Fréttablaðið - 28.12.2007, Síða 23
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM ÁRAMÓT MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
ÚTLITIÐ FULLKOMNAÐ
Fylgihlutir um áramót mega
vera ýktir, glitrandi og gylltir.
ÁRAMÓT 3
DÝRIN RÓUÐ UM ÁRAMÓT
Ekki eru allir jafn hrifnir
af skotgleði landans
um áramótin. Sif
Traustadóttir
dýralæknir veitir
góð ráð.
ÁRAMÓT 2
Björgunarsveitir landsins vinna óeigingjarnt
starf launalaust og standa sveitirnar sjálfar
að mestu undir rekstrinum með ýmiss konar
fjáröflun.
„Flugeldasalan er langmikilvægasta fjáröflunin, hún
heldur uppi björgunarsveitunum og hjá mörgum
heldur hún uppi 80-90 prósentum af rekstrinum,“
segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, kynningarfulltrúi
Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Í Landsbjörg eru
18 þúsund félagsmenn um land allt. „Við erum með
100 björgunarsveitir á okkar snærum, allar björgunar-
sveitir landsins og svo um 70 slysavarnadeildir og 50
unglingadeildir.“ Ólöf útskýrir að hver eining sé fjár-
hagslega sjálfstæð um kaup á tækjum og þjálfun á
mannskap.
„Björgunarsveitirnar þurfa að vera ótrúlega vel
tækjum búnar og með aukinni jeppaeign landsmanna
hafa björgunarsveitirnar þurft að ganga enn lengra í
tækjakaupum því þær þurfa að komast allt sem
almenningur kemst. Svo eru miklir peningar í göll-
um, öryggisbúnaði og sjúkratjöldum og svo þarf hús
undir allt dótið, borga rafmagn og fasteignagjöld, svo
þetta er mjög dýr rekstur.“
Mikil áhersla er lögð á þjálfun og rekur Slysa-
varnafélagið Landsbjörg björgunarskóla þar sem
fólk lærir að verða björgunarmenn. „Þú þarft að
ljúka ákveðnu námi til að mega fara í útkall en það
tekur yfirleitt tvö ár að klára það, hins vegar er
hægt að nýta starfskrafta allra því það eru mörg
störf þarna í kring,“ segir Ólöf.
Ekki eru fluttar fréttir af öllum útköllum björgun-
arsveitanna. Þau eru um 1.200 til 1.400 á ári eða 3-4
á dag allt árið um kring. Ólöf útskýrir að á bak við
hverja stund í útkalli séu 12 aðrar vinnustundir í
viðhaldi tækja, þjálfun og fleira, svo starf björgun-
arsveitanna er meira en margur gerir sér grein
fyrir.
„Björgunarsveitarfólk vinnur launalaust og verð-
ur oft fyrir vinnutapi og röskun á sínu lífi, útköllin
eru á öllum tímum sólarhrings og fólk þarf að vera
tilbúið að stökkva hvort sem það er dagur eða nótt.
Það er samt einhver gleði í allri vinnunni og þetta er
góður félagsskapur, fólk fær tækifæri til að sinna
áhugamálum sínum í gegnum starfið og láta gott af
sér leiða, fólk er ánægt þegar það bjargar einhverj-
um, það eru launin,“ útskýrir Ólöf en flugeldasalan
hefst í dag hjá björgunarsveitum um allt land.
heida@frettabladid.is
Þegar neyðin er stærst
Ólöf Snæhólm, kynningar-
fulltrúi Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, vill minna
fólk á hlífðargleraugun um
áramótin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA