hagstætt fyrir sjóði sem þennan. Hér þarf til að mynda
ekki að greiða neina skatta af sjóðum sem þessum sem
gerir okkur kleift að reka hann án mikils tilkostnaðar
og að veita myndarlegri styrki en ella.“
Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári og rennur
umsóknarfrestur út 1. maí og 1. nóvember hvert ár.
Sigurður segir sjóðnum berast fjöldinn allur af
umsóknum á ári hverju en að því miður þurfi alltaf að
hafna einhverjum þeirra. Starfsemi sjóðsins hefur
vakið nokkra athygli hjá íslenskum sendiráðum í
öðrum löndum. „Við höfum orðið vör við þó nokkurn
áhuga annarra íslenskra sendiráða á að starfrækja
svipaða sjóði í sínum löndum. Við höfum þannig fengið
fyrirspurnir frá þeim um rekstur sjóðsins og annað
slíkt. En það er ekki gefið að það sé alls staðar jafn
hagstætt að reka svona sjóð eins og hér í Bretlandi og
því má segja að íslensk menning eigi sérlega góða
möguleika á því að ryðja sér til rúms hér,“ segir
Sigurður að lokum.
Íslensk menning í útrás
Kl. 14
Barnabókahöfundarnir Bruce
McMillan og Gunnella hitta lesendur
sína og árita bækur í bókabúðinni
Iðu, Lækjargötu 2a, í dag frá kl. 14-
16. Þau Bruce og Gunnella gáfu
nýverið út bókina „Hvernig konurnar
stöðvuðu blásturinn“ en árið 2005
sendu þau frá sér bókina „Hænur eru
hermikrákur“. Sagan sú hlaut
fjölmargar viðurkenningar, meðal
annars frá New York Times.