Fréttablaðið - 16.12.2007, Síða 86

Fréttablaðið - 16.12.2007, Síða 86
50 16. desember 2007 SUNNUDAGUR sport@frettabladid.is Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 75.900 kr. Chelsea – Tottenham 11.–13. janúar Verð á mann í tvíbýli 49.900 kr. West Ham – Birmingham 8.–10. febrúar Verð á mann í tvíbýli 74.900 kr. Liverpool – Sunderland 1.–3. febrúar Verð á mann í tvíbýli 83.900 kr. Chelsea – Liverpool 9.–11. febrúar Verð á mann í tvíbýli BOLTINN ER HJÁ OKKUR Það verður barist hart þegar Valur tekur á móti Fram í hörku Reykjavíkurslag N1-deildar karla kl 16 í Vodafone- höllinni að Hlíðarenda. Valur hafði betur gegn Fram þegar liðin mættust í Framhúsinu fyrr í vetur í frábær- um handboltaleik en liðin hafa verið á fínni siglingu í deildinni síðan þá og eru komin í fjögurra liða úrslit í Eimskipsbikarnum. Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, býst við skemmtilegum og spennandi leik á milli þessara erkifjenda. „Leikirnir við Fram hafa undanfarin ár verið með skemmtilegustu leikjunum sem við spilum hér á Íslandi og það hefur myndast ákveðin samkeppni á milli þessara liða, sem er bara mjög jákvætt og það er því mikil stemning í okkar herbúðum fyrir leikn- um,“ sagði Óskar Bjarni, sem hefur náð að koma Val á beinu brautina í vetur eftir erfiða byrjun. „Við töpuðum fyrstu þremur leikjunum í deild- inni og erum svo ekki búnir að tapa síðan þá, hvorki í deild né bikar, en ég geri mér grein fyrir því að við erum með bakið uppi við vegg í baráttunni. Jafnteflið við Aftureldingu í síðasta leik var til að mynda mjög svekkjandi en ég hef trú á því að leikmenn mínir komi sterkir til baka í leikinn gegn Fram,“ sagði Óskar Bjarni, sem telur að dagsformið muni ráða úrslitum. „Liðin eru mjög svipuð að getu og spila bæði fína vörn og eru með góð markvarðapör, þannig að það er sama gamla klisjan um dagsformið sem á eftir að ráða miklu. Ég þykist vita að stuðningsmenn Fram muni fjölmenna í Vodafone-höllina þannig að ég vona að stuðningsmenn okkar verði tilbúnir og skapi góða stemningu,“ sagði Óskar Bjarni og Ferenc Antal Buday, þjálfari Fram, tekur í sama streng. „Það var frábær stemning þegar við mættum Val síðast og ég á von á því að stuðningsmenn okkar fjölmenni á leikinn og styðji liðið áfram. Valsliðið er mjög sterkt, spilar hraðan handbolta og eru vel skipu- lagt, þannig að við verðum að vera á tánum til þess að fá eitthvað út úr þessum mikilvæga leik. ÓSKAR BJARNI OG FERENC BUDAY, ÞJÁLFARAR VALS OG FRAM: MÆTAST Í REYKJAVÍKURSLAG Í N1-DEILD KARLA Í DAG Jafnan góðir leikir þegar Valur og Fram mætast GOLF Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, stendur í ströngu eftir þriðja keppnisdag á Opna Suður- Afríkumótinu. Birgir Leifur lék í gær á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari Pearl Valley- vallarins og var því samanlagt á ellefu höggum yfir pari í 59.