Fréttablaðið - 28.12.2007, Page 32
28. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR10 ● fréttablaðið ● vinnuvélar
Guðni J. Hannesson, yfirmaður snjómoksturs hjá Reykjavíkurborg. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Meðan flestir borgarbúar sofa eru starfsmenn
Reykjavíkurborgar og verktakar hennar að
störfum við að tryggja að götur borgarinnar séu
greiðfærar.
Á veturna þarf að huga að ástandi gatna og færð
innanbæjar í Reykjavík. Umferð er mikil og því
mikilvægt að draga úr hálku og moka snjó. Það er
Malbikunarstöðin Höfði sem sér um snjómokstur
fyrir Reykjavíkurborg en undirverktaki þeirra er
Íslenska gámafélagið.
„Þeir vinna að þessu saman, Höfði með fjóra
bíla og Gámafélagið með þrjá. Við höfum samning
við Malbikunarstöðina og tímabilið er frá 15. nóv-
ember til 15. apríl. Á þeim tíma eru vaktir og þær
standa frá 4 á nóttunni til 11 á kvöldin. Vaktirnar
eru tvískiptar og svo eru einnig helgarvaktir,“ segir
Guðni J. Hannesson hjá Reykjavíkurborg en hann er
yfir snjómokstri og söltun hjá borginni.
Guðni segir að helst séu notaðir vörubílar með
fjöltengibúnaði við að salta og moka götur. „Bílarn-
ir eru alltaf tilbúnir yfir nóttina. Við erum á vakt frá
4 á nóttunni til 11 á kvöldin en á öðrum tímum erum
við í viðbragðsstöðu.“
Guðni hefur mikla reynslu í þessu fagi og okkur
lék því forvitni á að vita hvort mikil breyting hefði
orðið frá því hann byrjaði. „Ég er búinn að vera
í þessu starfi í tuttugu ár og þar á undan var ég á
bílum, þannig að ég er búinn að vera viðloðandi þetta
í þrjátíu ár. Það hefur orðið mikil breyting í bíla- og
tækjakosti.“ Þegar blaðamaður spyr Guðna út í til-
litssemi ökumanna svarar hann með því að vitna í
sjónvarpsþættina Næturvaktina. „Sæll, eigum við
að ræða það eitthvað. Það er mikill skortur á tillits-
semi í umferðinni. Auðvitað eru það ekki margir
sem eru tillitslausir en þeir skapa hættu og óþæg-
indi. Fólk verður að hugsa um fleira en sjálft sig í
umferðinni.“
Guðni segir að nú sé unnið að því að nota frekar
pækil en hefðbundnar söltunaraðferðir. „Í ísingu og
þegar er þunnt lag á götunum notum við pækil. Það
er fljótvirkara og sparar saltmagnið. Þetta er fram-
tíðin og þetta er einnig komið í notkun hjá Vegagerð-
inni hér á suðurhorninu.“
Guðni segir að oft sé saltað án þess að fólk átti
sig á því. „Við erum oft að berjast við þessa lúmsku
hálku og tryggjum að göturnar séu greiðfærar.“ - öhö
Mikilvægt að göturnar
séu alltaf greiðfærar
Lítið hefur verið um snjómokstur í vetur en heldur betur bætti
í um jólin.
6