Fréttablaðið - 28.12.2007, Page 4
4 28. desember 2007 FÖSTUDAGUR
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
2
3
7
7
Sími 591 3100 - www.atlantsolia.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
2
3
7
7
-2kr.Dælulykill
Dælulykilinn veitir
nú -2 krónur í
afslátt
EINKALÍF Persónuvernd segir það
mundu ganga gegn hagsmunum
einstaklinga ef útbúin yrði skrá
um greiðsluhegðun þeirra eins og
fyrirtækið Lánstraust sótti um
leyfi til þess að gera.
Lánstraust vildi fá að safna
saman og skrá upplýsingar frá
kröfuhöfum um greiddar kröfur.
Safnað yrði upplýsingum um
kennitölu greiðanda, gjalddaga
eða eindaga og greiðsludag kröfu.
Þetta yrði fært í kerfi – „greiðslu-
hegðunarkerfi“ – sem myndi sýna
hegðun viðkomandi, það er hversu
mörgum dögum fyrir eða eftir
gjalddaga eða eindaga hann greiði
reikninga sína í hverjum ársfjórð-
ungi, eins og segir um fyrir ætlanir
Lánstrausts í ákvörðun
Persónuverndar.
Lánstraust telur upplýsingar
um það hvernig einstaklingur hafi
hagað sér í fortíðinni gefi vísbend-
ingar um framtíðarhegðun hans,
bæði um greiðsluhegðun og aðra
þætti. Fyrirtækið vísar til þess að
vinnsla almennra persónuupplýs-
inga sé heimil ef hún er nauðsyn-
leg til þess að ábyrgðaraðili geti
gætt lögmætra hagsmuna nema
grundvallarréttindi og frelsi ein-
staklinganna sem eigi að skrá vegi
þyngra.
„Við beitingu þessa ákvæðis
þarf að vega og meta hvort vegi
þyngra; annars vegar hagsmunir
af því að vinnslan fari fram og
hins vegar hagsmunir af því að
hún geri það ekki,“ segir Persónu-
vernd sem segir að meðal annars
eigi að líta til þess markmiðs lag-
anna að með persónuupplýsingar
sé farið í samræmi við grund-
vallarsjónarmið og reglur um
persónuvernd og friðhelgi einka-
lífs.
Hin fyrir hugaða vinnsla Láns-
trausts er sögð mundu hafa orðið
mjögumfangsmikil. „Má ætla að
ef af verði muni upplýsingar verða
unnar um greiðsluhegðun megin-
þorra þjóðarinnar. Af þeim sökum
má ætla að aðstæður þeirra, sem
upplýsingarnar varða, séu um
margt ólíkar og vinnslan komi því
mjög misjafnlega við þá,“ segir
Persónuvernd.
Aö sögn Persónuverndar var
því hafnað að veita leyfið þar sem
Lánstraust hafði ekki gert mat á
því hvort myndi vega þyngra;
hagsmunir hins skráða eða þess
sem ætlaði að útbúa skrána. Þvert
á móti lægi fyrir rökstudd niður-
staða um að hagsmunir einstakl-
inga séu meiri af því að slík vinnsla
fari ekki fram.
Ekki náðist í Hákon Stefánsson,
framkvæmdastjóra Lánstrausts, í
gær.
gar@frettabladid.is
Bannað að skrásetja
greiðsluvenjur fólks
Fyrirtækið Lánstraust fær ekki að gera upplýsingabanka um það hversu langt
frá gjalddaga hver og einn borgar reikningana sína. Persónuvernd segir slíka
vinnslu andstæða grundvallarréttindum einstaklinga.
ÞORLÁKSMESSA Í KRINGLUNNI Ekki var veitt leyfi til þess að útbúa gagnabanka um
það hvenær einstaklingar á Íslandi greiða reikningana. Upplýsingarnar áttu að gefa
vísbendingar um væntanlega greiðsluhegðun hver og eins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VIÐSKIPTI Viðskiptaverðlaun
Viðskiptablaðsins (VB) hlýtur að
þessu sinni Björgólfur Thor
Björgólfsson, fjárfestir og
stjórnarformaður Novators.
Tilkynnt var um valið í gær.
Björgólfur segir krónuna
stærsta vandamál íslenskra
fyrirtækja á árinu sem er að líða,
að því er fram kemur í jólablaði
Markaðarins. Er þetta í annað sinn
sem Björgólfur hlýtur verðlaunin,
en hann fékk þau árið 2002 eftir að
hafa með fleirum keypt Lands-
banka Íslands. Þá var Margrét
Pála Ólafsdóttir, stofnandi
Hjallastefnunnar, heiðruð sem
frumkvöðull ársins. Björgvin G.
Sigurðsson viðskiptaráðherra
afhenti verðlaunin við hátíðlega
athöfn á Hótel Sögu í gær. - óká
Viðskiptaverðlaun VB 2007:
Björgólfur Thor
varð fyrir valinu
VIÐ AFHENDINGU Margrét Pála Ólafs-
dóttir, sem fékk frumkvöðlaverðlaunin,
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
og Björgólfur Thor Björgólfsson, handhafi
viðskiptaverðlauna VB.
