Fréttablaðið - 23.11.2007, Page 78

Fréttablaðið - 23.11.2007, Page 78
46 23. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is SKOÐUN Það hefur verið makalaust að fylgjast með málflutningi Geirs Þorsteinssonar, formanns KSÍ, síðustu vikurnar. Hann hefur notað hvert tækifæri til þess að gagnrýna það sem hann kallar ófaglega og ósanngjarna umfjöll- un fjölmiðla. Fjölmiðlar eru vissulega ekki hafnir yfir gagnrýni en gagnrýni á fjölmiðla líkt og aðra verður þá að vera fagleg og byggð á einhverj- um rökum en ekki sandi. Geir er ómálefnalegur með eindæmum í sinni gagnrýni enda hefur hann aldrei nokkurn tímann tekið til eins og eitt lítið dæmi til að rök- styðja sinn málflutning. Það er aumt svo vægt sé til orða tekið. Hvar er fagmennskan? Staðan er einföld. Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er með allt niður um sig rétt eins og KSÍ. Á það hafa fjölmiðlar bent á fag- legan hátt og það sem meira er þá færa þeir rök fyrir gagnrýni sinni. Ef einhvers staðar er skortur á fagmennsku þá er það í vinnu Geirs og félaga. Það var KSÍ sem réð óreyndan Eyjólf Sverris- son sem þjálfara og hélt því síðan fram að það réði besta þjálfarann hverju sinni, það var KSÍ sem tók ekki í taum- ana þegar landsliðið var niðurlægt hvað eftir annað undir stjórn Eyjólfs, það var KSÍ sem bjó til skammar- lega lélega umgjörð fyrir lands- liðið, það var KSÍ sem réð nýjan lands- liðs- þjálfara á einum sólarhring og svona mætti lengi telja. Hvar er fagmennskan í þessum verkum? Hún er hvergi. Fjöl- miðlar hafa bent á þennan skort á fagmennsku í starfi KSÍ. Með öðrum orðum hafa þeir gagn- rýnt og fært rök fyrir máli sínu, ólíkt formann- inum sem skýtur ítrekað púðurskotum út í loftið. Þolir ekki gagnrýni Ástæðan fyrir hegð- un Geirs virðist vera sú að hann þolir enga gagnrýni og það sem verra er – forðast alla málefnalega og fag- lega umræðu sem hann hefur þó lýst svo mikið eftir sjálfur. Í stað þess að vera sífellt með órökstuddar og innistæðulausar árásir á fjölmiðlamenn væri Geir nær að eyða kröftum sínum í að laga umgjörð íslenska karlalands- liðsins svo koma megi því aftur á þann stall sem það er löngu fallið af. Hann á svo sannarlega stóra sök í því máli. Geir mætti einnig huga að því að bæta aðbúnað og réttindi almennra áhorfenda í stað þess að einblína eingöngu á kokkteilboð fyrir hefðarfólkið á áfengis lausum Laugardalsvellinum. Ómálefnalegur og ófaglegur formaður UTAN VALLAR HENRY BIRGIR GUNNARSSON segir sína skoðun henry@frettabladid.is HANDBOLTI Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, vill sjá rót- tækar breytingar á bæði hand- boltaliði bæjarins sem og stefnu bæjaryfirvalda, sem hann segir að styðji ekki nægilega við bakið á íþróttafélögum bæjarins. Hann er svekktur yfir því hversu litlu það hefur skilað að sameina félögin í handboltanum. „Bærinn ætlaði að koma að málum ef félögin yrðu sameinuð. Þá ætlaði bærinn að þurrka upp skuldir handboltadeildanna. Það var því pólitískur þrýstingur á málinu. Eftir því sem ég best veit þá gengur mjög vel að fá styrktar- aðila eftir sameininguna og tekj- urnar hafa því margfaldast. En þegar gamlar byrðar fylgja þá fara peningarnir í að þurrka upp þessar gömlu syndir,“ sagði Rúnar. Hann telur bæinn hafa gert ágæta samninga við félögin en segir hlut- ina ganga allt of hægt fyrir sig. Öll áhersla sé á að þurrka upp skuldir en ekki sé hugað að því að byggja upp liðið. Þar segir hann bæjar- yfirvöld eiga sök að máli. „Það er enginn áhugi hjá bæjar- yfirvöldum á Akureyri fyrir íþróttum. Það sést