Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 86
42 28. desember 2007 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. eyja í Asíu 6. samtök 8. mál 9.
forsögn 11. tveir eins 12. kál 14. kölski
16. hróp 17. traust 18. strit 20. 49 21.
óskipulag.
LÓÐRÉTT
1. fíkniefni 3. bardagi 4. þjappari 5.
einkar 7. fíflalæti 10. spíra 13. sigað
15. ekkert 16. hljóðfæri 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. java, 6. aa, 8. tal, 9. spá,
11. ll, 12. salat, 14. satan, 16. óp, 17.
trú, 18. bis, 20. il, 21. ólag.
LÓÐRÉTT: 1. hass, 3. at, 4. valtari, 5.
all, 7. apaspil, 10. ála, 13. att, 15. núll,
16. óbó, 19. sa.
„Við höfum auðvitað söng stund-
ir á leikskólanum og þá er
alltaf byrjað á laginu Í leikskóla
er gaman. Þessa dagana er
lagið Hesta Jói með Klaufunum
vinsælast.“
Kristín Dís Kristjánsdóttir, starfsmaður á
leikskóla.
Bandaríski Óskarsverðlaunahaf-
inn Quentin Tarantino kom til
landsins snemma í gærmorgun
með morgunflugi Icelandair frá
New York. Með í för er félagi
hans, hryllingsmyndaleikstjórinn
Eli Roth. Þeir hyggjast verja síð-
ustu dögum ársins 2007 hér á
landi. Þetta er í annað sinn sem
Tarantino er um áramót á Íslandi.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var athafnamaðurinn
Eyþór Guðjónsson mættur út á
Keflavíkurflugvöll árla dags og
sótti þá félaga og ferjaði þá yfir á
Nordica hótel en Eyþór var meðal
framleiðenda kvikmyndarinnar
Hostel II og lék eitt aðalhlutverk-
anna í fyrri myndinni. Tarantino
og Roth lögðu sig eftir langa flug-
ferð á hótelherbergjum sínum en
voru síðan mættir galvaskir í
World Class strax eftir hádegi. Og
fór kliður um salinn þegar stór-
stjarnan gekk inn en leikstjórinn
þótti vel í holdum eftir allt
jólaátið.
Eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst hefur þessi heimsókn
verið í burðarliðnum í dágóðan
tíma. Tarantino varði áramótun-
um hér fyrir tveimur árum. Þá
aflaði hann sér reyndar nokkurr-
ar óvildar þegar hann mætti
skömmu síðar í spjallþátt Conans
O‘Brian og fór mikinn um íslenskt
næturlíf og ekki síst íslenskt
kvenfólk, sem leikstjórinn sagði
að drykki meira en hörðustu
drykkjuhrútar. Félagarnir ætla að
vera hér fram á nýársdag en þá
fljúga þeir aftur heim til New
York. - fgg
Tarantino mættur til landsins
MÆTTUR ENN OG AFTUR Quentin Taran-
tino ætlar að verja síðustu dögum ársins
á Íslandi. Með í för er leikstjórinn Eli
Roth en Eyþór Guðjónsson er leiðsögu-
maður þeirra hér á landi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þetta var eiginlega bara fyndið,“
segir plötusnúðurinn Árni Sveins-
son, sem var handtekinn fyrir
þvaglát á almannafæri seint á Þor-
láksmessukvöld. Árni var þá við
störf á skemmtistaðnum Prikinu,
en brá sér út til að létta á sér þar
sem röðin á klósettin var lengri en
svo að hann hefði tíma til að bíða í
henni.
„Ég var að létta á mér þegar
þessi lögreglubíll kemur með því-
líku offorsi,“ útskýrir Árni, sem
segist fyrst hafa haldið að um grín
væri að ræða. Í bílnum voru að
sögn Árna þrír lögreglumenn,
„tveir nýir strákar og einn gamall
jaxl. Sá var rosa harður og mér
sýndist að þessum tveimur ungu
væri hálfbrugðið,“ segir Árni.
