Fréttablaðið - 24.01.2008, Page 58

Fréttablaðið - 24.01.2008, Page 58
38 24. janúar 2008 FIMMTUDAGUR Fyrir réttu ári ákvað Safnaráð að tilnefna Minjasafn Reykjavíkur til Evrópusafnaverðlaunanna 2008 fyrir glæsilega viðbót við safnið, Landnámssýning- una Reykjavík 871±2 í Aðalstræti. Á sýningunni er miðlað fróðleik um lífið á landnámsöld og möguleikar margmiðlunar- tækninnar nýttir með nýstárlegum hætti. Minjasafnið hefur í kjölfar tilnefningarinnar verið valið á lista safna sem keppa munu til úrslita um Evrópsku safnaverðlaunin. Fleira er fréttnæmt frá landnámssýningunni þar sem á safnanótt, 8. febrúar næstkomandi, verður þar til sýnis uppstoppaður rostungur. Þá verður sagt frá rostungum og þeirri hugmynd sem fram hefur komið að ein af ástæðunum fyrir landnámi Íslands hafi verið eftirsókn eftir rostungstönnum. - vþ Tilnefning og rostungur LANDNÁMSSÝNINGIN REYKJAVÍK 871 Tilnefnd til Evrópusafna- verðlaunanna. Barna- og unglingaleikhúsið hefur í haust og vetur sýnt frumsaminn söngleik sem byggður er á ævin- týrinu um Öskubusku í Austurbæ við Snorrabraut. Nú fer hver að verða síðastur að berja herleg- heitin augum þar sem að á sunnu- dag kl. 16 fer fram síðasta sýning- in á verkinu. Barna- og unglingaleikhúsið hefur verið starfrækt í tvö ár og er Öskubuska þriðja sýning hópsins. Fríður flokkur ungmenna á aldrin- um 9-15 ára sem valin voru með áheyrnarprufum skipa leikhópinn, en fullorðið fagfólk kemur að öðrum þáttum sýningarinnar. Söng- leikurinn inniheldur allt það sem prýða þarf góða skemmtun: hressandi sönglög og dansa, spennu og fyndni og ætti því að geta höfð- að til allrar fjölskyldunnar. Barna- og unglingaleikhúsið stendur annars í ströngu þessa dagana við að undirbúa sína næstu sýningu sem verður frumsýnd á menningarnótt í ágúst næstkom- andi. Mikil leynd hvílir yfir verk- efninu, enda er alkunna að skemmtilegra er að vinna að leyndarmáli en því sem allir vita af. Miðasala á síðustu sýningu Öskubusku fer fram á vefsíðunni www.midi.is og í síma 5514700. - vþ Síðasta sýning Öskubusku HÆFILEIKARÍKIR KRAKKAR Hluti leikhópsins sem stendur að Öskubusku. Brísingsbók Hér á landi greip sig æði meðal ungra lesenda þegar fyrstu bindin tvö eftir hinn barnunga höfund Christopher Paolini um Eragon komu út. Nú hefur verið tilkynnt um titil titil og utlit þriðju bókarinnar. Mun hún heita Brísingr. Bókin kemur út í Bandaríkj- unum 20. september. Eragon hefur verið þýdd á 50 tungumál og samanlagt hafa selst meira en 12,5 milljónir eintaka af bókunum tveimur. Það er Forlagið sem gefur þriðja hlutann af bálknum hér á landi og leggja menn þar á bæ kapp á að þýða bókina eins fljótt og unnt er svo að íslenskir lesendur og aðdáendur Eragons drekavin- ar geti lesið sem fyrst hvernig ævintýrið endar og stefnir á útgáfu á íslensku snemma hausts. - pbb BÓKMENNTIR Kápan á fyrirhug- aðri bók Christop- hers Paolini um Eragon og dreka hans Safíru. Gagnrýnendur eru á einu máli: "sýning sem gleður, hræðir, skelfir og hrífur... heilsteypt flott listaverk." E.B. Fréttablaðið "fátt sem geislar jafnmikilli ástríðu á sviði núna" M.R. Morgunblaðið "verkið er unnið af heiðarleika, alúð og auðmýkt... Til hamingju!" Þ.E.S. Víðsjá. RÚV "unnendur góðrar leiklistar láti þessa sýningu ekki fram hjá sér fara" E.B. Fréttablaðið Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að framlengja sýningar á Fool for Love út febrúar. Sýnt í Silfurtunglinu, Austurbæ. Næstu sýningar: fös 25/1 kl. 20, uppselt. fös 25/1 kl. 22 lau 26/1 kl. 20 fös 1/2 kl 20 fös 1/2 kl 22 fim 7/2 kl 20 lau 9/2 kl 20 fös 15/2 kl 20 lau 16/2 kl 20 Tryggðu þér miða núna! Miðasala á midi.is og í síma 551 4700 Höfundur: Sam Shepard Leikstjórn: Jón Gunnar Þórðarson Tónlistarstjóri: KK Ljósahönnuður: Jón Þorgeir Kristjánsson Búningahönnuður: Rannveig Eva Karlsd. Hljóðhönnuður: Sindri Þórarinsson Leikmyndahönnun: Mekkín Ragnarsd. Leikarar: Sveinn Ólafur Gunnarsson, Þóra Karítas, KK og Magnús Guðmundsson. Þjóðleikhúsið um helgina Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Vígaguðinn mið 23/1 forsýn. uppselt fös 25/1 frumsýn. uppselt. lau 26/1 uppselt Ívanov fös. 25/1 örfá sæti laus. lau. 26/1 örfá sæti laus. Takmarkaður sýningafjöldi Konan áður sun 27/1 örfá sæti laus Leikstjóraspjall að lokinni sýningu Skilaboðaskjóðan sun. 27/1 kl. 14 & 17 örfá sæti laus Gott kvöld, barnasýning sun 27/1 kl. 13.30. Fáar sýningar eftir SUN 27. JANÚAR KL. 20 TÍBRÁ: MUSIC FOR A WHILE JÓHANNA HALLDÓRS OG BAROKKSVEIT. SÖNGVAR OG DANSAR FRÁ 16.ÖLD Miðaverð 2000 kr LAU 2. FEBRÚAR KL. 13 TÓNLEIKAR TKTK MYNDIR Á SÝNINGU ÚR HNOTUBRJÓTNUM PÉTUR OG ÚLFURINN MYRKIR MÚSÍKDAGAR VIKUNA 3. – 10. FEB 08 www.salurinn.is 25 jan uppselt 30 jan örfá sæti laus 27 febrúar 28 febrúar Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.