Rannsókn á útisvefni
Vísindamaður við Háskólann í Oulu,
eða Uleåborg, í Finnlandi hefur hafið
rannsókn á því þegar ungbörn eru
látin sofa úti í vagni sínum á veturna,
að sögn finnska dagblaðsins Helsing-
in Sanomat. Áratuga hefð er fyrir því
að láta ungbörn sofa úti í Finnlandi
en um 95 prósent foreldra gera það.
FINNLAND PARÍS, AP Frönsk yfirvöld hafa
óskað eftir því að sex franskir
hjálparstarfsmenn fái að afplána
dóm í Frakklandi í stað Tsjad.
Sexmenningarnir voru dæmdir til
átta ára þrælkunarvinnu fyrir að
hafa reynt að koma 103 börnum
frá Tsjad í október. Yfirvöld í
Tsjad hafa á móti áréttað að þau
muni eiga síðasta orðið í máli
sexmenninganna, hvað sem
verður.
Talið er að dómur yfir fólkinu
yrði mildaður kæmist það til
Frakklands í afplánun, meðal
annars vegna þess að þar eru
fangar ekki látnir vinna þrælkun-
arvinnu. - sh
Frönsk yfirvöld ræða við Tsjad:
Vilja Frakkana
heim frá Tsjad
! #
$
%
&
& '
# (! %'
)
#
$
*+, -+, .+,
/0
1+,
/0
-+, 23+,4 /0
5+, /0
-+,
/0
6+,
/0
6+, /0
1+, /0
1+,4 /0
2*+, /0
27+, /0
37+, /0
!""
#$ %#&' (%)''
&*%$ $+ ,-".
&% #$ %#&
' (%) && &
$#/0 &" &&
1($ 2& &".+
"%. &
0'% ",
% )& $
&"
#&%3))$&
$$, /)
. %&""%.&&
&% $ &
$ &" "%.$ 4""
#$$ $ ,
-5677 8!$%!$#""$
/1 " ,9&": &"$,
1859
2183.9
$ , $ &&2
!$
=<
>
;
>
<
<
<
SLYS Ung kona var hætt komin í
jólaboði annan dag jóla þegar hún
gleypti óviljandi skraut sem haft
var til borðskreytingar. „Ég hélt
fyrst að þetta væri kjötbiti sem
stæði í mér,“ segir Dagrún Þor-
steinsdóttir sem varð fyrir þessari
óskemmtilegu reynslu. „Ég reyndi
að ná bitanum upp en það gekk ekki
svo við leituðum til læknis sem býr
í grenndinni og hann sagði mér að
fara beinustu leið í bráðamóttökuna
og þar ældi ég þessu upp og sá að
þetta var jólaskraut á stærð við
tíkall. Þetta var svona plaststjarna
og það sveið vel undan öngunum
sem stungu í vélindað.“
Hún telur líklegast að skrautið
hafi fest við peysuerm-
ina þegar hún var að
teygja sig eftir mat og
hafi svo leynst undir
sósu eða öðru meðlæti
með fyrrgreindum
afleiðingum.
Ingibjörg Sigurþórs-
dóttir bráðahjúkrunar-
fræðingur segir tilfelli
sem þessi ekkert algeng-
ari en ella um hátíðarn-
ar. En á bráðavaktinni
eru menn þó ýmsu vanir
í þessum efnum og er
sérstakt aðskotahluta-
safn á nef-, háls- og
eyrnalækningadeild til
vitnis um það. Þar
gefur meðal annars
að líta tannbursta
sem sat fastur í
hálsi eins árs stúlku,
nælu með norska
fánanum sem tekin
var úr vélinda sex
ára drengs, stoppu-
nál sem hirt var úr
koki 20 ára pilts,
tannstöngul sem
var í nös 13 ára pilts
og teiknibólu sem
fjarlægð var úr
lungnagrein átta ára
stelpu.
- jse
Ung kona hætt komin eftir að hafa gleypt skraut:
Jólaskrautið stakkst í vélindað
DAGRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR Hún varð
fyrir því óláni að leggja sér jólaskraut
til munns. Þetta var plaststjarna og var
það mikið kvalræði þegar angar hennar
stungust í vélindað, segir Dagrún.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
AÐSKOTAHLUTASAFNIÐ
Meðal hluta í safninu er
næla með norska fánanum.
OHIO, AP Lágt ullarverð og hár
kostnaður við að rýja kindur
hefur gert það að verkum að
margir sauðfjárbændur í
Bandaríkjunum hafa snúið sér að
ullarlausum kindum. Þeir óttast
að listin að rýja kindur muni í
náinni framtíð heyra sögunni til.
Í stað hefðbundinna ullarkinda
snúa bændur sér að kindum sem
vex hárfeldur í stað ullar og þarf
því ekki að rýja árlega. Ein
vinsælasta tegundin er svokallað-
ur Katahdin-stofn, sem fyrst var
ræktaður af erfðafræðingum
fyrir um 30 árum. - sh
Rúningaþreyttir bændur:
Kindur með hár
sífellt vinsælli
KIND MEÐ HÁR Katahdin-stofninn nýtur
sívaxandi vinsælda.
GENGIÐ 27.12.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
121,0152
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
63,06 63,36
125,49 126,11
91,4 91,92
12,255 12,327
11,396 11,464
9,664 9,72
0,5511 0,5543
98,77 99,35
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Rangt var farið með föðurnafn Gísla
Hvanndal, höfundar Biblíu gáfaða
fólksins, í blaðinu á laugardag. Gísli er
Ólafsson.
LEIÐRÉTTING