Árni segist aðspurður hafa sagt
lögreglumönnunum að hann ætti
erfitt með að koma með þeim, og
reyndi að skýra mál sitt. „Þeir
gáfu mér ekki færi á því, heldur
skelltu mér bara í járn og til-
kynntu að ég væri hér með hand-
tekinn,“ segir Árni. „Þetta var
mjög súrrealískt. Þeir sögðu meira
að segja við mig að ég mætti alveg
fara út að pissa, en þetta væri of
augljós staður. Hefði staðarvalið
verið betra hefði ég sem sagt ekki
verið handtekinn,“ bætir hann við.
Við tók ferð upp á lögreglustöð og
skýrslutaka, og segist Árni hafa
verið sektaður um tíu þúsund
krónur.
Þó að Árna finnist hrakfarirnar
helst efni í góða jólasögu finnst
honum þó einnig eitthvað bogið
við aðfarirnar. „Á meðan þeir
vörðu starfskröftum þriggja lög-
reglumanna í að slást við
mig hefði alveg eins
getað verið hópnauðg-
un niðri á Hallæris-
plani,“ segir Árni. „Ég
hef alveg samúð með
því að þeir séu undir-
mannaðir og fái ekki frið til
að vinna fyrir einhverjum ölvuð-
um hálfvitum niðri í bæ.
Aftur á móti eru þeir engir
snillingar í mannlegum
samskiptum. Þeir eru
frekar snillingar í því
að vera eins og fílar í
kristalsbúð,“ segir
hann og hlær. - sun
Plötusnúður handtekinn í pissupásu
PLÖTUSNÚÐUR Í KLÍPU Árni
Sveinsson var við störf á
Prikinu á Þorláksmessukvöld
þegar hann brá sér út fyrir
til að létta á sér, og var
handtekinn í
kjölfarið.
Níu handrit að leiknum sjónvarps-
þáttum fengu styrk frá Kvik-
myndamiðstöð Íslands nú í desem-
ber en það er helmingsfjölgun frá
undanförnum árum. Laufey Guð-
jónsdóttir, forstöðumaður Kvik-
myndamiðstöðvar, segir þetta
glöggt merki um að mikill upp-
gangur sé í framleiðslu leikins
efnis fyrir sjónvarp.
Að sögn Laufeyjar hefur sjón-
varpssjóðurinn hækkað töluvert
sem gerir Kvikmyndamiðstöðinni
kleift að taka þátt í gerð leikinna
þáttaraða í enn meira mæli. „Og
hann mun halda áfram að hækka
töluvert til ársins 2010 þannig að
þetta er bara rétt að byrja,“ segir
Laufey. Bæði RÚV og Stöð 2 hafa
látið í veðri vaka að þær ætli að
hella sér af verulegum krafti út í
leikið íslenskt efni og þá er aug-
ljóst að samningurinn umdeildi
sem RÚV gerði við Björgólf Guð-
mundsson hefur hleypt nýju blóði
í sjónvarpsþáttaframleiðslu.
Meðal þeirra þáttaraða sem
hlutu styrk er Rannsóknardeildin
en það eru þeir Sigurjón Kjartans-
son og Ævar Örn Jósepsson auk
Margrétar Örnólfsdóttur sem
skrifa handritið að henni. Þátta-
röðin er byggð á bókum Ævars
Arnar og verður tekin til sýn-
inga á RÚV á næsta ári. Auk
þess má sjá nöfn þeirra Ragn-
ars Bragasonar, Nínu Daggar
Filippusdóttur og Unnar Aspar
Stefánsdóttur, sem fá styrk
fyrir þáttaröðina Fangar, og
þær Kristín Helga Gunnars-
dóttir og María Pálsdóttir
fá einnig handritsstyrk
fyrir Fíasól sem byggð er
á vinsælum barnabókum.
Þá fá Hugleikur Dagsson
og Arnar Jónasson styrk
fyrir Grafin öxi og Ragn-
ar Hansson fyrir Gríma
GK.
Eins og komið hefur
fram í fjölmiðlum verða
tvær nýjar sjónvarpsþáttar-
aðir frumsýndar á næstunni.
