Réttur - 01.02.1927, Blaðsíða 18
20
GEORGE BERNHARD SHAW
[Rjettur
félagsskipunin hvílir á. En jafnvíða og á þetta er drep-
ið, þá er þó hvergi eins ítarlega út í málið farið, eins og
í höfuðriti hans: Man and Swperman»
Hugsun Shaw er í stuttu máli þessi.
Konan er sá hluti mannkynsins, sem lífsaflið hefir
umfram alt fengið hlutverkið á hendur að endurnýja
kynslóðirnar. Frarnan af er kvenkynið eina kynið. En
kvenkynið fœðir af sér annað kyn, til þess að reyna aðra
margþættari og fullkomnari leið við fjölgunina. Upp-
haflega er karlkynið skapað í þeim eina tilgangi að
hjálpa kvenkyninu til þess að ala fullkomnara afkvæmi,
heldur en einkynja fjölgun getur tekist. Frá kvenkyns-
ins sjónarmiði er þetta sífeldlega verkefni hins
kynsins. En því hefir skotist yfir markið. Karlkynið
hefir margfaldast í höndum móðurkynsins. Aðeins ör-
lítið brot afis þess fer til getnaðarins. Afgangurinn
hefir farið í heila þess og vöðva. Hann hefir orðið of
sterkur líkamlega, til þess að una undir hennar yfir-
ráðurn, og of búinn hugsanamætti til þess að láta sér
nægja verkefni endurnýjunarinnar. Hann hefir skapað
menninguna og talið víst, að vinna konunnar á heimil-
inu ætti að vera undirstaða hennar. Menningin er við-
leitni mannsins til þess að gera sjálfan sig að einhverju
meira en verkefni, sem konan notar í sínum tilgangi.
Konan er verkefni Lífsaflsins til þess að endurnýjast.
Maðurinn er leit þess að heila, sem ekki veitir lífinu
eingöngu sjálfsmeðvitund, heldur og sjálfsskilning, þ.
e. kemur því að sama liði og augað líkamanum — segir
fyrir um hætturnar, sem varast á og vísar veginn í
gegnum völundarhúsið, að markinu: hærri og hærri
einstaklingur; og hugsjónin er einstaklingurinn alvit-
ur, almáttugur, óskeikull og með fullkomna glapsýnis-
lausa sjálfsmeðvitund, í einu orði, Guð.
Þessi íbúandi mjsmunur kynjanna, veldur sífeldum
árekstri. Vitaskuld er konan oft afarmikið meira en
móðir eða efni í móður, og hinsvegar eru karlar, sem