Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.12.2007, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 16.12.2007, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 SUNNUDAGUR 16. desember 2007 — 342. tölublað — 7. árgangur VEÐRIÐ Í DAG Hátíðamatur Fallegar myndir, uppskriftir og ráð um forrétti, aðal- rétti og eftirrétti eru meðal efnis í sérblaði um mat. FYLGIR FRÉTTA- BLAÐINU Í DAG Matur OPIÐ: SUNNUDAG KL: 12-18 Ljósakrónur STÚDENTABLAÐIÐ HÁSKÓLINNH MENNINGM PÓLITÍKP fylgir Fréttablaðinu í dag! Matur [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ] Desember 2007 ÞAÐ SEM VEX OG GRÆR VIÐ OKKAR FÓT HANGIKJÖT NÚTÍMANSKARTÖFLUR ERU BRAUÐ JARÐAR HEITREYKT GÆS Bjóralið og nuddað naut forréttur að hætti Grillsins Andabringur – einfaldur veisluréttur Nanna Rögnvaldardóttir skrifar Lagskipt og leikandi jóladesert Friðriku Geirsdóttur Meðlæti MÁLTÍÐIN FULLKOMNUÐ Þrjár góðar uppskriftir að rauðkáli, ítölsku eggaldini og Waldorfsalati í nýjum búningi. Góðir gestir í Berlín Cat Stevens vill setja upp söngleik í leikhúsi Helga Björnssonar. FÓLK 58 ALLHVASST Í dag verða suðaustan 10-18 m/s sunnan og vestan til annars hægari. Hvessir austan til seint í dag. Dálítil rigning sunnan og vestan til, einkum síðdegis. Skýjað með köflum á Norðausturlandi. Hlýnandi veður. VEÐUR 4 JÓLALEGASTI GLUGGINN Það var mikið um dýrðir í versluninni 38 þrep við Lauga- veg í gær en gluggi verslunarinnar var valinn sá jólalegasti af samtökunum Miðborg Reykjavíkur. Eflaust hefur gamli hesturinn átt drjúgan þátt í að heilla dómnefndina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÖRYGGISMÁL Björn Bjarnason dóms- málaráðherra segir það stílbrot að koma á fót nýrri stofnun í kringum ratsjárkerfið hér á landi, í ljósi þess að vel hafi gengið að samhæfa störf þeirra sem koma að öryggis- málum. Þetta er þvert á hugmynd- ir Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt- ur utanríkisráðherra um stofnun nýrrar varnarmálastofnunar, að mati Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna. „Ágrein- ingurinn hefur verið staðfestur svart á hvítu.“ Frumvarp Ingibjargar um varn- armál er til umræðu í þingflokkum stjórnarliða og verður lagt fram á vorþingi. Björn kynnti ríkisstjórninni nýja skýrslu um víðtækar öryggisráð- stafanir á vegum dóms- og kirkju- málaráðuneytis og stofnana þess á föstudag. Í niðurstöðum kynningar á skýrslunni segir að mikið hafi áunnist á undanförnum árum við að samhæfa störf allra sem að öryggismálum koma, og Björn heldur áfram: „Stílbrot á þeirri þróun að koma á fót nýrri stofnun í kringum ratsjárkerfið. Íhuga alla þætti vel, áður en það skref er stig- ið.“ Spurður um hvort ágreiningur sé innan stjórnarflokkanna um stofnun varnarmálastofnunar segir Björn svo ekki vera. Stílbrotið segir hann felast í því „ef ratsjár- stofnun er ekki hluti þess sam- hæfða öryggiskerfis, sem hefur verið þróað hér undanfarin ár. Stofnun á vegum utanríkisráðu- neytisins kemur ekki í veg fyrir, að um slíka samhæfingu verði að ræða.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra boðaði stofnun varnarmálastofnunar á fundi Varð- bergs og Samtaka um vestræna samvinnu í lok nóvember. Kom fram í máli hennar að ekki ætti að blanda saman varnarviðbúnaði og borgaralegum stofnunum. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri grænna, segir að ágreiningur stjórnarflokkanna um öryggismál hafi verið staðfestur. „Þetta er augljóst dæmi um að þetta er bandalag um völd en ekki venjuleg málefnabundin ríkis- stjórn. Stjórnin hefur svikið öll lof- orð um virkt þverpólitískt sam- ráð.“ Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lýst því yfir að réttara væri að Samhæfing- armiðstöðin í Skógarhlíð læsi úr merkjum íslenska loftvarnarkerf- isins en að stofnuð verði sérstök varnarmálastofnun. Hann segir ljóst að skiptar skoðanir séu um það innan stjórnarflokkanna hvort hægt sé að blanda saman rekstri sem tengist NATO og borgaraleg- um verkefnum hér á landi. Ekki náðist í utanríkisráðherra við vinnslu fréttarinnar. - bj / - shá Stofnun um ratsjárkerfið er stílbrot Ný stofnun í kringum ratsjárkerfið er stílbrot, segir dómsmálaráðherra. Hann segir ekki ágreining um málið í ríkisstjórn. Þvert á hugmyndir utanríkisráð- herra um varnarmálastofnun, segir stjórnarandstaðan. LÖGREGLUMÁL Tveir hettuklæddir menn brutust inn í Bauluna í Borgarfirði í fyrrinótt. Þjófarnir brutu upp hurð til að komast inn og höfðu á brott með sér poka af karamellum. Mennirnir óku síðan á brott og hefðu ef til vill komist upp með athæfið hefðu þeir ekki kastað karamellunum út um bílglugga skammt frá Blönduósi. Sú slæma hegðun vakti athygli lögreglunn- ar sem stöðvaði mennina og handtók þá. - þo Hettuklæddir brutust inn í Bauluna í Borgarfirði: Stálu poka af karamellum Þetta er augljóst dæmi um að þetta er bandalag um völd en ekki venjuleg mál- efnabundin ríkisstjórn. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON FORMAÐUR VINSTRI GRÆNNA NÁTTÚRA „Þetta er í fyrsta skipti sem sannað þykir að hér voru tófur fyrir landnám,“ segir Páll Her- steinsson, prófessor í spendýrafræði. Um 3.500 ára gömul bein íslenskra tófna fundust á Hvalsárhöfða milli Kollafjarðar og Steingrímsfjarðar á Ströndum. Niðurstaða rannsóknar Páls og fleiri dýrafræðinga á beinunum birtist í Náttúrufræðingnum. „Það eru til þjóðsögur um að tófan hafi verið flutt hingað til lands af mönnum,“ segir Páll. Rannsóknin rennir aftur á móti stoðum undir þá kenningu að tófur hafi verið á Íslandi frá lokum ísaldar. Það reynist þó erfitt að sanna að þær hafi verið svo lengi. „Hellirinn sem þær fundust í reis upp yfir sjávarmál fyrir um 4.000 árum. Til þess að finna eldri leifar þyrfti að fara mikið ofar og sprengja upp hella 80 metrum fyrir ofan sjávarmál,“ segir Páll, en hann telur ekki líklegt að farið yrði í slíkar aðgerðir. Tófubeinin fundust fyrir tilviljun árið 2004 eftir að klettur við Rauðaberg var sprengdur upp vegna vegagerðar. Opnaðist þá inn í skúta þar sem beinin lágu og voru þau send í aldursgreiningu til háskól- ans í Stokkhólmi. - eb Eina spendýrið á Íslandi við landnám og hefur verið hér frá lokum ísaldar: Fundu 3.500 ára gamlar tófur BEINAFUNDUR Nokkur hundruð ár skildi tófurnar að sam- kvæmt aldursgreiningu en þær hafa líklega leitað í skútann til að drepast af náttúrulegum orsökum. Markasúpa Það var mikið skor- að í ensku úrvals- deildinni í gær. ÍÞRÓTTIR 54 22EDRÚ Í ELLEFU MÁNUÐI Þjálfun mikilvæg til árangurs Umsjónarfélag ein- hverfra nýtur góðs af söfnunarátaki. TÍMAMÓT 18 Fjölnir tattú kynnist sjálf- um sér upp á nýtt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.