Réttur - 01.02.1927, Blaðsíða 6
8 GEORGE BERNHARD SHAW [Rjettm’
að flytja eða hlusta á ræður. Hann samdi fimm skáld-
sögur frá árunum 1879—1884. En það gekk alt örðug-
legar með að fá þær birtar. Hann sendi þær til eins út-
gefandans eftir annan, en kom fyrir ekki. óhlífni hans,
sjálfstæði hugsunarinnar og einkennileg framsetning,
stuðlaði alt að því að fæla útgefendurna. En þótt það
drægist nokkuð lengi fyrir Shaw að fá það nafn, sem
hann síðar fékk, þá var hann þó á þessum árum í stöð-
ugu samneyti við þá yngri mfinn í London, sem síðar
hafa getið sér ágætast nafn á Englandi. Margir ísilend-
ingar munu kannast við nöfn Sidney Webbs, Annie
Besant og William Morris. Þau voru í þeim, hóp lista-
manna, rithöfunda, hagfræðinga og blaðamanna, sem
Shaw átti mesta umgengni við á þessum, árum.
Kunningjar hans, sem mest máttu sín í blaðamanna-
hópnum, komu því smátt og smátt til leiðar, að sögur
hans voru birtar í blöðum. Aðallega jafnaðarmanna-
blöðum. Sá, sem þetta skrifar, hefir ekki lesið neina
þeirra, en þeim er lýst á þá leið, að naumast sé finnan-
legur í þeim' nokkuir verulegur »sögulegur« þráður né
dramatiskir atburðir; ekki er heldur hægt að nefna þær
mannlýsingar. Sögurnar eru ritgerðir um mannfélags-
mál, eða safn af hugmyndum, sumumi djúpsæum;, öðr-
um marklausum, sumum snjöllum!, en flestum komið
fyrir í fyndnum og óvæntum búningi. Hverjir sem gall-
arnir kunna að vera á sögunum — og Shaw hefir ekki
farið duilt með, að hann telji þær bera vott um þroska-
leysi* — þá er þó nokkur skyldleiki með þeim og leikrit-
unum, sem síðar gerðu Shaw frægan.
Árið 1884 var hið fræga Fabianfélag stofnað. Það er
félag mentaðra jafnaðarmanna, sem hefir haft fádæma
áhrif á hugsunarhátt þjóðarinnar. Shaw gekk í það
skömmu eftir að það var stofnað, og hefir æ síðan verið
einn hinn merkasti starfsmaður þess. Það mun ekki
*
Hann nefnir þær síðar »Novels of my Nonage«.