Fréttablaðið - 16.12.2007, Side 53

Fréttablaðið - 16.12.2007, Side 53
ATVINNA SUNNUDAGUR 16. desember 2007 15 Íslendingar hafa löngum verið stoltir af því að vera dugnaðarforkar til vinnu. Það þykir sjaldan fínt að vera letingi. Enda er það satt: miðað við hvað Íslendingar eru vel settir peningalega byrja börnin okkar að vinna til- tölulega snemma. Unglinga- vinnan er talinn sjálfsagður kostur á sumrin og ótækt að láta börnin hlaupa iðjulaus um. Unglingar sækja hins- vegar líka í vinnu hjá einka- fyrirtækjum því þar eru jafnan skárri laun. Launa- taxtar þrettán ára unglings eru ekki beysnir, fjórtán ára fá þeir aðeins meira en þó eru þetta lúsarlaun miðað við það sem fullorðn- ir fá. Hugsunin er sú að menn öðlist meiri reynslu eftir því sem þeir eldast og taki það með sér í verðandi vinnuframlegð. En hver hefur ekki lent í því að fara út í búð, setja mat í kerru, keyra kerruna upp að færibandi og sel- flytja vörurnar upp á borð þar sem taugatrekktur unglingur lætur innrautt píptæki lesa inn verð? „Hvað ertu eiginlega gömul elsku barn?“ Heyrði blaða- maður eitt sinn út undan sér í kassaröðinni. Samkvæmt reglugerð númer 426/1999 mega 13 til 14 ára unglingar einungis vinna létt störf í verslunum og sérstaklega er tekið fram að afgreiðsla á kassa sé ekki heimil. Í lögum um vinnu barna og unglinga eftir 1. október 1997 stóð skrifað: „1. Heim- ilt er að ráða unglinga til vinnu, þ.e. 15-18 ára. 2. Óheimilt er að ráða börn (þ.e. undir 15 ára aldri) til vinnu. Undantekningar frá þeirri meginreglu eru eftir- farandi: a) Heimilt er að ráða börn 14 ára og eldri til vinnu enda sé vinnan hluti af fræðilegu eða verklegu námsfyrirkomulagi.” Þessi meginregla virðist hafa gufað upp eða týnst í ótal undantekningareglum. Þegar allt kemur til alls mega þrettán til fjórtán ára unglingar vinna í stórmörk- uðum svo lengi sem þau eru ekki á kassanum og sinna hæfandi störfum. Samkvæmt Elíasi G. Magnússyni forstöðumanni kjarasviðs hjá VR eru ekki mörg brot sem koma upp á þeirra borð. „Það er svona annað slagið sem það slæð- ist inn. Og ef það gerist er yfirleitt nóg að benda á það og þá er það lagað. Oft kemur þetta upp í kringum talningar í verslunum og í jólamánuðinum er meiri vinna og þá eru stundum brotnar reglur. En almennt er ekki verið að brjóta þetta. Langflest þessi mál leysast þegar þeir [atvinnu- rekendur] sjá að þarna er eitthvað í gangi. Það er ekki almennur brotavilji.” segir Elías. Meðalaldur félagsmanna VR í stórmörkuðum og mat- vöruverslunum lækkaði úr 31,5 ári frá árinu 2000 í 24,4 ár árið 2006. Og ljóst að þó nokkrir félagar VR sem vinna í stórmörkuðum eru undir fimmtán ára aldri. Það er mikilvægt að ungl- ingar og forráðamenn þeirra fylgist sjálfir með hvort reglum um vinnutíma og vinnuaðstæður sé fram- fylgt. Atvinnurekandi hefur upplýsingaskyldu við for- eldra barna undir fimmtán ára aldri og þeirra sem eru í skyldunámi. Þeim ber að upplýsa um ráðningakjör, lengd vinnutíma og einnig tíðni óhappa og slysa sem gætu tengst starfinu. Eitt það mikilvægasta sem unglingur ætti að hafa í huga ef hann fær sér vinnu yfir hátíðarnar er að skrá niður vinnutíma sinn og gera sér grein fyrir hvaða dagar eru frídagar og ekki vinnuskyldir því þá er skylda að borga yfirvinnu. Í mörgum tilvikum er um talsverða aukavinnu að ræða og mikilvægt að halda vel utan um tímaskráningu svo komast megi hjá mis- skilningi og mistökum við útreikning launa. Á meðfylgjandi töflu hér á