-63. sæti þegar keppni lauk í gær. Birgir Leifur lék fyrstu fjórar holurnar í gærmorgun á pari, síðan fékk hann fugl og eftir það þrjú pör í röð, þannig að hann var á fínu róli eftir fyrstu átta holurnar. Á níundu holunni dundi ógæfan yfir okkar mann og hann þurfti að sætta sig við tvöfaldan skolla eða skramba. Þá fékk hann par á næstu tveimur holum, svo komu tveir skollar í röð, en hann kláraði svo með fimm pörum í röð. Hinn enski Oliver Wilson var efstur á mótinu eftir þriðja keppnisdag í gær og er alls á fjórum höggum undir pari. Wilson lék á fimm höggum undir pari í gær. Hástökkvari gærdags- ins var hins vegar Garth Mulroy sem lék á átta höggum undir pari og skaust upp í þriðja sæti. - óþ Birgir Leifur Hafþórsson: Lék á þremur yfir pari í gær ERFITT Birgir Leifur þurfti að sætta sig við tvöfaldan skolla á níundu holu í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES > Örn komst í úrslit Örn Arnarson, sundkappi úr SH, hefur verið að gera góða hluti á Evrópumótinu í 25 metra laug í Debrecen í Ungverjalandi. Örn keppti í gærmorgun í undanrásum og var þá með sjötta besta tímann þegar hann synti á 52,75 sekúndum. Í undanúr- slitunum bætti hann um betur og varð fimmti á tímanum 51,84 sekúndum sem er einungis 1/10 úr sekúndu frá Norðurlandsmeti hans í greininni. Örn keppir til úrslita í 100 metra baksund- inu í dag. HANDBOLTI Akureyri lagði ÍBV að velli með 40 mörkum gegn 26 í N1 deild karla á Akureyri í gærdag. Jafnræði var með liðunum framan af fyrri hálfleik en þó hafði Akureyri ávallt frumkvæðið. Í stöðunni 14-13 gáfu Akureyringar í og fóru með þægilegt 5 marka forskot í leikhléið en þá var staðan 19-14. Í síðari hálfleik var aldrei spurning hvor- um megin sigurinn myndi lenda því lið Akureyrar jók for- ystuna jafnt og þétt en Eyjamenn sáu aldrei til sólar. Því var ekki síst að þakka frábærri markvörslu Svein- bjarnar Pétursson- ar í marki Akureyrar sem varði hvorki fleiri né færri en 28 skot í leiknum og var án efa besti maður vallarins. Úrslit leiksins urðu svo 40-26 og fyrsti heimasigur Akureyrar á þessari leiktíð staðreynd. Rúnar Sigtryggs- son, þjálfari Akureyrar, var að vonum ánægður með sigurinn. „Það hefur verið stígandi í lið- inu að undanförnu en þó hefur gengið illa að klára leikina. Það tókst loksins í dag. Það eru 28 stig í pottinum eftir áramót og við ætlum okkur að ná í sem flest af þeim til að koma okkur í betri stöðu í deildinni.“ Sveinbjörn Pétursson, mark- vörður Akureyrar, átti sem áður segir stórleik og varði 28 skot. Hann sagði úrslitin mikinn létti. „Við komum af fullum krafti í þennan leik og héldum þeim krafti út allan leikinn. Ég var sjálfur mjög einbeittur og staðráðinn í að sýna það að ég á heima hérna í deild þeirra bestu.“ - þrf Akureyri vann ÍBV með öruggum hætti, 40-26, í N1-deild karla á Akureyri í gær: Miklir yfirburðir hjá Akureyri ÖFLUGUR Jónatan Þór Magnússon átti góðan leik og skoraði sjö mörk fyrir Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR HANDBOLTI Stjarnan vann næsta auðveldan sigur á máttlausu liði Aftureldingar, 25-19, í N1-deild karla í Mosfellsbæ í gær. Aftureld- ing réð engan veginn við öfluga vörn Stjörnunnar sem náði HK og Fram að stigum í öðru sæti deildar- innar fyrir vikið en Afturelding fer í jólafrí í fallsæti. Leikurinn var jafn fyrstu 10 mín- úturnar en þá tóku gestirnir úr Garðabæ að síga fram úr. Hægt og rólega byggði Stjarnan upp forskot með frábæra vörn að vopni en Aft- urelding skoraði