Fréttablaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 36
BLS. 4 | sirkus | 23. NÓVEMBER 2007
Þ úsundþjalasmiðurinn Friðrik Weisshappel opnaði í slagtogi við félaga sína, þá Brynjólf Garðarsson og Ingva Steinar, „The Laun-dromat Café“ við Elmegade í Kaupmannahöfn árið 2004. Staður-inn hefur heldur betur slegið í gegn á danskri og erlendri grundu
og þykir einn heitasti staðurinn í kóngsins Kaupmannahöfn. Nú á dögunum
var „brunch“ sem þeir félagarnir bjóða upp á tilnefndur einn sá besti af vin-
sæla vefnum „Alt om Köbenhavn“, eða www.aok.dk. Vefurinn efnir árlega til
netkosningar þar sem þeir tilnefna allt það besta sem boðið er upp á í Kaup-
mannahöfn. „Það eru fimm tilnefningar í hverjum flokki og við etjum þarna
kappi meðal annars við rómaða kaffihúsið Café Evrópu sem staðsett er á
Strikinu. Síðast þegar ég vissi leiddum við kosning-
una með 11 prósenta forskoti en þétt á hæla okkar
kom Café Evrópa.“ Hægt var að taka þátt í kosning-
unni á vefsíðunni www.aok.is og hefur Friðrik
lúmskan grun um að Íslendingar hafi ekki legið á
atkvæðum sínum í kosningunni, enda mörg þúsund
Íslendingar sem hafa heimsótt staðinn í gegnum
árin. „Nú er kosningu lokið en úrslitin liggja ekki
fyrir fyrr en á fullveldisdegi Íslendinga 1. desember,“
segir hann. Þeir sem hafa komist í kynni við vinsæla
„brunchinn“ á The Laundromat Café vilja meina að
hann sé engum líkur og einn sá besti sem um getur.
Hægt er að velja milli tveggja mismunandi „bruncha“
á matseðlinum, Dirty og Clean. „Clean er hugsað
fyrir þá sem kjósa grænmetisfæði en Dirty er fyrir þá
sem vilja fá eitthvað verulega djúsí,“ segir Friðrik og
segir að það sé mikið í húfi enda sé ekki hægt að fá
betri auglýsingu. En hvað er það sem þeir félagarnir
bjóða upp á sem kitlar bragðlauka Dana svo um
munar? „Við leggjum mikla áherslu á að bjóða upp á
fjölbreyttan matseðil. Réttirnir hjá okkur eru vel úti-
látnir og við notum aðeins það besta í matreiðsluna. Sömuleiðis leggjum við
mikið upp úr því að andrúmsloftið sé notalegt og fólki líði vel hjá okkur.“
Það verður nóg um að vera hjá athafnamanninum Friðriki á næstunni.
Hinn 7. desember fagnar hann fertugsafmæli sínu og mun halda heljarinnar
afmælisveislu af því tilefni í sjálfri Kaupmannahöfninni. Friðrik vonast til að
vinir hans sjái sér fært að mæta og gleðjast ærlega með honum áður en and-
vökunætur og barnsgrátur taka við. En Friðrik og unnusta hans, arkitektinn
Tine, eiga von á sínu fyrsta barni í janúar. „Það er lítil stúlka á leiðinni í heim-
inn og við höfum ákveðið að hún muni hljóta nafnið Irma,“ segir Friðrik, hinn
stolti verðandi faðir. Bergthora@frettabladid.is
LÍFIÐ LEIKUR VIÐ FRIÐRIK WEISSHAPPEL, VERÐANDI FÖÐUR, Í KAUPMANNAHÖFN
SLÆR Í GEGN MEÐ „DIRTY & CLEAN“
HANDBRAGÐIÐ LEYNIR SÉR EKKI Friðrik er þekktur fyrir sinn skemmtilega hráa og
hlýlega stíl. Hann smíðaði allar innréttingarnar.
FRIKKAKAFFIHÚS Danir fíla
staðinn í botn en yfirleitt er
hann þéttsetinn af Íslendingum
sem búa í borginni.
Li
st
in
n
g
ild
ir
2
3.
-3
0.
n
ó
ve
m
b
er
2
00
7
Skífulistinn er samantekt af mest seldu titlum í Skífunni og verslunum BT út um allt land.
Pirates of the Caribbean 3
Mýrin
Harry Potter & Order of th Pho
DIE HARD 4
Shrek the Third
Latibær 5
Köld Slóð
Skoppa og Skrítla í Þjóðleikhú
Arthur og Minimóarnir
Simpsons Season 10
SPIDER-MAN 3 (2 DISC)
FANTASTIC FOUR 2 (2 DISC)
Harry Potter the Order of Pho
Deck The Halls
Grey’s anatomy Sería 3
TMNT (2007)
Last Mimzy
Planet Earth Box (5 discs)
Latibær
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
VINSÆLUSTU DVDVINSÆLASTA TÓNLISTIN
Hjálmar Ferðasót
Mugison Mugiboogie
Guðrún og Friðrik Ég skemmti mér um jólin
Páll Óskar Allt fyrir ástina
Sprengjuhöllin Tímarnir okkar
Ýmsir 100 íslensk barnalög
Eagles Long Road Out Of Eden
Katie Melua Pictures
Sigur Rós Hvarf / Heima
Megas Hold er mold
Ný Dönsk 1987-2007
Dísella Solo Noi
Luxor Luxor
Sign The Hope
Eivör Human Child/Mannabarn
Benny Crespo’s Gang Benny Crespo’s Gang
Andrea Bocelli Vivere: Best Of Bocelli CD+DVD
Birgitta Ein
Pavarotti Forever
Védís Hervör Beautiful Life
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
Nældu þér í eintak