Fréttablaðið - 10.11.2007, Page 82

Fréttablaðið - 10.11.2007, Page 82
Skáldið yrkir af mikilli kappgirni í anda frum-módernismans (sem var mótsvar við harmagráti (ný)rómantíkurinnar) þar sem einstaklingnum er vikið til hliðar og persóna ljóðmælandans er nán- ast hlutlaus áhorfandi (undantekn- ingar þó nokkrar, sbr. síðustu 4 ljóðin). Ljóðin eru enda tilvistar- leg, fjalla um ábyrgð mannsins á eigin velferð og val hans á lífsgild- um, ábyrgð hans gagnvart samfé- lagi sínu og jörð. Bestu sprettir bókarinnar eru fersk og sjálfstæð átök við markverðar hugmyndir, og ljóðasmíðin er víða prýðileg (t.d. 15-16, 28, 35 og „tilraunirnar“ bls. 30-32). Ágallinn er náskyldur; mynd- og táknmál sem ætlar sér um of, óþroskuð rödd sem á stund- um þekkir ekki takmörk sín og verður þá ansi víðmælt fyrir vikið (t.d. 10-13 og hér og þar). Skáldið fléttar saman þrjú meg- instef – sem við skulum nefna (1) andi/efni, (2) einangrun/nánd og (3) samryskja. Fyrsta stefið er fyrirferðarmest en átak skáldsins þar ófrumlegast. Síðari stefin tvö eru hins vegar giska athyglisverð og hræra eftirtekt lesandans. Sýn skáldsins er þar víða djúp og tökin fersk þótt braga vefjist þar tunga um tönn inn á milli. Í fyrsta stefinu er áberandi vandlæting, skáldið stillir þar upp andstæðum ólíkra gilda; andi gegn efni, fortíð gegn nútíð, „róman- tíker“ gegn „uppa“, skáldskapur gegn tísku, náttúra gegn borg, andríki gegn (stór)iðju, hóf gegn græðgi, mýkt gegn valdi, orð gegn æði – og tvær markverðustu and- stæðurnar; falin eilífð gegn forg- engileika tímans (samruni = ódauðleiki, sbr. þriðja stef) og tónn gegn sundrungu; hljóðið í skáldskap náttúrunnar sem ábend- ing og viðvörun (tónn/hljóð t.d. 20, 22-23, 30, 54-55, frískar hug- myndir). Annað stefið snýst um einangrun, nálgun og nánd; ótta mannsins við eigin ástríðu, hræðslu hans (og vanmátt) við að „stinga lyklinum í skráargat eigin andlits“ – sbr. Borg bls. 15-16 og „lykilljóð“ þess bls. 51-52 (og 49-50). „Ekki snerta mig!“ (19), „Láttu mig í friði“ (32) segja varnarraddir ljóðsins, tímg- un tilfinninga er þeim forboðin ... má ég nálgast þig, má ég kafa undir? spyr mælandinn; „svarið er hurðaskellur, lokað fyrir hjartaop- in, og flæðið staðnar, í óravíddum hugarflugsins“ (30). Einangrun er því andsköp, „bergmál einbúans“ (50) er þögn, stöðnun sem einung- is taktföst hreyfing við tóna nátt- úrunnar fær fært úr stað með umbreytingu og samruna; „gufa ummyndast í kúlu“ sem „kyn- kraftur“ breytir í „veru“ sem fær- ist „nær, nær, nær“ (36) og krefur manninn um afstöðu og ábyrgð, krefur hann um sitt annað hálf. Og þá hefur annað stefið runnið saman við það þriðja, samryskj- una – og brúað „gapið“ (sbr. 25 og bókarheiti). Samryskja er sam- bland (e. fusion, sbr. kápa), bræðsla, ummyndun og umbreyt- ing = samruni og ný verund; for- senda sköpunar og ódauðleika, andsvar einangrunar, ringulreiðar og fánýtis; undankomuleið frá öngþveiti og tómi – formbreyting, tímgun; maður og jörð í eina sæng, eina kúlu, eina veru (22-23, 33, 35, 54-55) Eilíf sæla? Ekki svo einfalt: Samryskja getur nefnilega líka verið „kímera“ (43); samruni óskyldra efna og þátta, blanda sem ekki blandast, óskapnaður, heilaspuni, fjarstæða, „skálda- stökk“? (58). Niðurstaða? Plat- ónsk. Maðurinn á sér annað hálf (eðli, jafnvel frummynd) sem hann hefur glatað. Lausnin felst í því að „opna“ gáttir hjarta og sálar og sameinast því sem hann hefur týnt (55) – í tónaflóði „lostafullrar einingar sannleika og