best á gengi og aðstöðu liðanna hér á Akureyri. Hér er körfuboltalið í efstu deild sem spilar í íþróttahúsi án áhorf- endabekkja. Þessir örfáu áhorfendur sem mæta þurfa að standa á hliðarlín- unni. Það er algjör skömm. Það fer allur kraftur bæjaryfirvalda í menningarmál og íþróttirnar sitja á hakanum. Svo þegar það er ákveðið að gera eitthvað fyrir íþróttir þá finnst manni eins og peningunum sé bara kastað í stað þess að vinna markvisst að einhverju með fjár- magnið,“ sagði Rúnar. Þjálfarinn segir að það sé einnig kominn tími á að losa handbolta- liðið frá félögunum í bænum. „Miðað við hvernig málin hafa þróast fyrstu tvö árin þá sýnist mér að það þurfi að losa hand- boltaliðið undan Þór og KA og færa það undir ÍBA. Það myndi létta á rekstrarpakkanum. Mér sýnist að þarna hafi tveir vandamálapakkar verið samein- aðir og einn stór kominn í staðinn. Mér finnst félögin ekkert hafa hjálpað til í þessu sambandi og hallar þar jafnt á bæði félög,“ sagði Rúnar, sem vill einnig færa heimavöllinn úr KA-húsinu í íþróttahöllina á Akureyri. Hann segir að hægt sé að breikka salinn með litlu niðurrifi þannig að koma megi tveim hand- boltavöllum þversum í húsið. Þar með fengi bærinn í raun nýtt íþróttahús með litlum tilkostnaði. henry@frettabladid.is Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa ekki áhuga á íþróttum Rúnar Sigtrygsson, þjálfari handboltaliðs Akureyrar, gagnrýnir bæjaryfirvöld á Akureyri harkalega fyrir sinnuleysi í málefnum sem snerta íþróttalíf bæjarins. Hann vill losa handboltaliðið frá Þór og KA og flytja heimavöllinn. ÁKVEÐINN Rúnar Sigtryggsson gagnrýnir bæjaryfirvöld á Akureyri harkalega og segir þau ekki hafa áhuga á íþróttum. MYND/PEDROMYNDIR.IS FÓTBOLTI Það hefur lítið farið fyrir nýliðum Grindavíkur í Lands- bankadeildinni á leikmannamark- aðnum það sem af er. Ingvar Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri knattspyrnu- deildarinnar, segir að stefnan sé að styrkja liðið með 4-5 nýjum leikmönnum. Hann segist ekki sjá að þessir leikmenn finnist hér á landi og því muni Grindavík leita út fyrir landsteinana eftir liðs styrk. Milan Jankovic, þjálfari liðsins, hefur þegar farið eina ferð til Serbíu í leit að leikmönn- um og mun fara aftur út að skoða leikmenn. Grindavík er svo að ganga frá nýjum samningi við Paul McShane sem er samningslaus og félagið er einnig að ganga frá kaupum á Jóhanni Helgasyni, fyrrum leikmanni liðsins, sem var í láni hjá félaginu frá Val síðasta sumar. Að sögn Ingvars mun Grindavík greiða sama verð fyrir Jóhann og Valur greiddi fyrir hann á sínum tíma. - hbg Grindavik í leikmannaleit: Ætla að fá 4-5 leikmenn GRINDVÍKINGAR Ætla að festa sig í sessi í efstu deild. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR BADMINTON Ragna Ingólfsdóttir þarf að vera á tánum ætli hún sér að komast á ólympíuleikana næsta sumar. Hún féll í 54. sæti á nýjasta heimslistanum sem var gefinn út í gær en 50 efstu á listanum öðlast þátttökurétt í Peking. Ástæðan fyrir fallinu er sú að mótin tvö sem Ragna vann á dögunum gefa færri stig en í fyrra og svo missti hún eflaust af mikilvægum stigum þegar hún ákvað að taka ekki þátt á opna norska mótinu á dögunum. Ragna keppir næst í Wales um næstu mánaðamót en þaðan fer hún yfir til Rússlands á mót sem fram fer í byrjun desember. - hbg Ragna Ingólfsdóttir: Fellur enn á heimslistanum RAGNA INGÓLFSDÓTTIR Er í harðri baráttu um að komast inn á ólympíu- leikana næsta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR Arnór Smárason hefur vakið athygli undanfarið