aðeins 8 mörk í fyrri hálfleik. Stjarnan fór aðeins með fjögurra marka forskot inn í hálfleikinn, 8-12, þar sem varnar- leikur Aftureldingar var til fyrir- myndar í fyrri hálfleik þótt sókn- arleikurinn væri fyrir neðan allar hellur. Stjarnan fann lausnir á öflugri vörn heimamanna í hálfleik og gjörsamlega keyrði yfir slaka heimamenn á fyrstu sextán mínút- um seinni hálfleiks, 12-6, og náði 10 marka forystu, 24-14. Þá slökuðu Stjörnumenn á enda leikurinn unn- inn. Afturelding gafst aldrei upp og skoraði fimm af þeim sex mörk- um sem skoruð voru síðustu 13 mínútur leiksins en lokamínúturn- ar voru vægast sagt farsakenndar þar sem Afturelding reyndi að leysa leikinn upp með að taka tvo Stjörnumenn úr umferð. Þrátt fyrir að skora aðeins eitt mark síðustu 13 mínútur leiksins vann Stjarnan öruggan sex marka sigur, 19-25. Patrekur Jóhannesson lék ekki með Stjörnunni vegna meiðsla en var Kristjáni Halldórssyni þjálf- ara til halds og trausts á bekknum. „Ég er með slitið krossband og ætla ekki í aðgerð. Ég er að byggja þetta upp. Það tekur ákveðinn tíma en ég vona að ég geti spilað í febrúar,“ sagði Patrekur um framhaldið hjá sér en Stjarnan hefur saknað hans í vetur. Patrekur bjóst ekki við eins auð- veldum leik og raun bar vitni. „Þeir gerðu jafntefli við Val hér um dag- inn og eru með flott lið en við mætt- um mjög ákveðnir til leiks. Ég var ánægður með undirbúninginn fyrir leikinn og þetta var nokkuð gott hjá okkur fyrir utan síðustu 10 mínúturnar. Vörnin var að vinna vel og Rol- and traustur í markinu. Ég var ánægður með hinn 19 ára Rati í hægri skyttunni, hann sýndi hvað hann getur gert þótt það vanti eitt- hvað upp á leikskilninginn hjá honum. Við erum að vinna með hann en hann er mikið efni.“ Hilmar Stefánsson, hægri horna- maður Aftureldingar, var þungur á brún í leikslok. „Vorum heillum horfnir. Þetta hefur verið svona upp og niður hjá okkur í vetur. Það er eins og það vanti sjálfstraust hjá okkur á köflum. Menn þora ekki að skjóta því Roland varði einhver fjögur fimm dauðafæri í fyrri hálfleik og þá hætta menn. Það er ljóst að það eru næg verkefni fram undan í lok desember og janúar hjá okkur. Ég veit að við ætlum að reyna að styrkja okkur. Það vantar eitthvað í sóknarleikinn. Varnarleikurinn var fínn hjá okkur.“ Afturelding missti Akureyri upp fyrir sig í síðustu umferðinni fyrir jól og Hilmar gat ekki leynt von- brigðum sínum í að sitja í fallsæti yfir hátíðarnar. „Þetta er sérstak- lega svekkjandi vitandi að við töp- uðum í Vestmannaeyjum. Það eru fjórar umferðir og við megum ekki tapa fyrir ÍBV og Akureyri eftir áramót, það er ljóst,“ sagði Hilmar áður en hann hélt til búningsherbergja. -gmi Auðvelt hjá Stjörnunni í Mosfellsbæ Bikarmeistarar Stjörnunnar unnu Aftureldingu örugglega, 19-25, í N1-deild karla að Varmá í gærkvöldi. Afturelding er því komið í fallsæti með tapinu, nú þegar sum liðin eru komin í langt og gott jólafrí. Á FLEYGIFERÐ Heimir Örn Árnason, leikmaður Stjörnunnar, er hér á ferðinni í leiknum að Varmá í gærkvöldi, en hann átti fínan leik og var að vanda í lykilhlutverki hjá Stjörnunni og skoraði sex mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.