synd- ar“(33). Skáldleg sýn, mikið hugarflug, áflog við Braga. Skáld í leit að rödd. Skáld sem sér lengra en nef þess nær. Í óravíddum hugarflugsins Einar blaðamaður er að verða lesendum sínum nokkuð kunnur, enda hér á ferðinni fimmta bók höfundar um þennan unga mann sem sífellt flækir sig í glæpamál samfara því að segja frá þeim í ,,Síðdegisblaðinu“. Einar er því orðinn nokkuð þekkt stærð í glæpasöguheiminum á Íslandi. Hann er dæmi um andhetju sem ekki er óalgeng í glæpasögum, í sjálfu sér algjörlega óspennandi týpa. Death of a Clown, slagari frá Kinks, er kveikjan að titli bókar- innar og slagarinn sjálfur rauður þráður í gegnum hana. Hjá Kinks er það sagnamaðurinn sem ligg- ur dauður á gólfinu, enda engin þörf fyrir þjóðsögur meir. Árni notar þekkta þjóðsögu um útburð, ,,Móðir mín í kví, kví“ sem tilvís- un til tilfinninga mæðra sem aldrei verða mæður, vegna fóst- ureyðingar eða annarra ástæðna sem leiða til þess að fóstur verð- ur ekki að barni í fangi móður sinnar. Bókin hefst með bréfi sem les- andinn fær ekki að vita hver skrifaði fyrr en seinna. Í bréfinu er sagan um móður mína í kví, kví, en að sögunni lokinni veltir bréfritari fyrir sér fram og aftur hver barnaði konuna og lýkur þeim vangaveltum með hrotta- legri lýsingu á hópnauðgun. Lesandanum er þá strax ljóst að líklega verði um slíkan glæp að ræða í þessari glæpasögu. Sagan verður hins vegar ekki glæpa- saga fyrr en langt er liðið á bókina. Hún er mun nær því að vera samtímasaga um miðaldra blaðamann sem þó er ekki nema 37 ára. Sagan er vel á veg komin þegar loksins finnst lík. Eftir það hefst atburðarás sem er ákaflega hæg og á lítið skylt við spennu- sögu sem heldur lesandanum við efnið. Allar persónur Árna eru heldur heilsteyptar og lausar við klisjur, en þær eru líka lausar við að vera spennandi til viðkynningar. Einar hefur átt í vandræðum með vín í fyrri bókum Árna. Nú er hann laus við það böl og fer meðal ann- ars inn á meðferðarstofnun. Í bókinni er með hreinskilnum hætti fjallað um það að eiga í bar- áttu við brennivínið og mörgum spurningum svarað um það hvernig það er að fara í meðferð. Bæði hvað fram fer í áfengis- meðferð og minnt á að öll erum við jöfn þegar vanda ber að hönd- um. Smám saman verður flétta glæpa- sögunnar snúnari, fleiri og fleiri eru bendlaðir við málið en fáir fá stöðu grunaðra í hugum lesenda. Sagan gerist í samtímanum á Íslandi, á því er ekki nokkur vafi, persónurnar eru margar hverjar orðljótar sem mögulega er hluti af þeirri samfélags- ádeilu sem hér er á ferðinni. Árni er óhræddur við að varpa upp skuggahliðum sem óneitanlega hljóta að birtast þegar Ísland er kynnt fyrir heimsbyggðinni sem staðurinn til þess að vaka nætur- langt og kynnast fögrum og lauslátum konum. Hann nýtir sér fréttir og atburði úr samfélaginu máli sínu til stuðnings og heldur lesandanum þannig við raunveru- leika efnisins og þann óhugnað sem því fylgir. Dauði trúðsins er glæpasaga úr samtímanum. Sam- tíminn fær þó meira pláss en glæpurinn sem dregur úr mátti spennusögunnar. Naflinn á blaðamanni Þrátt fyrir að liðin séu næstum 140 ár frá því að skáldsag- an Stríð og friður eftir Leo Tolstoj kom fyrst út í bókarformi ríkir ekki friður um hana, því um þessar mundir geisar stríð vestur í Bandaríkj- unum bókaútgef- enda í millum um verkið. Þannig er málum háttað að nú á haust- mánuðum komu út tvær nýjar enskar þýðingar sögunnar. Önnur þeirra, þýdd af hjónunum Richard Pevear og Larissu Volokhonsky, er