síðunni sést hvernig vinnutíma barna og ungl- inga skal háttað. Nánar má grennslast fyrir um reglu- gerðir um vinnu ungmenna á heimasíðu VR: www.vr.is niels@frettabladid.is Meðalaldur starfsfólk lækkar Neytendurnir þurfa afgreiðslu og unglingarnir hlaupa undir bagga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Vinnutími barna og unglinga – Almennar reglur Börn Börn 15 ára Unglingar 13-14 ára í skyldunámi 15-17 ára Á starfstíma 2 klst. á dag 2 klst. á dag 8 klst. á dag skóla 12. klst. Á viku 12. klst. Á viku 40 klst. á viku Utan starfstíma 7 klst. á dag 8 klst. á dag 8 klst. á dag skóla 35 klst. á viku 40 klst. á viku 40 klst. á viku Vinna bönnuð Kl. 20-6 Kl. 20-6 Kl. 22-6 Hvíld 14 klst. 14 klst. 12 klst. á sólarhring á sólarhring á sólarhring 2 dagar á viku 2 dagar á viku 2 dagar á viku Nokkrar undanþágur eru gefnar frá ákvæðum um vinnutíma sem sýndar eru í þessari töflu. Taflan er fengin úr fréttabréfi Vinnueftirlitsins 1. tbl. 23. árg. 2006 ÚTBOÐ TILKYNNINGAR » Ráðningarþjónusta HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is Ert þú í atvinnuleit?  Skrifstofustörf  Lagerstörf  Verslunarstörf  Bókhaldsstörf  Ræstingarstörf  Sérfræðistörf  Útkeyrslustörf  Sölustörf  Stjórnunarstörf  Störf við kerfisstjórn  Störf við forritun  Framleiðslustörf  Iðnstörf  Þjónustustörf Fjöldi starfa í boði. » Kannaðu málið á www.hhr.is RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Innkaupaskrifstofa F.h. Framkvæmdasviðs Reykjavíkur- borgar, mannvirkjaskrifstofu, Orkuveitu Reykjavíkur, Gagnaveitu Reykjavíkur og Mílu ehf.: Sléttuvegur - nýtt íbúðarhverfi. Gatnagerð og lagnir. Útboðsgögn verða seld í síma- og upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur, frá og með 18. desember 2007. Opnun tilboða: 8. janúar 2008, kl. 10:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur. 12062 Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod Grandagarður 14 er til sölu, tilboð óskast Faxafl óahafnir sf. óska eftir kauptilboðum í fasteignina Grandagarð 14, 101 Reykjavík. Fasteignin er þrjár hæðir , samtals að gólffl eti 856,8 fermetrar. Húsið er byggt árið 1961 úr steinsteypu. Húsið var byggt af Slysavarnafélagi Íslands og hýsti aðalstöðvar þess um árabil. Lóðin sem fylgir húsinu verður um 457 fermetrar að stærð. Húsið er í útleigu og yfi rtekur væntanlegur kaupandi leigusamninga. Hver bjóðandi getur aðeins skilað inn einu tilboði og áskilja Faxafl óahafnir sf sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Nánari upplýsingar og gögn um eigina má nálgast á skrifstofu Faxafl óahafna sf., Tryggvgötu 17, sími 5258900. Húseignin verður til sýnis í samráði við Faxafl óahafnir sf. Kauptilboð skulu berast skrifstofu Faxfl óahafna sf., Tryggvgötu 17, Reykjavík, fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. janúar 2008. Farið verður með tilboð sem trúnaðarmál Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A, laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar dags. 14. desember 2007, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta vegna innfl utnings á blómum, fyrir tíma- bilið 1. janúar til 30. júní 2008. Nánari upplýsingar má fi nna á vefsíðu landbúnaðar- ráðuneytisins: www.landbunadarraduneyti.is Skrifl egar umsóknir skulu berast til landbúnaðarráðu- neytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 19. desember n.k. Tollkvótar vegna innfl utnings á blómum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.