Fréttablaðið - 23.11.2007, Page 82
50 23. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
FÓTBOLTI Eggert Gunnþór Jónsson,
19 ára leikmaður Hearts í skosku
deildinni, hefur vakið verðskuld-
aða athygli undanfarið fyrir góða
spilamennsku og samkvæmt
heimasíðu dagblaðsins Edinburgh
News ku hann vera undir smásjá
fjölda stórra félaga á Englandi og
í Evrópu.
Fyrsti A-landsleikur Eggerts
gegn Danmörku í fyrrakvöld, þar
sem hann kom inn á sem vara-
maður og spilaði 17 mínútur, á
eftir að verða enn frekar til þess
að félög fylgist með honum á
næstunni, en Eggert er samnings-
bundinn Hearts til ársins 2010.
„Ef leikmenn þínir spila vel
hefur það eðlilega í för með sér að
þeir draga að sér athygli annarra
liða, hvort sem það er frá Eng-
landi eða annars staðar í Evrópu,“
sagði Stephen Frail, aðstoðar-
stjóri Hearts, í viðtali við dagblað-
ið Edinburgh News í gær og hrós-
aði Eggerti mikið.
„Hann er mjög ungur og hefur
ekki spilað mikið, en hefur staðið
upp úr í hvert skipti sem hann er í
liðinu. Eggert er metnaðarfullur
og einbeittur en á sama tíma mjög
afslappaður ungur drengur. Ég
vona innilega að hann nái að upp-
fylla drauma sína sem atvinnu-
maður í fótbolta hjá Hearts-liðinu,
því ég er viss um að framtíðin sé
björt hjá honum í boltanum. Ég er
jafnframt mjög ánægður fyrir
hans hönd að hann hafi spilað sinn
fyrsta A-landsleik og hann átti
svo sannarlega skilið að fá tæki-
færi á þeim vettvangi,“ sagði
Frail.
Ólafur Garðarsson, umboðs-
maður Eggerts, sagði í samtali við
skoska blaðið að mörg lið hefðu
fylgst með Eggerti undanfarið.
„Ég get staðfest að mörg lið
hafa fylgst grannt með Eggerti
undanfarið spila í skosku úrvals-
deildinni. Þetta eru stór lið frá
Skandinavíu og meginlandi Evr-
ópu ásamt nokkrum enskum
liðum,“ sagði Ólafur en ítrekaði
að Eggert væri sáttur hjá Hearts.
„Eggerti líður mjög vel í Skot-
landi og er ánægður með að fá að
spila jafn mikið með aðalliði
Hearts og raun ber vitni. Það er
löng leið á milli þess að skoða leik-
mann og bjóða í leikmann,“ sagði
Ólafur. - óþ
Eggert Gunnþór Jónsson er undir smásjá fjölda liða samkvæmt Edinburgh News:
Eggert Gunnþór vekur athygli
EFTIRSÓTTUR Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður Hearts, er eftirsóttur samkvæmt
skoska blaðinu Edinburgh News. FRÉTTABLAÐIÐ/SNS GROUP
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
FRUMSÝND 23. NÓVEMBER
Vinningar eru Bíómiðar
fyrir tvo, DVD myndir,
varningur tengdur myndinni
og margt fleira!
SENDU SMS JA DRF
Á NÚMERIÐ 1900OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
FÓTBOLTI Frank Lampard, leik-
maður Chelsea og enska lands-
liðsins, er helsta skotmark
Juventus samkvæmt ítalska
blaðinu Corriere dello Sport í
gær, en Tórínóliðið ætlar að
styrkja leikmannahóp sinn til
muna eftir tímabilið. Ólíklegt er
þó að Lampard komi til Ítalíu
strax þegar janúarglugginn
opnast samkvæmt heimildar-
manni blaðsins, en Juventus mun
hafa verið í sambandi við Steve
Kutner, umboðsmann Lampard, í
tengslum við félagaskipti í júní.
Núverandi stjóri Juventus,
Claudio Ranieri, keypti einmitt
Lampard til Chelsea frá West
Ham á ellefu milljónir punda á
sínum tíma þegar hann var stjóri
Chelsea. - óþ
Ítalski fótboltinn:
Lampard á leið
til Juventus?
ENDURFUNDIR? Ranieri leggur mikla
áherslu á að fá Lampard til Juventus.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Steve McClaren var í
gær rekinn sem þjálfari enska
landsliðsins eftir slakt gengi þess
undanfarið og að mati Sky Sports-
fréttastöðvarinnar er mikilvægt
að eftirmaðurinn sé maður með
bein í nefinu. Sky Sports birti í
því samhengi lista af átta
hugsanlegum eftirmönnum og
þar eru nefndir; José Mourinho,
Alan Shearer, Martin O‘Neill,
Arsene Wenger, Guus Hiddink,
Luiz Felipe Scolari, Harry
Redknapp og Sam Allardyce.
Mourinho og Allardyce komu
fram í fjölmiðlum í gær og
sögðust ekki hafa áhuga á
starfinu. - óþ
Enska landsliðið þjálfaralaust:
Ekki starf fyrir
hvern sem er
HANDBOLTI Valur tapaði 24-31 fyrir
ungverska liðinu MKB Veszprém í
lokaleik sínum í F-riðli Meistara-
deildar Evrópu í handbolta í Voda-
fone-höllinni að Hlíðarenda í gær-
kvöldi.
Jafnræði var með liðunum
framan af leik og staðan var jöfn
5-5 þegar rúmar tíu mínútur voru
liðnar af leiknum. Þá tók við slakur
kafli hjá heimamönnum og gest-
irnir skoruðu þrjú mörk í röð og
breyttu stöðunni í 5-8.
Valsmenn skoruðu hins vegar
næstu tvö mörk eftir það og
Íslandsmeistararnir héldu vel í
við ungversku meistarana. MKB
Veszprém náði mest fjögurra
marka forystu þegar vel var liðið
á fyrri hálfleik, 8-12, en Valsmenn
náðu með mikilli baráttu að vinna
sig aftur inn í leikinn og jöfnuðu
leikinn 13-13. Valsmenn komust
svo yfir 14-13 í lok fyrri hálfleiks,
áður en gestirnir jöfnuðu úr víta-
kasti á lokasekúndum hálfleiks-
ins, 14-14, og þar við sat þegar
fyrri hálfleikur var flautaður af.
Sannarlega frábær frammistaða
hjá Valsmönnum í fyrri hálfleik
og ánægjulegt að sjá hve margir
leikmenn lögðu hönd á plóginn,
þar sem alls tíu leikmenn Vals
skoruðu mörkin fjórtán. Ólafur
Haukur Gíslason, markvörður
Vals, var einnig í fínu formi og
varði 10 skot í fyrri hálfleik.
Veszprém byrjaði seinni hálf-
leik betur og skoraði fyrstu tvö
mörkin og það reyndist Val erfitt
eftir góðar lokamínútur í fyrri
hálfleik. Ungverjarnir héldu
áfram að auka forskot sitt og
þegar rúmur stundarfjórðungur
var liðinn af seinni hálfleik var
staðan orðin 19-25 fyrir gestina.
Þrátt fyrir vonlitla stöðu gáfust
Valsmenn aftur á móti aldrei upp
og spiluðu á köflum stórfínan
handbolta gegn virkilega sterkum
mótherja. Lokatölur í leiknum
urðu 24-31 fyrir MKB Veszprém
og Óskar Bjarni Óskarsson, þjálf-
ari Vals, var ágætlega sáttur með
strákana sína í leikslok, sérstak-
lega í fyrri hálfleik.
„Þetta var stórkostlegur fyrri
hálfleikur hjá okkur og við vorum
að standa vel í vörninni á móti
þeim og kerfin að virka fínt hjá
okkur sóknarlega. En ég hefði
viljað sjá seinni hálfleik þróast
öðruvísi og fyrstu tíu mínúturnar
voru mjög slakar hjá okkur. Ég
vissi að ungverska liðið hafði oft
verið að lenda í erfiðleikum á síð-
ustu tíu mínútunum í leikjum
sínum í Meistaradeildinni til þessa
og því var frekar svekkjandi að
vera svona langt á eftir þeim.
Ég er ósáttur með hvað við
létum markvörð þeirra verja
mikið frá okkur, en að sama skapi
sáttur með hvað við vorum að
rúlla á mörgum leikmönnum og
allir útileikmenn okkar nema einn
voru á meðal markaskorara. Mér
fannst dómararnir oft á tíðum í
seinni hálfleik koma með hendina
upp of snemma, en það er svo sem
ekkert við því að segja,“ sagði
Óskar Bjarni og kvaðst ánægður í
heildina litið með reynsluna af
Meistaradeildinni.
„Þetta er búin að vera frábær
reynsla fyrir ungt lið eins og okkur
og stundum var þetta kannski eins
og að keppa í júdóflokki upp fyrir
sig, en strákarnir voru samt alltaf
að reyna og eiga hrós skilið. Ég er
virkilega stoltur af fyrri hálfleikn-
um í kvöld og vonandi náum við að
læra af reynslunni,“ sagði Óskar
Bjarni.
omar@frettabladid.is
Ungverjarnir of sterkir fyrir Val
Valur tapaði 24-31 gegn ungverska liðinu MKB Veszprém í lokaleik sínm í Meistaradeild Evrópu í hand-
bolta. Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, hrósaði strákunum sínum fyrir góða baráttu í keppninni.
HINGAÐ OG EKKI LENGRA Valsmaðurinn Sigfús Páll Sigurðsson fær hér harðar mót-
tökur frá ungverskum varnarmönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Valur-MKB Veszprém 24-31
Mörk Vals (skot): Baldvin Þorsteinsson 6/1
(9/1), Kristján Karlsson 4 (6), Ernir Hrafn
Arnarson 3 (6), Elvar Friðriksson 3/1 (6/2), Sigfús
Páll Sigfússon 2 (5), Ægir Jónsson 1 (1), Gunnar
Harðarson 1 (2), Ingvar Árnason 1 (2), Hjalti
Pálmason 1 (3), Fannar Friðgeirsson 1 (3).
Varin skot: Ólafur Haukur Gíslason 15/1 (40/2)
38%, Pálmar Pétursson 3 (9/2) 33%.
Hraðaupphlaup: 5 (Baldvin 5).
Fiskuð víti: 5 (Ernir 2, Ingvar, Baldvin, Ægir).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk MKB Vesprém: Zarko Sesum 9, Marko
Vujin 6, Gyula Gal 4, Peter Gulyas 3, Zarko
Markovic 3, Ferenc Ilyés 2, Carlos Perez 2, Gergo
Ivancsik 1, Tamas Ivancik 1.
Varin skot: Dejan Peric 17/2.
Hraðaupphlaup: 5 Fiskuð víti: 4
Utan vallar: 4 mínútur.
ÚRSLITIN Í GÆR