rúmar tólf hundruð blaðsíður. Þýðingin sú er trú og trygg upphaflegri bók- arútgáfu sögunnar og inniheld- ur því rúmlega 500 persónur og fjöldann allan af útúrdúrum og vangaveltum höfundar. Hin þýðingin er stutt í saman- burði, eða rúmar átta hundruð blaðsíður að lengd. Þýðandi hennar, Bretinn Andrew Brom- field, byggir verk sitt á útgáfu sögunnar sem kom út á bók í Rússlandi árið 2000, en sú hefur að geyma sög- una eins og hún birt- ist í þrennu lagi í rússnesku tímariti árin 1965 og 1866. Þremur árum síðar var hún svo fyrst gefin út á bók, en þá hafði Tolstoj lengt hana talsvert og bætt fjölda persóna og atburða við. Þýðendur þess- arra verka og útgáf- ur þeirra eru nú í beinni samkeppni um hylli banda- rískra lesenda og því hafa ófrægingarherferðir farið af stað þar sem hvert tæki- færi er nýtt til þess að draga í efa ágæti þýðingu hinna. En velta má upp spurningunni hvort hér séu ekki í raun á ferð tvær ólíkar sögur og því gæti verið vel þess virði fyrir áhuga- menn um bókmenntir að kynna sér þær báðar. Stríð um Stríð og frið Rithöfundurinn Iðunn Steinsdótt- ir hefur skrifað fjölmargar bækur fyrir börn og unglinga auk skáld- sögu sem ætluð er fullorðnum. Hún hefur komið víða við í sínum ritstörfum, meðal annars hefur hún sinnt handritaskrifum bæði fyrir leikhús og sjónvarp og skrif- að kennsluefni fyrir grunnskóla. Nýjasta bók hennar, Mánudagur – Bara einu sinni í viku, fjallar um hóp af ungum og uppátækja- sömum krökkum í áttunda bekk. Aðalpersónur bókarinnar eru Unnur, Fannar og Ingvi – ólíkir krakkar sem eiga óvænta samleið einn afdrifaríkan skólavetur. Þetta er sumpart mjög hefðbund- in unglingabók þar sem ákveðin stef eru til staðar – vinátta, kyn- þroski, einelti og stríðni koma við sögu ásamt pælingum um sam- skipti kynjanna og kynslóðabil. Mér er nær að halda að þessi saga hafi átt að verða mynduð fremur en lesin. Uppsetning hennar, samtöl og lýsingar virka í þeim anda – setningar eru stuttar, lýsingar fáar og persónusköpunin nokkuð óskýr. Þetta er heilmikill hópur sem kemur við sögu en fæstar þeirra fá nokkurt bakland. Aðkoman er oft brött í þessari viðburðaríku sögu sem spannar einn vetur í lífi krakkanna og það er skjótt skipt milli „sena“, stundum svo ört að ég var alls ekki viss hvar krakk- arnir voru staddir né hvað klukk- an sló. Það er heilmikill boðskapur í þessari bók – jafnvel óþarflega mikill. Að mínu mati er það vel að vilja beina ungum lesendum inn á réttar brautir en kakódrykkja og bænir þykja mér ekki til þess fallnar og það rýrir trúverðug- leika sögunnar. Bókin fellur líkt og milli þilja því viðfangsefni hennar er mjög dramatískt og grafalvarlegt en afgreiðslan ein- föld og á köflum barnaleg, til dæmis eftirmálar líkamsárásar- innar sem Fannar verður fyrir og eineltismálið sem upp kemur í skólanum. Mögulega hefði sagan orðið skýrari ef aðalpersónan hefði verið ein en ekki þrjár. Krakkarn- ir búa við mismunandi aðstæður sem leggja grunn að býsna spenn- andi sögusviði; Unnur á foreldra sem vinna mikið en á ömmu, afa og langömmu í næsta húsi sem elda og annast systkinahópinn hennar, Fannar á ólánsama og veika móður með fortíð og Ingvar er nýi strákurinn í bekknum sem pönkast er á af einhverjum óskil- greindum ástæðum. Þau eru öll hetjur á sinn hátt en öðlast litla rödd í sjálfri sögunni – það er líkt og við fylgjumst bara með þeim úr fjarlægð. Mánudagsblús Auglýsingasími – Mest lesið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.