Fréttablaðið - 28.12.2007, Qupperneq 54
28. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR16 ● fréttablaðið ● vinnuvélar
„Við kennum á allar stærðir og
gerðir vinnuvéla hér og aðsókn-
in hefur verið fín,“ segir Þráinn
Elíasson, skólastjóri Ökuskóla
Suðurlands. Hann segir námskeið-
in venjulega haldin þrisvar á ári
hverju og að um fimmtán manns
sitji námskeiðið í senn.
„Þetta er bóklegi hluti vinnu-
vélaprófsins en sá verklegi er
hjá verktökunum. Þegar nem-
endur hafa lokið prófi hjá okkur
fara þeir oftast að vinna hjá aðila
sem hefur kennsluréttindi. Þegar
menn eru búnir að æfa sig á
vélina er kallaður til prófdómari
frá Vinnueftirliti ríkisins og hann
metur færni nemandans.“
Þráinn segir mismunandi hvað
menn séu lengi í þessu æfinga-
námi áður en þeir verða metnir af
Vinnueftirlitinu og fer það helst
eftir því hversu lengi viðkomandi
er að ná tökum á vélinni.“
Þráinn segir algengt að fyrir-
tæki styrki starfsmenn sína til
náms. „Þá eru verkalýðsfélögin
dugleg að styrkja þá sem sækja
vinnuvélanámskeið. Það er fólk á
öllum aldri sem hingað kemur, en
þó mest af ungu fólki. Það er þó
eitthvað um fullorðið fólk, bændur
og verktaka sem koma hingað til
þess að fá sér réttindi.“
Námskeiðið er áttatíu kennslu-
stundir og námsefni fæst að láni
hjá skólanum. - öhö
Vinnuvélanám
er fyrir fólk á
öllum aldri
Misjafnt er hversu lengi fólk er að ná
tökum á vinnuvélum.
Vökvafleygar eru mikið notaðir
við verktakavinnu þegar þarf að
brjóta klappir eða vinna í erfið-
um og hörðum jarðvegi. Kraft-
vélar selja margar gerðir fleyga.
„Við höfum verið að selja
Rammer-fleygana sem eru finnsk-
ir. Það eru mjög vandaðir og góðir
fleygar. Við vorum að fá nýtt
módel af þeim sem er fyrir minni
vélarnar, frá einu tonni og upp að
5 og hálfu tonni. Síðan erum við
líka komnir með Komatsu-fleyga
frá sama fyrirtæki og framleiðir
Komatsu-gröfurnar. Við erum að
markaðssetja þessar tvær gerðir
af fleygum,“ segir Ólafur Ársæls-
son hjá Kraftvélum.
Hann segir alltaf mikla sölu
í fleygum. „Menn eru hættir að
vinna svona í höndunum og þá
eru menn meira og minna hættir
að sprengja. Menn sprengja of
lítið að mínu viti. Það er verið að
láta fleygana vinna allt of mikið á
berginu.“
„Árið 2004 kom Sandvik fram
með algjörlega nýja hugmynd af
fleyg. Þetta eru fleygar ætlaðir
á vélastærðir frá 0,8 tonnum og
upp í 5,5 tonn. Það sem gerir þessa
fleyga sérstaka er að þá þarf ekki
að smyrja með feiti og þarfnast
þeir því minna viðhalds en aðrir
fleygar og svo á að vera mjög erf-
itt ef ekki ómögulegt að brjóta
stálið í þeim,“ segir Stefán Gests-
son sem ásamt Ólafi annast sölu á
fleygunum.
Ólafur segir hönnun hamars-
ins byggjast á því að það þurfi
ekki að smyrja hann sérstaklega.
„Það eru nælonfóðringar í honum
og endingin því betri og þetta ein-
faldar notkun á honum.“
Rétt vinnubrögð eru lykilatriði
þegar verið er að fleyga. „Það
sem skiptir mestu máli þegar
unnið er með fleyg er að beita
honum rétt. Það er númer eitt,
tvö og þrjú. Menn hafa verið að
nota fleygana í önnur verk og
stundum hefur maður séð gröfur
vega salt á fleygnum, svona rétt
eins og menn séu að lyfta gröf-
unni á fleygnum. Það fer mjög
illa með hann og styttir ending-
una verulega. Það á alltaf að hafa
í huga að rétt beiting eykur end-
ingu fleyganna mjög mikið.“ - öhö
Vökvafleygarnir verða alltaf vinsælli
Stefán Gestsson segir nýju fleygana nær
óbrjótanlega. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
2