Fréttablaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 88
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórgunnar
Oddsdóttur
Stundum þarf að benda fólki á augljósar staðreyndir. Það var
líklega það sem vakti fyrir Stein-
unni Valdísi Óskarsdóttur alþingis-
konu þegar hún lagði fram þings-
ályktunartillögu í vikunni um að
tekið yrði upp nýtt heiti á embætti
ráðherra. Heiti sem bæði kynin
geta borið.
ÞÓTT konur hafi gegnt embætti
ráðherra um áratuga skeið liggur í
augum uppi (í það minnsta þegar
búið er að benda manni á það) að
konur geta ekki verið ráðherrar.
Konur geta verið forstjórar og að
sjálfsögðu geta þær verið for-
menn og yfirmenn því konur eru
jú menn. Konur geta hins vegar
ekki verið herrar. Það er bara
ósköp einfalt. Þess vegna voru
allar fígúrurnar í bókunum um
Herramennina karlkyns og þess
vegna voru engar stúlkur í hópi
appelsínugulu einstaklinganna
sem kepptu um titilinn Herra
Ísland á miðvikudagskvöld.
Í fyrstu þótti mér þetta hálfgerður
tittlingaskítur hjá Steinunni enda
hljóta brýnni mál að bíða afgreiðslu
í þinginu. Svo fór ég að hugsa og
sá hverslags gargandi snilld þetta
er. Hugmyndin hefði bara þurft að
koma fram viku fyrr. Þá hefði
þjóðin getað sameinast í sam-
keppni um nýtt starfsheiti á degi
íslenskrar tungu. Það hefði nú
aldeilis verið í anda Jónasar sveit-
unga míns.
ÉG efast stórlega um að tillagan
nái fram að ganga. Íslendingar
eru nefnilega óttalegir leiðinda-
púkar. Við erum eins og fúli gaur-
inn í partíinu sem nennir ekki að
fara í samkvæmisleikina með
öllum hinum af því að hann er of
töff til að vera með. Sömu leið-
indaskjóðurnar og býsnuðust yfir
látunum á degi íslenskrar tungu
með þeim rökum að tungumál eigi
að fá að þróast og málvernd sé
hallærisleg vilja nú standa vörð
um starfsheitið ráðherra og hafa
gleymt öllum sínum þróunarkenn-
ingum.
ÞAÐ er kannski ekkert þjóðþrifa-
mál að gera ráðherratitilinn kyn-
lausan en það væri samt stór-
skemmtilegt. Möguleikarnir eru
óþrjótandi. Það mætti jafnvel búa
til sjónvarpsþætti í kringum þetta
þjóðarátak þar sem fólk skiptist í
lið með nýyrðin og keppist við að
senda SMS til að kjósa sína tillögu
áfram. Seinna mætti taka fleiri
embætti fyrir og gera það að
árvissum viðburði að búa til nýyrði
í stað úreltra starfsheita. Svo lengi
sem menn láta ljósmóðurheitið í
friði. Sumar perlur íslenskrar
tungu eru hafnar yfir alla kynja-
pólitík.
Herraþjóðin
Í dag er föstudagurinn 23.
nóvember, 327. dagur ársins.
10.20 13.14 16.07
10.24 12.59 15.33
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
KEMUR
ÚT Á
MORGUN!
Leggur spilin á borðið!
Dramatískt lífshlaup Guðna Ágústssonar; skemmtilegar sögur,
hatrömm átök að tjaldabaki. Einn vinsælasti stjórnmálamaður
þjóðarinnar segir söguna eins og hún horfir við honum.
Sigmundur Ernir Rúnarsson ræðir við Guðna en
styðst líka við fjölmargar heimildir sem ekki hefur
verið vitnað til áður.
Guðni og
Sigmundur Ernir kynna bókina í Bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18, í dag kl. 17. Allir velkomnir
– Léttar veitingar