Fréttablaðið - 16.12.2007, Side 51

Fréttablaðið - 16.12.2007, Side 51
ATVINNA SUNNUDAGUR 16. desember 2007 2113 Rafvirkjar - Vélvirkjar Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is Við óskum að ráða rafvirkja og vélvirkja í dagvinnu og vaktavinnu hjá Norðuráli á Grundartanga. Norðurál er eftirsóttur vinnustaður. Starfsmenn eru á fi mmta hundrað talsins, verkefnin margvísleg og störfi n fjölþætt. Hjá fyrirtækinu starfa m.a. verkfræðingar, tæknifræðingar, viðskiptafræðingar, sálfræðingar, efnafræðingar, eðlisfræðingar, líffræðingar, tölvunarfræðingar, rafvirkjar, vélvirkjar, vélstjórar & rafsuðumenn, auk ófaglærða starfsmanna sem öðlast dýrmæta sérhæfi ngu við störf sín og nám hjá fyrirtækinu. Hvaða kröfur gerum við? Sveinspróf í viðkomandi iðngrein eða að umsækjandi stefni í sveinspróf innan árs Áhugi, góð samskiptahæfni og geta til að vinna sjálfstætt Reynsla af vinnu í iðnaðarumhverfi eða við sambærileg störf er æskileg Kunnátta í ensku og almennri tölvunotkun kemur í góðar þarfi r Hvað veitum við? Við bjóðum þér traust og gefandi starf hjá nútímalegu fyrirtæki. Þú vinnur mikilvæg verk með góðu samstarfsfólki og við tökum vel á móti þér. Verkefnin eru fjölbreytt og felast m.a. í viðhaldi, bilanaleit, endurnýjun og endurbótum á tæknibúnaði Norðuráls, með aukinni áherslu á fyrirbyggjandi viðhald. Starfsþjálfun og símenntun Nýtt mötuneyti á staðnum Atvinnuöryggi, traustar tekjur og laun að hluta árangurstengd Fyrirtækið greiðir þér aukið framlag í lífeyrissjóð Hjá Norðuráli starfar öfl ugt starfsmannafélag sem stendur reglulega fyrir ýmsum áhuga- verðum uppákomum. Nánari upplýsingar veita: Lárus Hjaltested, yfi rvaktstjóri á rafgreiningarsviði, Einar F. Björnsson, viðhaldsstjóri, og Rakel Heiðmarsdóttir, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs, í síma 430 1000. Hvernig sækir þú um? Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 27. desember n.k. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins, www.nordural.is, sent umsókn þína á netfangið umsókn@nordural.is eða póstlagt umsóknina merkta: Rafvirki eða Vélvirki. Við förum með umsókn þína sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Jafnrétti Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og kvenna til starfa hjá Norðuráli. Einar F. Björnsson, viðhaldsstjóri: „Velkomin í öfl ugan, samheldinn og faglegan hóp iðnaðarmanna!” Lárus Hjaltested, yfi rvaktstjóri: „Hér gefast góð tækifæri til að vaxa í starfi og öðlast nýja færni” Hjartavernd leitar að erfðatölfræðingi. Starfi ð felst í úrvinnslu gagna rannsókna Hjartaverndar þar á meðal Öldrunarrannsókn Hjartaverndar sem er styrkt af heilbrigðismálaráðuneyti Bandraríkjanna (NIH). Um er að ræða úrvinnslu á erfðamörkum í stórum rannsóknahópum frá almennu þýði. Hæfniskröfur eru PhD eða sambærileg menntun í tölfræðilegri erfðafræði og reynsla í meðferð stórra gagnabanka. Vinnutími getur verið sveigjanlegur. Hjartavernd vinnur í alþjóðlegu umhverfi í nánum tengslum við háskóla og stofnanir í Evrópu og Bandaríkjunum. Hjartavernd (The Icelandic Heart Association) is looking for a statistical geneticist. The position involves analysis of data collected in the NIH-funded Age Gene/Environment-Reykja- vik Study (AGES-Reykjavik) and other studies at Hjartavernd. The scientist will analyze genetic polymorphism data gener- ated in large population based studies, including analysis of genome-wide datasets. Position requirements are a PhD or similar education in statistical genetics and experience in working with large datasets. Flexible work arrangements are possible. Hjartavernd has numerous international col- laborators and works closely with universities and institutes in Europe and USA. Upplýsingar veitir Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir Hjar- taverndar, í síma 535 1800 eða á v.gudnason@hjarta.is Umsóknum skal skila á netfangið atvinna@hjarta.is eða til Hjartaverndar merktar ERÐATÖLFRÆÐINGUR. Hjartavernd, Holtasmára 1,201 Kóp., sími 535 1800 Rannsóknarstöð Hjartaverndar var stofnuð árið 1967 með víðtækri faraldsfræðilegri rannsókn, Hóprannsókn Hjartaverndar, þar sem áhersla var lögð á að fi nna helstu áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma hérlendis. Nýjasti áfangi í rann- sókninni er Öldrunarrannsókn Hjartaverndar þar sem tæplega 6000 manns hafa verið skoðaðir en þeir tóku jafnframt allir þátt í fyrri áföngum Hóprannsóknar Hjartaverndar. Í Öldrunarrannsókninni eru öll helstu líffærakerfi skoðuð og er Hjartavernd með fullkomnustu myndgreiningardeild hérlendis. Hjartavernd vinnur ennfremur að forvörnum á sviði hjarta- og æðasjúkdóma, m.a. með áhættumati Hjartarannsóknar þar sem helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma eru skoðaðir. Hjá fyrirtækinu vinna um 50 manns með þverfaglegan bakgrunn, þar af eru nokkrir sem stunda framhaldsnám Rekstrarstjóri Fyrirtækið sem er útibú frá Þýsku alþjóðlegu fyrirtæki í heilsu og fegrunargeira. Fyrirtækið selur hágæðavörur og er leiðandi í Evrópu og á þeim mörkuðum sem það starfar á. Sjá www.lrworld.com Við leitum að manneskju til að sjá um okkar daglega rekstur á útibúi okkar á Íslandi. Starfi ð felst í stjórnun starfsfólks, skrifstofu og lagerhalds. Mikil þjónustulund og lipurð er nauðsynleg. Viðkomandi verður að tala og skrifa ensku og/eða þýsku. Ekki er krafi st sérstakrar annarrar menntunar en reynsla í stjórnun og þekking á bókhaldi er æskileg. Þeir sem hafa áhuga vinsamlegast sendið fyrirspurn ásamt upplýsingum til r.pickardt@lrworld.com

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.