fyrir frábæra spilamennsku með U-21 árs landsliði Íslands. Hann fór til Hol- lands í janúar árið 2004 og hefur hægt og rólega verið að vinna sig upp hjá liði Heerenveen. Eftir að hafa leikið með unglingaliðum félagsins hefur Arnór verið að spila vel og skorað mikið með varaliði Heerenveen og því bankað hressilega á dyrnar hjá aðalliðinu. „Þetta er búinn að vera frábær tími síðan ég kom til félagsins og ég hef bætt mig mjög mikið í fótbolta. Ég æfi nú á fullu með aðalliðinu og það er mjög lærdómsríkt, og enn fremur hef ég verið að standa mig vel í leikjum með varaliðinu og hlýt að fá tækifæri með aðalliðinu fljótlega,“ sagði Arnór. Heerenveen er sem stendur í fjórða sæti hollensku deildarinnar á eftir stórlið- unum Ajax, Feyenoord og PSV. Með liðinu leika menn á borð við markahrókinn Afonso Alves sem skoraði 35 mörk í 31 leik í hollensku deildinni í fyrra. „Það er frábært að æfa með Alves og maður lærir alveg helling af því að fylgjast með honum í leikjum og á æfingum,“ sagði Arnór og kvaðst kunna vel við sig í Hollandi. „Heerenveen kom mér í hollenskukennslu þrisvar sinnum í viku um leið og ég kom út og ég hef búið vel að því síðan þá og er orðinn altalandi á hol- lensku. Ég kann líka vel við mig í heimabæ liðsins, sem er rólegur og notalegur 40 þús- und manna bær. Þegar ég kom fyrst út var Ari Freyr Skúlason hjá liðinu og eftir að hann fór kom svo Björn Jónsson, sem er Skagamaður eins og ég, og það er mjög fínt að hafa annan Íslending hjá liðinu,“ sagði Arnór. Hann kvaðst einnig jafnan hlakka mikið til þess að hitta félaga sína í U-21 árs landsliði Íslendinga. „Það er mikill heiður að fá tækifæri til að spila fyrir land sitt og það er líka mjög góður andi í U-21 árs liðinu og það sýnir sig líka inni á vellinum. Það er mjög jákvætt og ég fagna því að nýráðinn landsliðsþjálfari sé óhræddur við að gefa ungum leikmönnum eins og Theódóri Elmari, Eggerti og Bjarna Þór tækifæri með aðalliðinu.“ ARNÓR SMÁRASON, HEERENVEEN: HEFUR LEIKIÐ AFAR VEL MEÐ U-21 ÁRS LANDSLIÐI ÍSLANDS UNDANFARIÐ Fæ vonandi tækifæri með aðalliði Heerenveen > Ekki framlengt við Ingram Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur ákveðið að fram- lengja ekki samninginn við hinn íturvaxna og vinsæla leik- mann, Maurice Ingram. Bandaríkjamaðurinn kom hingað til lands á dögunum í frekar döpru líkamlegu ástandi en stefnt var á að koma honum í form fyrir nýja árið. Þá átti hann einnig við einhver meiðsl að stríða. Þá hefur Marcin Konarzewski óskað eftir því að vera leystur undan samningi hjá Tindastól en hann lék ágætlega fyrir félagið í vetur. FÓTBOLTI Albert Sævarsson, 34 ára markvörður, sem lék alla leiki með liði Njarðvíkur í fyrstu deildinni síðasta sumar, hefur ákveðið að færa sig um set og leika með ÍBV næsta sumar, en þetta kom fram á heimasíðu ÍBV liðsins í gær. Albert gerði áður garðinn frægan með Grindavík og B68 í Færeyjum. Á heimasíðu ÍBV kemur einnig fram að hinn efnilegi Andri Ólafsson, sem lék 16 leiki með ÍBV síðasta sumar, hafi ákveðið að framlengja samning sinn við félagið og spilar hann því að öllu óbreyttu með liðinu til ársins 2010. Ljóst er að Eyjamenn eru stórhuga fyrir átökin í fyrstu deildinni næsta sumar og nýtt knattspyrnuráð félagsins strax farið að láta til sín taka. - óþ Fyrsta deildin í fótbolta: ÍBV styrkir sig fyrir átökin EYJAMAÐUR Markvörðurinn Albert Sævarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við Eyjamenn og hjálpa þeim í bar- áttunni í fyrstu deild næsta sumar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.