Réttur - 01.02.1927, Blaðsíða 84
86
BARÁTTAN UM HEIMSYFIRRÁÐIN [Rjettur
manna er gerö aö glæp, hegning lögð við því að skora á
verkamenn að vinna ekki sem verkfallsbrjótar, o. s. frv.
Áhrifin, sem þessi lög hljóta að hafa á verkalýðinn, verða
þó alveg öfug við það, sem til var ætlast. Þau magna hann
og svifta nú gersamlega grímu þeirri frá augum hans, er
áður huldi kúgun auðvaldsins fyrir honum. Kommúnist-
arnir bresku krefjast þess, að verkalýðurinn svari slíkri
árás á sjálfsögðustu mannrjettindi, sem þessari, með alls-
herjarverkfalli. En hinum hægfara foringjunr er afar illa
við allsherjarverkfall og hafa lieitið því að grípa aldrei til
slíks vopns. Er það hugleysi þeirra ein orsökin til þess að
íhaldsstjórnin vogar sjer að gera nú tilraun til að banna
lagalega þetta sterkasta vopn verkalýðsins.
Það er auðsjeð hvert stefnir nú. Tímum þingræðis og
almenns lýðræðis er lokið. fhaldið breska vill nú koma á
með lögum alræði auðvaldsins, því sem komið var á með
blóðugum byltingum í Suður- og austurhluta Mið-Evrópu.
Breski verkalýðurinn getur aðeins svarað þessu með því,
að koma á alræði verkalýðsins. Á öðru er ekki völ. Breysk-
leiki verklýðsforingjanna bresku, Macdonald, Snowden,
Clynes og þeirra, liggur í því að sjá ekki að lijer er aðeins
um tvent að velja. Þeir hika og — tapa. Breska verka-
lýðnum er því lífsnauðsyn að velja sjer nýja foringja hið
fyrsta, ef hann á ekki að verða undir í þessari örlagaríku
úrslitadeilu, sem nú er hafin.