Annars vegar Pressa á Stöð 2 sem
hefur göngu sína 30. desember og
hins vegar Mannaveiðar á RÚV.
Stöð 2 hefur þegar tilkynnt um
tvær nýjar þáttaraðir; Dagvakt-
ina, sjálfstætt framhald hinnar
SIGURJÓN KJARTANSSON: HANDRITSKÓNGUR ÍSLANDS
Metár í gerð sjónvarpsefnis
SIGURJÓN KJARTANSSON
MARGRÉT ÖRNÓLFSDÓTTIR
TÓNLISTARMAÐUR
Jólasýning Þjóðleik-
hússins, frumsýnd
annan í jólum, er
einn af hápunkt-
um leikársins. Að
þessu sinni var
á fjölum stóra
sviðsins athyglis-
verð leikgerð
Baltasars Kormáks á verki Tsjek-
hovs – Ívanoff. Ráðherrarnir Geir
H. Haarde og Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir voru meðal gesta
auk Kára Stefánssonar. Spunnust
spaklegar umræður um verkið í
hléi, bæði í Gyllta salnum sem og á
barnum í Þjóðleikhús kjallaranum.
En heldur sló á ánægju þeirra
kvenna sem vildu bregða sér á
salernið í kjallara hússins þegar
kom í ljós að þar var enginn klósett-
pappír. Þurftu þær því að brölta
prúðbúnar á háum
hælum og galakjól-
um á salernið uppi,
misstu af mikilvægum
mínútum í hinum
ágæta selskap og
hugsuðu Tinnu
Gunnlaugsdótt-
ur þjóðleikhús-
stjóra þegjandi
þörfina.
Fyrir skömmu birtist í Kastljósi við-
tal við Skagakonuna Valdísi Einars-
dóttur, margfaldan sigurvegara í
piparkökuhúsakeppni Kötlu. Þar
sýndi Valdís nýjasta meistaraverk
sitt og framlag sitt til keppninn-
ar í ár, nákvæma eftirlíkingu af
Fríkirkjuvegi 11 - húsinu sem
fjárfestingarfélag Björgólfs Thors
Björgólfssonar, Novator, keypti
fyrir 600 milljónir króna snemma
á þessu ári. Kristín Ólafsdóttir,
kona Björgólfs, mun hafa verið ein
þeirra mörgu sem hreifst af pipar-
kökuhúsinu í þættinum. Sagan
segir að hún hafi jafnvel haft áhuga
á að festa kaup á því þótt ekki
hafi verið gengið frá þeim kaupum
ennþá. Úrslitin í
keppninni voru
kunngjörð
skömmu fyrir
jól og þótti hús
Valdísar hafa borið
þar af öðrum.
- jbg/sók
FRÉTTIR AF FÓLKI
geysivinsælu Næturvaktar, og
Sylgju, en handritið að þeirri
þáttaröð er unnið af þeim Silju
Hauksdóttur, Ilmi Kristjánsdóttur
og Sigurjóni Kjartanssyni. Auk
þess er Stöð 2 með í bígerð nýjan
sakamálaþátt sem títtnefndur
Sigurjón skrifar einnig handritið
að ásamt Margréti Örnólfsdóttur,
Maríu Reyndal og Kristni Þórðar-
syni.
freyrgigja@frettabladid.is
Sigurjón Kjartansson kemur að skrif-
um þriggja sakamálaþáttaraða sem
eiga að fara í framleiðslu á næstunni
auk gamanþáttaraðar. Kristín
Helga Gunnarsdóttir vinnur
að gerð handrits eftir
barnabókum sínum
um Fíasól og Margrét
Örnólfsdóttir er í hand-
ritsteymi Rannsóknar-
deildarinnar sem byggð
er á bókum Ævars
Arnar Jóseps-
sonar.
MIKILL UPPGANGUR Í
GERÐ SJÓNVARPSEFNIS
Gnoðarvogi 44, s. 588 8686.
KRISTÍN HELGA
GUNNARSDÓTTIR
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Jón Ásgeir Jóhannesson.
2 Police.
3 Scott Skiles.